Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 24. júní 2019.
Mál nr. S-185/2019:
Ákæruvaldið
(Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Sonju Eggertsdóttur
I
(Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Sakarkostnaður. Umferðarlagabrot. Upptaka.
Útdráttur
Ákærða sakfelld fyrir umferðarlagabrot og vörslur fíkniefna og dæmd til fjögurra mánaða fangelsisvistar.
I
Mál þetta, sem dómtekið var 18. júní 2019, höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru 5. mars 2019 á hendur Sonju Eggertsdóttur, kt. 000000-0000, Tröllakór 13-15, Kópavogi, fyrir eftirtalin brot;
1. „Fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 30. nóvember 2017 að Tröllakór 13-15 haft í vörslum sínum 682,30 g af kannabislaufum, 76,60 g af kannabisplöntuhlutum, 11,78 g af maríhúana og 44 kannabisplöntur, sem ákærða hafði ræktað um nokkurt skeið fram til þess dags. M. 007-2017-074010
- Umferðarlagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 4. júlí 2018 ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti um Hraunbæ, Reykjavík, uns lögregla stöðvaði aksturinn. M. 007-2018-048022
- Umferðarlagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 16. ágúst 2018 ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti vestur Miklubraut, Reykjavík, uns lögregla stöðvaði aksturinn til móts við Kringluna. M. 007-2018-056622
- Umferðarlagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 14. nóvember 2018 ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti um Reykjanesbraut á vegarkafla við Nýbýlaveg, Kópavogi, þegar lögregla hafði afskipti af ákærðu. M. 007-2018-079390
- Fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 22. nóvember 2018 að Tröllakór 13-15 haft í vörslum sínum 33,67 g af maríhúana, 0,84 g af amfetamíni og 0,58 g af tóbaksblönduðu kannabisefni sem lögregla fann við leit á heimili ákærðu. M. 007-2018-080474
Teljast brot í 2.-4. lið varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 en brot í 1. og 5. lið teljast varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006. Krafist er upptöku á 682,30 g af kannabislaufum, 76,60 g af kannabisplöntuhlutum, 45,45 g af maríhúana, 44 kannabisplöntum, 0,58 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, 205,24 g af óþekktu hvítu efni og 23 töflum, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Þá er krafist upptöku á fjórum gróðurhúsalömpum, tveimur gróðurtjöldum, fjórum loftblásurum, einni loftsíu, tveimur tímarofum og barka sem lögregla lagði hald á samkvæmt heimild í 7. mgr. 5. gr. sömu laga.“
Ákærða kom fyrir dóminn og játaði skýlaust brot sín. Jafnframt féllst hún á upptökukröfu ákæruvaldsins, en mótmælti því hins vegar að henni yrði gert að greiða sakarkostnað vegna rannsóknar lögreglu, alls að fjárhæð 237.677 krónur. Ákvað dómari að málið yrði flutt sérstaklega um þann þátt málsins og var svo gert 18. júní 2019. Að því búnu og eftir að sækjandi og verjandi höfðu tjáð sig stuttlega um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga var málið dómtekið.
II
Eins og áður segir hefur ákærða skýlaust játað brot sín og eru þau rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Krefst hún vægustu refsingar sem lög framast leyfa og að sakarkostnaður verði allur greiddur úr ríkissjóði, þ.m.t. og þá sér í lagi kostnaður vegna lögreglurannsóknar, alls að fjárhæð 237.677 krónur. Byggist krafa hennar á því að engin þörf hafi verið á svo viðamikilli rannsókn á þeim plöntum og efnum sem tilgreind eru í 1. lið ákærunnar og raunin varð, enda hafi legið fyrir hvaða plöntur og efni var um að ræða.
Samkvæmt 1. mgr. 53. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er markmið rannsóknar að afla allra nauðsynlegra gagna til þess að ákæranda sé fært að ákveða að henni lokinni hvort sækja skuli mann til sakar, svo og að afla gagna til undirbúnings málsmeðferð fyrir dómi. Þá segir í 2. mgr. sömu greinar að þeir sem rannsaki sakamál skuli vinna að því að hið sanna og rétta komi í ljós og gæta jafnt að þeim atriðum sem horfa til sýknu og sektar. Loks er mælt fyrir um það í 1. mgr. 86. gr. sömu laga að lögreglan leiti til sérfróðra manna þegar þörf á sérfræðilegri skoðun eða rannsókn til að upplýsa mál. Í máli þessu liggur fyrir verkbeiðni lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu til rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði HÍ um rannsókn og efnagreiningu á nokkrum kannabisplöntum sem lögreglan lagði hald á við húsleit á heimili ákærðu 30. nóvember 2017. Matsgerð rannsóknastofunnar liggur og fyrir, ásamt reikningi vegna vinnu þeirra starfsmanna sem að rannsókninni unnu, alls að fjárhæð 237.677 krónur. Að áliti dómsins var rannsókn þessi nauðsynlegur þáttur í undirbúningi þess að ákvörðun var tekin um málshöfðun á hendur ákærðu, en ekki síður liður í því að hið sanna og rétta kæmi í ljós. Útgjöld vegna þeirrar rannsóknar teljast til sakarkostnaðar samkvæmt c-lið 1. mgr. 233. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, og verður ákærðu í samræmi við úrslit málsins gert að greiða þann kostnað, sbr. 1. mgr. 235. gr. sömu laga.
Ákærða er fædd í [...]. Samkvæmt sakavottorði hefur henni alls fimm sinnum verið gerð refsing frá árinu 2016, þar af þrisvar sinnum fyrir að hafa ekið bifreið svipt ökurétti, og tvívegis fyrir að aka bifreið undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Í ljósi þess magns fíkniefna sem ákærða hafði í vörslum sínum og lýst er í ákæru, svo og að því gættu að í máli þessu er ákærða sakfelld fyrir að hafa þrisvar sinnum ekið bifreið svipt ökurétti, þykir refsing hennar hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði. Við ákvörðun refsingar hefur einnig verið tekið tillit til þess að ákærða játaði skýlaust brot sín.
Eins og áður segir féllst ákærða á upptökukröfu ákæruvaldsins og verður því orðið við kröfunni eins og nánar greinir í dómsorði. Loks verður ákærðu gert að greiða allan sakarkostnað málsins, en þar er um að ræða málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærðu, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 235.600 krónur, þóknun verjanda ákærðu á rannsóknarstigi, Snorra Sturlusonar lögmanns, 66.960 krónur, hvort tveggja að meðtöldum virðisaukaskatti, auk annars sakarkostnaðar að fjárhæð 237.677 krónur.
Ingimundur Einarsson héraðsdómari kvað upp dóminn.
D ó m s o r ð:
Ákærða, Sonja Eggertsdóttir, sæti fangelsi í fjóra mánuði. Upptæk skulu gerð til ríkissjóðs 682,30 g af kannabislaufum, 76,60 g af kannabisplöntuhlutum, 45,45 g af maríhúana, 44 kannabisplöntur, 0,58 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, 205,24 g af óþekktu hvítu efni og 23 töflur, auk fjögurra gróðurhúsalampa, tveggja gróðurtjalda, fjögurra loftblásara, loftsíu, tveggja tímarofa og barka. Ákærða greiði alls 540.237 krónur í sakarkostnað, þar af 235.600 krónur í málsvarnarlaun til skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, og 66.960 krónur í þóknun til verjanda ákærðu á rannsóknarstigi, Snorra Sturlusonar lögmanns.
Ingimundur Einarsson