Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-129/2007:

Ákæruvaldið

(Guðjón Magnússon fulltrúi)

gegn

Tyrfingi Þórarinssyni

Fangelsi. Skilorð. Skjalafals. Refsiákvörðun.

Karlmaður dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir skjalafalsbrot. Litið til greiðlegrar játningar ákærða við ákvörðun refsingar, sem og sakarferils hans.

Mál þetta var höfðað með ákæru lögreglustjórans í Reykjavík, dagsettri 30. janúar sl., á hendur, Tyrfingi Þórarinssyni, kt. 000000-0000, Miklubraut 30, Reykjavík „fyrir skjalafals með því að hafa, mánudaginn 14. mars 2005, framvísað í lyfjaversluninni Lyfju, Lágmúla 5, Reykjavík, lyfseðli nr. 662374, gefnum út af Kristni Þorbergssyni, lækni nr. 398, þann 8. sama mánaðar á lyfið Vibeton til ákærða sem sjúklings, sem ákærði hafði falsað með því að bæta inn á seðilinn ávísun á 100 töflur af lyfinu Lexotan 3 mg.

Þetta telst varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.”

Ákærði hefur játað brot sitt fyrir dóminum. Er játning hans í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sitt, en það er í ákæru réttilega fært til refsiákvæða.

Ákærði er fæddur árið 1970. Samkvæmt sakavottorði hans gekkst hann undir greiðslu 30.000 króna sektar 5. janúar 1999, fyrir brot gegn 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. umferðarlaga og var þá sviptur ökurétti í 2 mánuði. Ákærði gekkst undir greiðslu 50.000 króna sektar 14. janúar 1999 fyrir brot gegn 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga. Þá gekkst ákærði undir greiðslu 34.000 króna sektar 20. júlí 2001 fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Ákærði hlaut dóm, 4. mars 2002, 25.000 króna sekt, fyrir brot gegn 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga. Síðast gekkst ákærði undir greiðslu 45.000 króna sektar, 30. október 2003, fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.

Að þessu virtu og með hliðsjón af greiðlegri játningu ákærða verður refsing ákærða ákveðin fangelsi í 30 daga. Fresta skal fullnustu refsingar ákærða og falli hún niður að liðnum 3 árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Tyrfingur Þórarinsson, sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingar ákærða og falli hún niður að liðnum 3 árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ingveldur Einarsdóttir.