Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-9/2019:

Ákæruvaldið

(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Sindra Frey Jenssyni

(Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)

Ávana- og fíkniefni. Játningarmál. Ökuréttarsvipting. Umferðarlagabrot.

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot og dæmdur í níu mánaða fangelsi. Ákærði var sviptur ökurétti ævilangt og var gert að sæta upptöku á fíkniefnum.

Mál þetta, sem var tekið til dóms 10. apríl 2019, höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru 8. janúar 2019 á hendur Sindra Frey Jenssyni, kt. 000000-0000, [...]; ,,fyrir eftirtalin umferðar- og fíkniefnalagabrot, með því að hafa:

  1. Fimmtudaginn 12. október 2017 ekið bifreiðinni [...] óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og vegna áhrifa slævandi lyfja   (í   blóði   mældist   alprazólam   60   ng/ml,   díazepam   370   ng/ml, klónazepam 21 ng/ml, metýlfenídat 25 ng/ml og nordíazepam 350 ng/ml og auk   þess   fannst   metýlfenídat   og   umbrotsefni   benzódíazepínsambanda   í þvagi) um Naustabryggju í Reykjavík, til móts við hús nr. 7, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst brot þetta varða við 1. sbr. 2. mgr. 44. gr. og 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
  2. Laugardaginn 14. október 2017 ekið bifreiðinni [...] óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og vegna áhrifa slævandi lyfja (í blóði mældist alprazólam 20 ng/ml, amfetamín 405 ng/ml, díazepam 190 ng/ml, klónazepam 50 ng/ml, metýlfenídat 185 ng/ml og nordíazepam 320 ng/ml og auk þess fannst amfetamín, MDMA, metýlfenídat, tetrahýdrókannabínólsýra og umbrotsefni benzódíazepínsambanda í þvagi) um Kaplaskjólsveg í Reykjavík, við Sörlaskjól, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst brot þetta varða við 1. sbr. 2. mgr. 44. gr. og 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
  3. Miðvikudaginn 15. nóvember 2017 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og vegna   áhrifa   slævandi   lyfja   (í   blóði   mældist   amfetamín   195   ng/ml, brómazepam 45 ng/ml, díazepam 350 ng/ml, kókaín 60 ng/ml, nítrazepam 83 ng/ml, nordíazepam 100 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 1,2 ng/ml) um Álfabakka í Reykjavík, á bifreiðastæði við Aktu Taktu, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst brot þetta varða við 1. sbr. 2. mgr. 44. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
  4. Föstudaginn 17. nóvember 2017 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 70 ng/ml, metýlfenídat 340 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 1,0 ng/ml og auk þess fannst amfetamín, metýlfenídat, tetrahýdrókannabínólsýra, kókaín og metamfetamín í þvagi) um Reykjanesbraut í Hafnarfirði, við N1 Lækjargötu, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
  5. Laugardaginn 6. janúar 2018 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 140 ng/ml, metýlfenídat 230 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 1,0 ng/ml og auk þess fannst amfetamín, metýlfenídat og tetrahýdrókannabínólsýra í þvagi) norður Reykjanesbraut í Reykjavík, við Bústaðaveg, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
  6. Fimmtudaginn 10. maí 2018 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í þvagi fannst   tetrahýdrókannabínólsýra)   um   Lambhagaveg   í   Reykjavík,   við Mímisbrunn, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
  7. Sunnudaginn 5. ágúst 2018 við Stórakrika 2 í Mosfellsbæ haft í vörslum sínum 8 stykki af MDMA, sem lögreglumenn fundu við öryggisleit á ákærða. Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

    Þess   er   krafist   að   ákærði   verði   dæmdur   til   refsingar,   til   greiðslu   alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006. Krafist er upptöku á 8 stykkjum af MDMA, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“

    Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá gerir verjandi ákærða kröfu um hæfilega þóknun sér til handa.

    Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið þau brot sem honum eru gefin að sök og var farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig í stuttu máli um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

    Sannað er með skýlausri játningu ákærða, sem er í samræmi við framlögð sakargögn, að hann hafi gerst sekur um þau brot sem honum eru gefin að sök og eru þau réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði hefur því unnið sér til refsingar.

