Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 14. febrúar 2007.
Mál nr. S-126/2007:
Ákæruvaldið
(Sturla Þórðarson yfirlögfræðingur)
gegn
Einari Þór Sigríðarsyni
(Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Lykilorð
Hegningarauki. Nytjastuldur. Skilorð.
Útdráttur
Karlmaður dæmdur í 6 mánaða fangelsi skilorðsbundið 3 ár, fyrir nytjastuld á bifreið og fjölmörg umferðarlagabrot.
Ár 2007, miðvikudaginn 14. febrúar 2007, er dómþing Héraðsdóms Reykjavíkur háð í Dómhúsinu við Lækjartorg af Jónasi Jóhannssyni héraðsdómara og dómur kveðinn upp í máli nr. S-126/2007: Ákæruvaldið gegn Einari Þór Sigríðarsyni, sem dómtekið var samdægurs á grundvelli 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu höfðaði málið með ákæru útgefinni 29. janúar 2007 á hendur ákærða, Einari Þór Sigríðarsyni, kt. 000000-0000, Vatnsstíg 4, Reykjavík, til refsingar fyrir nytjastuld samkvæmt 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og brot á 1. og 3. mgr. 5. gr., 13. gr., 2. mgr. 31. gr. og 45. gr. a., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum, með því að hafa, aðfaranótt miðvikudagsins 30. ágúst 2006, tekið bifreiðina RK- 054 í heimildarleysi við Kríuhóla í Reykjavík og, ófær um að stjórna ökutæki örugglega vegna áhrifa amfetamíns og kannabis, ekið inn í Kópavog, án þess að sinna stöðvunarmerkjum lögreglu á Grænatúni, áfram eftir göngustíg við Kjarrhólma og í Fossvogsdal, til Reykjavíkur og þar gegn rauðu umferðarljósi á gatnamótum Bústaðavegar og Stjörnugrófar, Miklubrautar og Skeiðarvogs, Skeiðarvogs og Langholtsvegar og Langholtsvegar og Álfheima, mót einstefnu um Gnoðarvog, eftir Engjavegi, án þess að sinna stöðvunarmerkjum lögreglu og loks gegn rauðu umferðarljósi á gatnamótum Reykjavegar og Sundlaugavegar, þar sem akstrinum lauk, án þess að ákærði sinnti nokkru sinni merkjagjöf á framangreindri leið.
Með játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er framangreind háttsemi sönnuð og þykir hún rétt færð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði var tæplega 24 ára þegar hann framdi brotin. Skömmu síðar, eða 27. september 2006, var hann dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið þrjú ár, fyrir tilraun til nytjastuldar. Áður hafði ákærði hlotið tíu refsidóma, aðallega vegna hegningarlagabrota, þar af fimm fyrir nytjastuld, á tímabilinu frá júní 2004 til apríl 2006. Ber að horfa til þessa við ákvörðun refsingar, sem og þess að brotin voru framin fyrir uppkvaðningu dómsins 27. september 2006. Verður sá dómur nú tekinn upp samkvæmt reglum 60. gr. almennra hegningarlaga með áorðnum breytingum og ákærða gerður hegningarauki, sbr. 78. gr. Sakaferill ákærða og gögn málsins bera þess glöggt vitni að hann eigi við vímuefnavanda að stríða. Ákærði hefur nú farið í meðferð vegna þessa. Hann býr á áfangaheimili og er að leita sér að atvinnu, en á meðan þiggur hann bætur frá félagsmálayfirvöldum. Að öllu þessu gættu og með hliðsjón af reglum 77. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin í einu lagi með sex mánaða fangelsi, sem eftir atvikum þykir rétt að skilorðsbinda, eins og nánar greinir í dómsorði.
Að kröfu ákæruvaldsins og með vísan til 101. og 102. gr. umferðarlaga með áorðnum breytingum ber að svipta ákærða ökurétti. Þykir sú svipting hæfilega ákveðin sex mánuðir frá dómsuppsögu að telja og frestar áfrýjun ekki verkun dóms að því leyti.
Samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga um meðferð opinberra mála ber loks að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, en til hans telst útlagður kostnaður vegna lögreglurannsóknar, krónur 102.741 og þóknun skipaðs verjanda, sem er ákveðin í dómsorði, að teknu tilliti til virðisaukaskatts.
Sturla Þórðarson yfirlögfræðingur lögreglustjóra sótti málið af hálfu ákæruvaldsins.
DÓMSORÐ:
Ákærði, Einar Þór Sigríðarson, sæti fangelsi í sex mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum þremur árum frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði er sviptur ökurétti í sex mánuði frá dómsuppsögu að telja og frestar áfrýjun dóms ekki verkun hans að því leyti.
Ákærði greiði 152.541 krónu í sakarkostnað, þar með talda 49.800 króna þóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns.
Jónas Jóhannsson