Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 4. júlí 2006.
Mál nr. S-765/2006:
Ákæruvaldið
(Guðjón Magnússon fulltrúi)
gegn
Hafsteini Kjartanssyni
(Hilmar Ingimundarson hrl)
Lykilorð
Útdráttur
Karlmaður dæmur í 4 mánaða fangelsi fyrir nytjastuld, umferðarlagabrot, þjófnaði, fjársvik, hylmingu og fíkniefnalagabrot. Refsing ákvörðuð sem hegningarauki við 14 mánaða fangelsisdóm frá 8. febrúar 2006.
Mál þetta, sem var endurupptekið og dómtekið á ný í dag, er höfðað samkvæmt ákærum útgefnum af lögreglustjóranum í Reykjavík, annars vegar 27. mars 2006 og hins vegar 16. maí 2006 á hendur Hafsteini Kjartanssyni, kt. 000000-0000, óstaðsettum í hús í Reykjavík, fyrir eftirgreind brot:
Ákæra útgefin 27. mars 2006:
á hendur Kjartani Guðmundssyni og Hafsteini Kjartanssyni ,,fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot, báðum með því að hafa notað bifreiðina YE- 268 í heimildarleysi fimmtudaginn 27. janúar 2006 og ekið henni um götur í Reykjavík, til Borgarfjarðar og til baka aftur til Reykjavíkur, og ákærða Kjartani enn fremur með því að hafa ekið bifreiðinni með 103 km hraða á klst. um Vesturlandsveg, um vegarkafla í Hvalfjarðargöngum, þar sem hámarkshraði er 70 km klst.
Þetta telst varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 2., sbr. 4. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar. “
Þáttur Kjartans var klofinn frá máli þessu og hans brot dæmt sér og verður í máli þessu því einungis dæmt um brot ákærða, Hafsteins.
Ákæra útgefin 16. maí 2006, á hendur ákærða, Hafsteini fyrir:
,,1.
Þjófnað með því að hafa 10. desember 2005 stolið farsíma og tveimur greiðslukortum í kjallaraíbúð að Þingholtsstræti 8a.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Fjársvik með því að hafa í framhaldi af þjófnaðinum svikið út vörur og eldsneyti að andvirði 299.167 krónur á afgreiðslustöðvum Olíuverslunar Íslands hf. með því að framvísa í eftirgreind 12 skipti viðskiptakorti annars manns hjá félaginu og láta skuldfæra andvirðið heimildarlaust á reikning mannsins:
- Þann 10. desember á bensínstöð við Klöpp skuldfært 7.790 kr.
- Sama dag á bensínstöð í Ánanaustum skuldfært 3.175 kr.
- Sama dag skuldfært 19.000 kr. á bensínstöð við Klöpp.
- Sama dag skuldfært 16.095 kr. á bensínstöð í Hamraborg í Kópavogi.
- Sama dag skuldfært 7.335 kr. á bensínstöð við Klöpp.
- Sama dag skuldfært 12.579 kr. á bensínstöð ÓB við Snorrabraut.
- Sama dag skuldfært 21.423 kr. á bensínstöð við Fjarðarkaup í Hafnarfirði.
- Þann 11. desember skuldfært í 3 færslum alls 7.005 kr. á bensínstöð ÓB við Snorrabraut.
- Sama dag skuldfært 4.769 kr. á bensínstöð við Klöpp.
- Sama dag skuldfært 40.000 kr. á bensínstöð ÓB við Fjarðarkaup.
- Sama dag skuldfært í 2 færslum alls 80.000 kr. á bensínstöð ÓB við Melabraut, Seltjarnarnesi.
- Sama dag skuldfært í 2 færslum alls 80.000 kr. á bensínstöð ÓB við Nýju Sendibílastöðina.
Telst þetta varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Hylmingu, með því að hafa í vikunni 25. til 31. janúar 2006 tekið við úrum og skartgripum, þ.e. 2 úrum, 3 pörum af eyrnalokkum, 3 hálskeðjum, gullarmbandi, gullhúðuðu armbandi, perluarmbandi og stökum eyrnalokki hjá óþekktum manni þrátt fyrir að ákærði vissi að um þýfi væri að ræða.
Telst þetta varða við 254. gr. almennra hegningarlaga.
Þjófnað með því að hafa föstudaginn 27. janúar 2006 brotist inn í íbúðarhúsið við Hátún 33 og stolið fartölvu.
Þjónað með því að hafa að kvöldi laugardagsins 4. febrúar 2006 brotist inn í íbúð að Bólstaðahlíð 68 og stolið 4 tegundum af lyfjum.
Þjófnað með því að hafa þriðjudaginn 7. febrúar 2006 brotist inn í íbúðarhúsið við Hátún 49 í félagi við annan mann og stolið flatskjá og 2 fartölvum að verðmæti 352.000 kr.
Þjófnað með því að hafa fimmtudaginn 9. febrúar 2006 brotist inn í íbúð á jarðhæð hússins við Leifsgötu 8 og stolið skartgripum, 4 hnífum, tertuspaða og vegabréfi, samtals að verðmæti um 440.000 kr.
Telst háttsemin samkvæmt liðum 4 – 7 varða við 244. gr. almennra hegningarlaga.
