Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 30. september 2022.
Mál nr. S-1530/2022:
Héraðssaksóknari
(Anna Barbara Andradóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Garðari Ingvari Þormar
(Oddgeir Einarsson lögmaður)
Lykilorð
Fíkniefnalagabrot. Játningarmál. Stórfellt fíkniefnalagabrot. Vopnalagabrot.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefna- og hegningarlagabrot auk vopnalagabrota og gert að sæta óskilorðsbundnu fangelsi í þrjú ár og sex mánuði. Ákærði játaði háttsemi sína skýlaust hjá lögreglu og fyrir dómi. Gæsluvarðhald sem ákærði hafði sætt var látið dragast frá refsingu. Þá voru gerð upptæk fíkniefni og munir.
Dómur
Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið 21. september 2022, er höfðað með ákæru héraðssaksóknara 1. september 2022 á hendur ákærða Garðari Ingvari Þormar, kt. […], […], […]: „fyrir eftirtalin brot framin að Herjólfsgötu 32 í Hafnarfirði sunnudaginn 28. mars 2021:
- Stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 4.685,68 g af amfetamíni, með 70-72% styrkleika, 990 ml af amfetamínvökva, með 61% styrkleika, sem lögreglan fann við leit í og ofan á frystikistu, sem staðsett var í geymslu merktri 102 og 1,70 g af hassi, 1,39 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 12 ml af kannabisblönduðum vökva, sem lögregla fann við leit í íbúð Telst brot þetta varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 65/1974 og 32/2001 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.
- Vopnalagabrot, með því að hafa haft í vörslum sínum tvö sverð og útdraganlega kylfu, sem lögregla fann við leit í íbúðinni, og tvö handjárn, lásboga og gasskotvopn af gerðinni IMF GE3308 sem lögregla fann við leit í geymslu nr. 102.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 12. gr., c., d., og f. lið 2. mgr. 30. gr. og 4. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Krafist er upptöku á 4.685,68 g af amfetamíni, 990 ml af amfetamínvökva, 1,70 g af hassi, 1,39 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 12 ml af kannabisblönduðum vökva, með vísan til 6. og 7. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002. Þá er krafist upptöku á þeim vopnum sem lagt var hald á við rannsókn málsins og talin eru upp í ákærulið 2. með vísan til 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998.“
I.
Kröfur ákærða eru þær að hann verði dæmdur til vægustu refsingar sem lög frekast heimila og að til frádráttar refsingunni komi gæsluvarðhaldsvist sem ákærði sætti 29. mars 2021 til 7. apríl 2021. Þá krefst verjandi hæfilegrar þóknunar sér til handa vegna verjendastarfa samkvæmt vinnuskýrslu.
Fyrir dómi játaði ákærði afdráttarlaust sök samkvæmt ákæru og samþykkti upptökukröfu. Var því farið með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Sannað er með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur árið […] og hefur samkvæmt framlögðu sakavottorði ekki gerst sekur um refsiverði háttsemi. Hann hafði í vörslum sínum 4.685,68 g af amfetamíni, með 70-72% styrkleika, 990 ml af amfetamínvökva með 61% styrkleika, 1,70 g af hassi, 1,39 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 12 ml af kannabisblöndum vökva, í sölu- og dreifingarskyni hér á landi í ágóðaskyni. Um er að ræða talsvert magn fíkniefna af miklum styrkleika, sem ákærði hafði í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni sem litið verður til við ákvörðun refsingar, sbr. 1. og 3. töluliður 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Hins vegar benda gögn málsins til þess að ákærði hafi ekki verið eigandi efnanna utan þeirra sem eru í neysluskömmtum. Við ákvörðun refsingar verður litið til þessa og jafnframt til þess að ákærði hefur ekki áður hlotið refsingu, greiðrar játningar hans hjá lögreglu og fyrir dómi og þess að ákærði hefur farið í meðferð vegna áfengis- og vímuefnavanda eftir brotið, til að leitast við að koma lífi sínu á réttan kjöl, sbr. 5., 7. og 8. töluliður 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga.
Að þessu virtu og með hliðsjón af dómaframkvæmd þykir refsing ákærða, sem ákveðin er með tilliti til 77. gr. almennra hegningarlaga, hæfilega ákveðin fangelsi í þrjú ár og sex mánuði. Frá refsingu dregst gæsluvarðhald frá 29. mars 2021 til 7. apríl 2021.
Samkvæmt ofangreindri niðurstöðu er fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins eins og hún er sett fram í ákæru. Ákærði skal því sæta upptöku á 4.685,68 g af amfetamíni, 990 ml af amfetamínvökva, 1,70 g af hassi, 1,39 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 12 ml af kannabisblönduðum vökva, svo og tveimur sverðum, útdraganlegri kylfu, tveimur handjárnum, lásboga og gasskotvopni af gerðinni IMF GE3308.
Á grundvelli sakfellingar ákærða, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður honum gert að greiða allan sakarkostnað málsins. Ákærði dæmist því til að greiða sakarkostnað samkvæmt framlögðu sakarkostnaðaryfirliti og þeim reikningum sem því fylgja, samtals 411.002 krónur. Ákærða greiði einnig þóknun skipaðs verjanda síns, Oddgeirs Einarssonar lögmanns, sem að virtu umfangi máls og með hliðsjón af tímaskýrslu þykja hæfilega ákveðin 558.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
María Thejll héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Garðar Ingvar Þormar, sæti fangelsi í þrjú ár og sex mánuði. Til frádráttar refsingunni kemur gæsluvarðhald með fullri dagatölu sem ákærði sætti frá 29. mars 2021 til 7. apríl 2021.
Ákærði sæti upptöku á 4.685,68 g af amfetamíni, 990 ml af amfetamínvökva, 1,70 g af hassi, 1,39 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 12 ml af kannabisblönduðum vökva, svo og tveimur sverðum, útdraganlegri kylfu, tveimur handjárnum, lásboga og gasskotvopni af gerðinni IMF GE3308.
Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Oddgeirs Einarssonar lögmanns, 558.000 krónur og annan sakarkostnað 411.002 krónur.
María Thejll