Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 28. nóvember 2017.
Mál nr. E-1052/2016:
Þrotabú Procura ráðgjafar ehf.
(Guðrún Lilja Sigurðardóttir hdl)
gegn
Guðmundi Andra Skúlasyni
(Ómar R. Valdimarsson hdl)
Lykilorð
Einkahlutafélög. Gjaldþrotaskipti. Skuldajöfnuður.
Útdráttur
Þrotabú höfðaði mál gegn fyrrverandi eigendum félagsins til heimtu skulda.
Mál þetta var þingfest 16. nóvember 2016 og tekið til dóms 31. október sl. Stefnandi er þrotabúi Procura ráðgjafar ehf., Hlíðarsmára 17, Kópavogi, en stefndi er Guðmundur Andri Skúlason, Ásakór 12, Kópavogi.
Dómkröfur stefnanda eru þær að stefnda verði gert að greiða stefnanda 17.049.236 krónur, ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 6. gr. laga nr. 38/3001um vexti og verðtryggingu af 4.252.654 frá 1. janúar 2015 til 2. desember 2015 og af 17.049.236 krónum frá 2. desember 2016 til greiðsludags. Þá krefst stefnandi málskostnaðar að mati dómsins eða samkvæmt málskostnaðaryfirliti.
Af hálfu stefnda er aðallega krafist sýknu en til vara að stefnukröfur verði lækkaðar. Þá er krafist málskostnaðar úr hendi stefnanda.
I
Með málsókn þessari leitast stefnandi eftir að endurheimta fjármuni sem Procura ráðgjöf ehf. greiddi stefnda á árunum 2013-2015. Byggir stefnandi á því að stefnda beri að endurgreiða stefnanda fjármunina þar sem umræddar greiðslur hafi verið í andstöðu við reglur XII. kafla laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög. Samkvæmt þeim sé einungis heimilt að greiða fé til hluthafa þegar um sé að ræða úthlutun arðs, endurgreiðslu vegna lækkunar hlutafjár eða varasjóðs eða vegna félagsslita en ekki hafi verið um slíkt að ræða í máli þessu.
Málavextir eru að öðru leyti þeir að með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness uppkveðnum 10. desember 2015 var bú Procura ráðgjafar ehf. tekið til gjaldþrotaskipta og sama dag var skipaður skiptastjóri í búinu. Innköllun birtist í fyrra sinn í Lögbirtingablaðinu þann 16. desember 2015 og kröfulýsingarfrestur rann út 16. febrúar 2016. Fyrsti skiptafundur var haldinn þann 4. mars 2016. Frestdagur við skiptin er 28. október 2015. Samkvæmt kröfuskrá nema lýstar kröfur í búið samtals 43.681.121 krónu.
Starfsemi Procura ráðgjafar ehf. fólst aðallega í milligöngu milli lántaka og lögmanns um málarekstur lántaka gegn Lýsingu hf. vegna gengistryggðra lána. Skráður tilgangur félagsins var sala fasteigna gegn þóknun, rekstur húsfélaga, fjármála- og lögfræðiráðgjöf til einstaklinga og fyrirtækja ásamt ráðgjöf við skuldauppgjör, endurfjármögnun og fleira. Stefndi var framkvæmdastjóri og prókúruhafi Procura ráðgjafar ehf. ásamt því að sitja í stjórn félagsins. Hann var jafnframt stofnandi félagsins og eigandi að öllu hlutafé þess samkvæmt ársreikningi 2014. Stefnandi getur þess þó að við skýrslutöku í desember 2015 hafi stefndi fullyrt að hann ætti 50% eignarhlut á móti Sigrúnu Hafsteinsdóttur, eiginkonu sinni. Sigrún var stjórnarformaður félagsins.
Stefnandi segir að við skoðun á bókhaldi, bankareikningum og kreditkortayfirlitum þrotabúsins hafi komið í ljós fjölmargar úttektir af fjármunum félagsins í þágu stefnda, hvort sem var í formi beinna millifærslna af reikningi félagsins á persónulegan reikning stefnda eða í formi greiðslu félagsins á persónulegum útgjöldum stefnda. Þar að auki hafi komið í ljós mikill fjöldi af áhöldum og tækjum sem höfðu verið gjaldfærð í bókhaldi félagsins en hafi ekki verið til staðar í búinu við upphaf skipta.