Fíkniefnalagabrot með því að hafa þriðjudaginn 6. desember 2005 á Umferðarmiðstöðinni við Vatnsmýrarveg 10 í Reykjavík haft í vörslum sínum 0,91 g af amfetamíni, sem lögreglumenn fundu við leit á ákærða.
Fíkniefnalagabrot með því að hafa að kvöldi föstudagsins 27. janúar 2006 við Fjallabarinn, Jafnaseli 6, Reykjavík, haft í vörslum sínum 0,11 g af amfetamíni sem ákærði framvísaði við leit.
Telst háttsemin samkvæmt liðum 8 og 9 varða við 2. gr., sbr. 5. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og jafnframt að framangreind fíkniefni, sem hald var lagt á, verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.
Í málinu krefjast eftirgreindir skaðabóta:
Björn H. Björnsson, kt. 000000-0000, skaðabóta að fjárhæð 299.167 kr. ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá 11. desember 2005 en síðan dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Tryggingamiðstöðin hf., kt. 000000-0000, skaðabóta að fjárhæð 355.500 kr. ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga frá tjónsdegi til þess dags er dómsmál er höfðað en dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laganna frá þeim degi til greiðsludags.
Sjóvá-Almennar tryggingar, kt. 000000-0000, skaðabóta að fjárhæð 22.161 kr. ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga frá tjónsdegi en síðan með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. vaxtalaga til greiðsludags.
Sjóvá-Almennar tryggingar, kt. 000000-0000, skaðabóta að fjárhæð 147.980 kr. ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga frá tjónsdegi en síðan með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. vaxtalaga til greiðsludags.”
Ákærði hefur játað brot sín fyrir dóminum og samþykkt bótakröfur. Er játning hans í samræmi við gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sín, en þau eru í ákærum réttilega heimfærð til refsiákvæða.
Ákærði er fæddur í júní 1968. Hann á að baki langan sakaferil, allt frá árinu 1988, en frá því ári hefur hann hlotið 9 refsidóma fyrir nytjastuld, umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og þjófnað. Síðast hlaut ákærði dóm 8. febrúar 2006, 14 mánaða fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot, en með þeim dómi var dæmd upp reynslulausn sem ákærði hlaut 25. mars 2005 á 300 daga eftirstöðvum refsingar. Brot ákærða samkvæmt báðum ákærum eru framin fyrir uppkvaðningu síðastgreinds dóms og ber því að ákvarða refsingu ákærða með hliðsjón af 78. gr. almennra hegningarlaga og dæma ákærða hegningarauka er samsvari þeirri þyngingu hegningarinnar er kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um öll brotin í því máli.
Ákærði hefur játað brot sín hreinskilnislega og er það virt honum til refsilækknunar, en jafnframt horft til þess að um mörg brot var að ræða. Þegar allt framangreint er virt og með vísan til 77. gr. almennra hegningarlaga er refsing ákærða ákveðin fangelsi í 4 mánuði.
Þá verður ákærði dæmdur til að sæta upptöku á 1,02 g af amfetamíni sem hald var lagt á við rannsókn málsins.
Í málinu liggur frammi bótakrafa Björns H. Björnssonar og verður ákærði dæmdur til greiðslu hennar auk vaxta eins og í dómsorði greinir.
Í málinu liggur einnig frammi bótakrafa Sjóvár Almennra trygginga hf. að fjárhæð 147.980 krónur og er hún studd fullnægjandi gögnum og verður ákærði dæmdur til greiðslu hennar auk vaxta eins og í dómsorði greinir.
Þá liggur frammi í málinu bótakrafa Sjóvár Almennra trygginga hf. að fjárhæð 22.161 og er hún studd fullnægjandi gögnum og verður ákærði dæmdur til greiðslu hennar auk vaxta eins og í dómsorði greinir.
Þá liggur einnig frammi í málinu bótakrafa Tryggingamiðstöðvarinnar hf. að fjárhæð 355.500 krónur og er hún studd fullnægjandi gögnum. Verður ákærði dæmdur til greiðslu hennar auk vaxta eins og í dómsorði greinir.
Með vísan til 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 greiði ákærði sakarkostnað málsins, sem er málsvarnarþóknun verjanda ákærða, Hilmars Ingimundarsonar hrl. fyrir vinnu verjanda á rannsóknarstigi vegna máls samkvæmt ákæru frá 16. maí sl. og málsvarnarþóknun sama lögmanns vegna máls samkvæmt ákæru frá 27. mars sl., samtals 144.885 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Hafsteinn Kjartansson, sæti fangelsi í 4 mánuði.
Ákærði sæti upptöku á 1,02 g af amfetamíni.
Ákærði greiði Birni H. Björnssyni, kt. 000000-0000, 299.167 krónur ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá 11. desember 2005 til 4. júlí 2006, en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði Sjóvá Almennum tryggingum hf. 147.980 krónur ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá 27. janúar 2006 til 24. apríl 2006, en frá þeim degi með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga til greiðsludags.
Ákærði greiði Sjóvá Almennum tryggingum hf. 22.161 krónu ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá 7. febrúar 2006 til 4. júlí 2006, en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði Tryggingamiðstöðinni hf., 355.500 krónur ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá 7. febrúar 2006 til 4. júlí 2006, en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, 144.885 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ingveldur Einarsdóttir