Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 20. júní 2016.
Mál nr. S-193/2016:
Ákæruvaldið
(Guðmundur Þ. Steinþórsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Tânia Sofia Santos Lopez
(Jóhanna Sigurjónsdóttir hdl)
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Skilorð. Upptaka.
Útdráttur
Ákærða sakfelld fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni með því að hafa staðið að innflutningi á 45,95 g af kókaíni og 273,03 g af hassi. Refsing ákærðu ákveðin þriggja mánaða fangelsi en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár.
„fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa, að kvöldi mánudagsins 25. apríl 2016, staðið að innflutningi á samtals 45,95 g af kókaíni, sem hafði að meðaltali 38% styrkleika, og 273,03 g af hassi sem hvoru tveggja var ætlað til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Fíkniefnin flutti ákærða til landsins sem farþegi með flugi FI-455 frá London, Bretlandi, falin í líkama sínum í samtals 51 pakkningu.
Telst háttsemi þessi varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og auglýsingu nr. 232/2001.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Þá er þess krafist að gerð verði upptæk framangreind 45,95 g af kókaíni og 273,03 g af hassi, samkvæmt heimild í 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 10/1997 og 68/2001, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.“
Kröfur ákærðu í málinu eru þær að henni verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa, sem öll verði bundin skilorði, og að gæsluvarðhaldsvist sem ákærða sætti frá 26. apríl 2016 til 3. maí sl. verði dregin frá þeirri refsingu sem ákveðin verði að fullri dagatölu. Þá krefst ákærða þess að allur kostnaður sakarinnar greiðist úr ríkissjóði, þar með talin hæfileg þóknun til handa skipuðum verjanda hennar.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var málið tekið til dóms við þingfestingu þess 15. júní sl. án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Niðurstaða:
Ákærða játaði sakargiftir samkvæmt ákæru lögreglustjóra við þingfestingu máls þessa. Játning ákærðu samrýmist gögnum málsins. Brot hennar telst því sannað og er það réttilega heimfært til refsiákvæða í ákæru.
Ákærðu til málsbóta horfir skýlaus játning hennar. Þá nýtur engra haldbærra gagna um að ákærða hafi áður gerst sek um refsiverða háttsemi. Til grundvallar þykir mega leggja að aðkoma ákærðu að málinu hafi afmarkast við flutning fíkniefnanna hingað til lands, svo sem hún hefur haldið fram. Þá reyndist styrkleiki þeirra tæplegu 46 gramma af kókaíni sem ákærða var með innvortis vera 38%, sbr. framlagða matsgerð Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, dagsetta 24. maí 2016. Samkvæmt öllu þessu og að broti ákærðu að öðru leyti virtu þykir refsing hennar, í ljósi dómaframkvæmdar, réttilega ákveðin fangelsi í þrjá mánuði. Eins og hér stendur á þykir mega fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Komi hins vegar til fullnustu refsingarinnar skal til frádráttar henni koma gæsluvarðhald sem ákærða sætti frá 26. apríl 2016 til 3. maí 2016 að fullri dagatölu.
Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilgreindra lagaákvæða í ákæru verða gerð upptæk þau 45,95 grömm af kókaíni og 273,06 grömm af hassi sem ákærða var með í vörslum sínum við komuna til landsins 25. apríl 2016.
Á grundvelli sakfellingar ákærðu, sbr. 1. mgr. 218. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður henni gert að greiða allan sakarkostnað málsins. Ákærða dæmist því til að greiða sakakostnað samkvæmt framlögðu yfirliti lögreglustjóra, samtals 159.598 krónur. Ákærða greiði einnig þóknun skipaðs verjanda síns, Jóhönnu Sigurjónsdóttur hdl., sem eftir umfangi málsins og að teknu tilliti til tímaskýrslu lögmannsins þykir hæfilega ákveðin að virðisaukaskatti meðtöldum, vegna vinnu verjanda á rannsóknarstigi málsins og eftir höfðun þess hér fyrir dómi, svo sem í dómsorði greinir. Ákærða greiði enn fremur útlagðan ferðakostnað verjanda, 23.540 krónur. Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð:
Ákærða, Tânia Sofia Santos Lopez, sæti fangelsi í þrjá mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Komi til fullnustu refsingarinnar skal til frádráttar henni koma gæsluvarðhald sem ákærða sætti frá 26. apríl 2016 til 3. maí 2016 að fullri dagatölu.
Ákærða sæti upptöku á 45,95 grömmum af kókaíni og 273,03 grömmum af hassi.
Ákærða greiði 960.618 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda síns, Jóhönnu Sigurjónsdóttur hdl., 777.480 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum, og útlagðan ferðakostnað verjanda, 23.540 krónur.
Kristinn Halldórsson