Dagana 17. og 18. desember 2015 hafi farið fram skýrslutaka af stefnda vegna gjaldþrotaskiptanna. Í skýrslutökunni hafi stefndi sagt ástæðuna fyrir gjaldþroti félagsins hafa verið drátt á uppgjöri málskostnaðar vegna þeirra mála sem félagið hafði milligöngu um. Hafi hann sagt að munað hafi mjög litlu að hann óskaði eftir gjaldþrotaskiptum á félaginu áramótin 2014-2015. Aðspurður að því hvort stefndi skuldaði félaginu hafi hann svarað því neitandi. Þá hafi stefndi verið spurður að því í skýrslutökunni hvort fjármunir félagsins hefðu verið notaðir að einhverju leyti til þess að greiða fyrir einkaneyslu hans eða persónulegan kostnað og hvernig það hefði verið meðhöndlað í bókhaldi félagsins. Hafi stefndi svarað á þann veg að slíkt hefði komið fyrir en verið óverulegt. Þá hafi komið fram af hálfu stefnda að slíkt væri fært á viðskiptamannareikning hans í bókhaldinu og ef hann skuldaði félaginu eitthvað þá kæmi það fram í bókhaldi félagsins. Í skýrslutöku hafi stefndi einnig verið spurður um umtalsverðar fjárhæðir sem komið hefði í ljós að greiddar voru stefnda frá maí 2015 fram til úrskurðardags. Kvað stefndi umræddar greiðslur hafa verið færðar á hans viðskiptareikning og að stærstum hluta væri um að ræða laun.
Rétt sé að geta þess að með tveimur kaupsamningum, báðum dagsettum 30. desember 2015, keypti stefndi af stefnanda annars vegar ökutækið Mercedes, með skráningarnúmerið PSY-26 og hins vegar tiltekið lausafé, þ.e. skrifstofubúnað sem var til staðar á starfsstöð Procura ráðgjafar ehf. við skoðun fulltrúa skiptastjóra hinn 15. desember 2015, nánar tiltekið borð, stóla, hillur og Dell-tölvu í móttöku. Í kaupsamningnum sem lýtur að umræddu lausafé komi sérstaklega fram að þrjár Mactölvur, sem og sófi í anddyri, er voru á starfsstöð Procura ráðgjafar ehf. við skoðun fulltrúa skiptastjóra, væri undanskilið kaupunum.
Skoðun skiptastjóra á bókhaldi Procura ráðgjafar ehf. og framburður stefnda í skýrslutöku hafi vakið grun skiptastjóra um að óheimilar úttektir af fjármunum félagsins hefðu átt sér stað og hafi hann því falið endurskoðendaskrifstofunni Ernst & Young hf. að framkvæma rannsókn á bókhaldi félagsins. Í því sambandi sé rétt að geta þess að þegar Procura ráðgjöf ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta hafi bókhald félagsins aðeins verið fært að hluta vegna ársins 2015. Þá hafi verið ljóst að hvorki bankareikningar né kreditkortayfirlit höfðu verið stemmd af í bókhaldinu vegna þess árs. Af þessum ástæðum hafi það einnig falist í skoðun Ernst & Young hf. að kanna óbókaðar færslur á bankareikningi félagsins og kreditkorti þess. Líkt og síðar verði rakið hafi rannsókn Ernst & Young hf. staðfest grunsemdir skiptastjóra. Ernst & Young hf. hafi ritað skýrslu um niðurstöður rannsóknarinnar, dags. 24. júní 2016, þar sem fram komi að stefndi hafi skuldað félaginu umtalsverðar fjárhæðir samkvæmt stöðu á viðskiptamannareikningi, auk þess sem stefndi hefi þegið greiðslur frá Procura ráðgjöf ehf. sem höfðu ekki verið færðar í bókhaldinu. Þá hafi félagið greitt margvíslegan persónulegan kostnað fyrir stefnda sem ekki hafði verið færður í bókhald félagsins. Loks væri bókfærður nokkur fjöldi áhalda og tækja sem ekki voru til staðar í búinu. Staðfesti skýrsla Ernst & Young hf. að þær upplýsingar sem stefndi gaf í fyrrgreindri skýrslutöku hafi að hluta verið rangar. Í framhaldi af skýrslutöku hafi átt sér stað samskipti milli fulltrúa skiptastjóra og stefnda þar sem stefndi hafi verið inntur eftir margvíslegum upplýsingum um málefni þrotabúsins, meðal annars þau atriði sem séu til umfjöllunar í máli þessu. Hins vegar hafi fátt verið um svör af hálfu stefnda og hann ekki sinnt fyrirspurnum fulltrúa skiptastjóra nema að takmörkuðu leyti. Vísist um þetta til tölvupóstsamskipta á tímabilinu frá 20. janúar 2016 til 19. júlí 2016.