    Ákærði er fæddur [...] og á samkvæmt framlögðu sakavottorði að baki sakaferil sem nær aftur til ársins 2012. Ákærði var dæmdur í mánaðar fangelsi, skilorðsbundið   til   tveggja   ára,   fyrir   þjófnað,   húsbrot,   fíkniefnalagabrot   og vopnalagabrot með dómi 3. júlí 2012. Ákærði var sakfelldur fyrir líkamsárás og þjófnað með dómi 12. nóvember 2013, en ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í eitt ár. Með sektargerð lögreglustjóra 14. nóvember 2013 samþykkti ákærði greiðslu sektar vegna fíkniefnalagabrots. Ákærði gekkst undir tvær sektargerðir lögreglustjóra 13. október 2014 vegna fíkniefnalagabrota og samþykkti greiðslu sekta. Með dómi 12. maí 2015 var ákærði dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir brot gegn valdstjórninni, eignaspjöll, fíkniefnalagabrot og akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ákærði framdi umferðarlagabrotin 1. mars og 7. nóvember 2014, eftir að hann varð fullra átján ára. Með sama dómi var ákærði sviptur ökurétti í átján mánuði. Með dómnum var   ákærða   gerður   hegningarauki   við   eldri   refsiákvarðanir,   vegna   brota   gegn ákvæðum annarra laga en umferðarlaga. Ákærði var sakfelldur fyrir nytjastuld og dæmdur   í   fimm  mánaða  fangelsi,  skilorðsbundið   til  tveggja  ára,   með   dómi   6. nóvember 2015. Með dómnum var áðurnefndur skilorðsdómur frá 12. maí 2015 dæmdur upp og ákærða gerð refsing í einu lagi. Með dómi 14. september 2017 var ákærði dæmdur til greiðslu 160.000 króna sektar og var sviptur ökurétti í tvö ár frá 15. október sama ár að telja fyrir akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Brot þau sem ákærði var sakfelldur fyrir í málinu voru framin fyrir uppkvaðningu áðurnefnds skilorðsdóms frá 6. nóvember 2015 og var ákærða því gerður hegningarauki við þann dóm og skilorðsdómurinn látinn haldast. Ákærði gekkst   undir   sektargerð   lögreglustjóra   9.   nóvember   2018   þess   efnis   að   ákærði samþykkti greiðslu 149.000 króna sektar fyrir fíkniefnalagabrot. Brot þau sem ákærði hefur verið sakfelldur í máli þessu voru framin fyrir afgreiðslu sektargerðarinnar frá 9. nóvember 2018, og verður ákærða því gerður hegningarauki samkvæmt 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    Skilorðsdómurinn frá 6. nóvember 2015 verður nú tekinn upp og ákærða gerð refsing í einu lagi samkvæmt 60. gr. sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Samkvæmt framansögðu um sakaferli ákærða og brotum hans virtum, sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og með hliðsjón af skýlausri játningu ákærða, þykir refsing hans réttilega ákveðin níu mánaða fangelsi. Ekki eru efni til að skilorðsbinda refsinguna.

    Með vísan til framangreinds ber, í samræmi við kröfugerð ákæruvalds og með vísan til 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, að svipta ákærða ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.

    Með   vísan   til   kröfugerðar   ákæruvaldsins,   gagna   málsins   og   tilgreindra lagaákvæða í ákæru verða gerðar upptækar 8 MDMA töflur sem ákærði var með í vörslum sínum 5. ágúst 2018.

    Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar sem, samkvæmt framlögðu yfirliti sækjanda um slíkan kostnað og með stoð í öðrum gögnum málsins, nemur samtals 1.086.676 krónum. Þá greiði ákærði þóknun skipaðs verjanda síns, Vilhjálms Hans Vilhjálmssonar   lögmanns,   sem   þykir   hæfilega   ákveðin   189.720   krónur   að meðtöldum virðisaukaskatti.

    Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Sindri Freyr Jensson, sæti fangelsi í níu mánuði. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja. Ákærði sæti upptöku á 8 töflum af MDMA.

Ákærði greiði 1.276.396 krónur í sakarkostnað, þar með talda þóknun skipaðs verjanda   síns,   Vilhjálms   Hans   Vilhjálmssonar   lögmanns,   189.720   krónur   að meðtöldum virðisaukaskatti.

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir