Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-809/2022:

Ákæruvaldið

(Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari)

gegn

Sigurði Erni Arnarsyni

(Páll Kristjánsson lögmaður)

Staðgreiðsla opinberra gjalda. Virðisaukaskattur.

Sakfellt fyrir skattalagabrot.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var 21. september, er höfðað með ákæru héraðssaksóknara, útgefinni 26. apríl 2022, á hendur Sigurði Erni Arnarsyni, kt. 000000- 0000, […], „fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum í rekstri einkahlutafélagsins […] (áður […] ehf. og […] ehf.), kt. 000000-0000, nú gjaldþrota, sem daglegur stjórnandi félagsins og stjórnarformaður félagsins frá 26. mars 2018 til 17. desember s.á. en eftir það sem framkvæmdastjóri og eini stjórnarmaður þess:

  1. Með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum einkahlutafélagsins á lögmæltum tíma vegna uppgjörstímabilanna júlí – ágúst og september – október rekstrarárið 2018 og með því að hafa ekki staðið ríkissjóði skil í samræmi við IX. kafla laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, á virðisaukaskatti sem innheimtur var, eða innheimta bar, í rekstri einkahlutafélagsins vegna uppgjörstímabilanna júlí – ágúst, september – október og nóvember – desember rekstrarárið 2018, samtals að fjárhæð 11.587.325 krónur, sem sundurliðast svo:
júlí – ágúst kr. 3.656.772
september – október kr. 5.250.137
nóvember – desember kr. 2.680.416
Samtals kr. 11.587.325.
  1. Með því að hafa ekki staðið á lögmæltum tíma skil á staðgreiðsluskilagrein einkahlutafélagsins vegna staðgreiðslu opinberra gjalda vegna greiðslutímabilsins ágúst rekstrarárið 2018 og með því að hafa ekki staðið ríkissjóði skil á staðgreiðslu opinberra gjalda, í samræmi við fyrirmæli III. kafla laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins vegna greiðslutímabilanna apríl til og með desember rekstrarárið 2018 og janúar rekstrarárið 2019, samtals að fjárhæð 29.474.728 krónur, sem sundurliðast svo:
apríl kr. 2.955.904
maí kr. 3.281.554
júní kr. 2.813.012
júlí kr. 2.501.725
ágúst kr. 2.586.547
september kr. 3.077.481
október kr. 2.991.114
nóvember kr. 3.729.298
desember kr. 2.875.207
2019 kr. 26.811.842
janúar kr. 2.662.886
kr. 2.662.886
Samtals kr. 29.474.728.

_________________________________ Brot ákærða teljast varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, vegna brota samkvæmt ákærulið 1 og sbr. 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, vegna brota samkvæmt ákærulið 2.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Ákærði kom fyrir dóm og játaði þá háttsemi er honum er gefin að sök í ákæru. Með játningu sinni, sem fær næga stoð í gögnum málsins telst ákærði sannur að sök samkvæmt ákæru og hefur unnið sér til refsingar.

Rannsókn skattrannsóknarstjóra á skattskilum ákærða hófst 13. 3. 2020 og tilkynnti embættið ákærða um lok rannsóknarinnar með bréfi dags. 8. 7. 2020. Með bréfi 2. 9. 2020 tilkynnti skattrannsóknarstjóri ákærða að málinu hefði verið vísað til héraðssaksóknara. Af hálfu ákærða var fyrir dómi vísað til laga nr. 29/2021 og byggt á að í ljósi þeirra breytinga sem þar voru gerðar bæri ekki að heimfæra þá háttsemi ákærða, sem fjallað er um í máli þessu, til 1. mgr. 262. gr. laga nr. 19/1940 heldur eingöngu til tilgreindra ákvæða laga nr. 50/1988 og 45/1987. Af hálfu ákæruvalds var þeim sjónarmiðum hafnað. Með hliðsjón af dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 35/2021 verður ekki talið í málinu að lög nr. 29/2021 leiði til þess að háttsemi ákærða verði ekki heimfærð með þeim hætti sem í ákæru er gert. Verður háttsemi ákærða heimfærð til refsiheimilda eins og gert er í ákæru. Samkvæmt sakavottorði hefur ákærða, sem játar sök í málinu, ekki verið gerð refsing áður. Samkvæmt gögnum málsins greiddi ákærði 1.700.000 krónur inn á staðgreiðslu vegna októbermánaðar 2018 og skilagreinum vegna hans var skilað innan lögboðins frests. Þegar á allt er horft ákveðst refsing ákærða fangelsi í níu mánuði en fullnustu hennar skal frestað og niður falli hún að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940. Ákærða verður gert að greiða 71.348.199 króna sekt í ríkissjóð en 360 daga fangelsi komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna. Loks verður ákærða gert að greiða málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Páls Kristjánssonar lögmanns, 613.800 krónur með virðisaukaskatti, en ekki mun annar sakarkostnaður hafa fallið til. Af hálfu ákæruvaldsins fór Finnur Þór Vilhjálmsson aðstoðarsaksóknari með málið. Þorsteinn Davíðsson kveður upp dóm þennan. .

Dómsorð:

Ákærði, Sigurður Örn Arnarson, sæti fangelsi í níu mánuði. Fullnustu þeirrar refsingar skal frestað og niður skal hún falla að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð.

Ákærði greiði 71.348.199 króna sekt í ríkissjóð en 360 daga fangelsi komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.

Ákærði greiði 613.800 króna þóknun skipaðs verjanda síns, Páls Kristjánssonar lögmanns.

Þorsteinn Davíðsson

Heimildaskrá

Dómaskrá