Hinn 6. september 2016 hafi skiptastjóri sent ábyrgðarbréf til stefnda þar sem stefndi hafi verið krafinn um greiðslu á skuld að fjárhæð samtals 9.773.405 krónur vegna framangreindra atriða á grundvelli 79. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög. Hafi fylgt afrit af skýrslu Ernst & Young hf. með bréfinu. Hafi stefndi kvittað fyrir móttöku bréfsins hinn 8. september 2016. Engin greiðsla hafi borist skiptastjóra og stefndi hafi engin viðbrögð sýnt vegna bréfsins. Sé skiptastjóra því nauðsynlegt að höfða mál þetta til innheimtu framangreindrar skuldar. Þess beri að geta að samhliða málshöfðun þessari muni stefnandi höfða mál gegn Sigrúnu Hafsteinsdóttur, eiginkonu stefnda, til innheimtu á skuld að fjárhæð 1.120.000 krónur ásamt dráttarvöxtum á sama grundvelli og mál þetta sé rekið.
II
Stefndi gerir neðangreindar athugasemdir við málavaxtalýsingu stefnanda. Hið rétta sé að við skýrslutöku hjá skiptastjóra 17. og 18 desember 2015 hafi skiptastjóra verið gerð grein fyrir að félagið hefði verið í umtalsverðri skuld við stefnda og eiginkonu hans þar sem ljóst væri að ganga þyrfti að tryggingum sem stóðu til tryggingar persónulegum ábyrgðum stefnda og eiginkonu hans, Sigrúnar Hafsteinsdóttur. Samtals hafi verið um að ræða persónulegar ábyrgðir að fjárhæð 11.851.638 krónur.
Þá hafi skiptastjóra á fundi á starfsstöð stefnanda þann 15. desember 2015 verið gerð grein fyrir að kaupsamningur hefði snemma á árinu verið gerður milli Procura ráðgjafar ehf. og stefnda um sölu á húsgögnum stefnda til stefnanda. Fram komi í téðum kaupsamningi nákvæm sundurliðun á þeim húsgögnum sem um ræddi og hvernig greitt hafi verið fyrir þau húsgögn, m.a. með skrifstofubúnaði sem hafi verið í eigu Procura ráðgjafar ehf. Stefnanda hafi einnig á fundum dagana 17. og 18. desember 2015 verið gerð grein fyrir því að samkvæmt ráðleggingum frá færsluaðila bókhalds, Virtus ehf., bæri að líta á fyrrverandi eigendur félagsins, þ.e. stefnda og eiginkonu hans, sem einn og sama aðilann við uppgjör og útreikninga á stöðu á viðskiptamannareikningi eigenda. Með vísan til framangreinds taldi stefndi fráleitt að hann eða eiginkona hans skulduðu stefnanda og hafi spurningu þar að lútandi því eðlilega verið svarað neitandi á téðum fundi sem stefnandi kjósi að kalla skýrslutöku.
Þótt stefndi gerði stefnanda ljóst að stefnandi skuldaði stefnda verulegar fjárhæðir, sem féllu á stefnda við gjaldþrot félagsins, hafi stefnda jafnframt verið ljóst að þær fjárhæðir fengi hvorki hann né eiginkona hans endurheimtar að svo komnu máli. Stefndi hafi boðist til að kaupa þá hluti af stefnanda sem stefnandi treysti sér ekki til að koma í raunhæft verð. Hafi verið þannig frá því gengið þann 15. desember 2015 að stefndi keypti það lausafé sem þá var enn í eigu stefnanda, enda hafi skoðunarmenn stefnanda tjáð stefnda á þeim fundi að slíkt væri stefnanda verðlaust. Hafi því verið gerður kaupsamningur um framangreint lausafé þann 30. desember 2015 og stefndi greitt stefnanda 150.000 krónur auk virðisaukaskatts. Sama dag hafi einnig verið gerður kaupsamningur milli aðila um kaup stefnda á bifreiðinni PS-Y26 af stefnanda þar sem áður hafði komið fram vilji stefnda til kaupanna og áhyggjur stefnanda af því að ekki fengist raunhæft verð fyrir bifreiðina í þvingaðri sölu. Umsamið kaupverð hafi verið greitt að fjárhæð 7.900.000 krónur.
Í tölvupóstsamskiptum aðila komi fram að stefndi hafi svarað athugasemdum stefnanda bréflega þann 21. júní 2015 en áður hafi stefndi lýst sig ósáttan við skýrslu sem gerð var í kjölfar skýrslutöku 17. og 18. desember. Hafi stefndi talið að skýrslan lýsti ekki því sem fram hafi farið á milli aðila og í hana vantaði veigamikil atriði, svo sem varðandi framangreindar ábyrgðir stefnda á fjárhag Procura ráðgjafar ehf. Stefnandi hafi ekki séð sér fært að senda leiðréttar skýrslur til stefnda né hafi stefnandi tekið til greina þær athugasemdir sem fram voru settar í framangreindum tölvupósti stefnda frá 21. júní.
Þá sé á það að líta að þótt félaginu væri skipaður skiptastjóri þann 15. desember hafi hann ekki séð ástæðu til að afla eða taka til skoðunar þau gögn sem þá voru á starfsstöð félagsins. Þegar húsnæðið hafi verið tekið undir kvikmyndaframleiðslu á kvikmyndinni Grimmd í byrjun janúar 2016 hafi þar verið fjöldi skjala og gagna sem tilheyrðu Procura ráðgjöf ehf. Meðal annars hafi þar verið um sex hillumetrar af skjölum í gagnageymslu en ekki sé vitað hve mikið af því hafi glatast á þeim tíma sem kvikmyndatökur stóðu yfir. Einhverju hafi stefndi þó náð að bjarga í skjalakassa án þess þó að stefnandi hafi sýnt því áhuga að taka það til skoðunar.
Þegar stefnda hafi borist ábyrgðarbréf frá stefnanda þann 8. september 2016 hafi stefndi þegar hafist handa við að afla þeirra gagna sem augljóst var að stefnandi lét hjá líða að taka til skoðunar og hafi þeirri gagnaöflun ekki verið lokið þegar stefna þessi var birt þann 7. nóvember 2016. Að þeirri gagnaöflun lokinni sé ljóst að stefnandi ofreikni kröfur sínar um 25.991.093 krónur og sé hér sýnt fram á að í stað þess að stefndi og eiginkona hans, Sigrún Hafsteinsdóttir, skuldi stefnanda umkrafða stefnufjárhæð, hafi stefnandi skuldað stefnda og eiginkonu hans 7.821.857 krónur þegar félagið Procura ráðgjöf ehf. var úrskurðað gjaldþrota.
III
Stefnandi segir að tilgangur með málshöfðun þessari sé að endurheimta fjármuni sem greiddir hafi verið til stefnda frá Procura ráðgjöf ehf. á árunum 2013- 2015. Byggir stefnandi á því að stefnda beri að endurgreiða stefnanda fjármunina þar sem umræddar greiðslur hafi verið í andstöðu við reglur XII. kafla laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög. Samkvæmt þeim sé einungis heimilt að greiða fé til hluthafa þegar um sé að ræða úthlutun arðs, endurgreiðslu vegna lækkunar hlutafjár eða varasjóðs eða vegna félagsslita en ekki hafi verið um slíkt að ræða í máli þessu.
Byggir stefnandi aðallega á því að í öllum tilvikum hafi verið um að ræða óheimilar lánveitingar í skilningi 1. mgr. 79. gr. um einkahlutafélög sem stefnda beri að endurgreiða stefnanda ásamt dráttarvöxtum með vísan til 4. mgr. 79. gr. sömu laga. Ákvæðið feli í sér bann við hvers kyns lánveitingum til hluthafa, stjórnarmanna eða framkvæmdastjóra einkahlutafélags, að undanskildum venjulegum viðskiptalánum. Telur stefnandi að hvort sem um sé að ræða skuld samkvæmt viðskiptamannareikningi, beinar millifærslur fjármuna, greiðslu á persónulegum kostnaði eða ráðstöfun lausafjár til stefnda, sé í öllum tilvikum um að ræða lánveitingu í skilningi ákvæðisins. Stefnandi byggir á því að í engu tilviki hafi getað verið um að ræða venjulegt viðskiptalán, ekki síst þegar litið sé til starfsemi félagsins og eðlis þeirra lánveitinga sem um ræðir.
Verði ekki fallist á að um hafi verið að ræða óheimilar lánveitingar í skilningi 79. gr. laga nr. 138/1994 byggir stefnandi í öllu falli á því að um hafi verið að ræða greiðslur til hluthafa sem hafi verið í andstöðu við ákvæði laganna og að þær beri að endurgreiða með vöxtum á grundvelli 77. gr. Verði ekki fallist á að umrædda fjármuni beri að endurgreiða á grundvelli framangreindra ákvæða laga nr. 138/1994 styðjist endurgreiðslukrafa stefnanda til vara við meginreglu kröfuréttar um efndir fjárskuldbindinga. Bókfærð skuld samkvæmt viðskiptamannareikningi Við töku bús Procura ráðgjafar ehf. til gjaldþrotaskipta hafi bókfærð skuld stefnda við félagið numið samtals 4.966.276 krónum. Við skoðun á bókhaldi Procura ráðgjafar ehf. hafi Ernst & Young hins vegar gert eina leiðréttingu á reikningnum þar sem skuldin hafi verið lækkuð um 618.907 krónur en þar hafi verið um að ræða innborgun vegna launa stefnda. Leiðrétt staða á bókfærðri skuld stefnanda við Procura ráðgjöf ehf. við töku bús þess til gjaldþrotaskipta hafi því samtals verið 4.347.369 krónur.
Þessi liður í kröfu stefnanda sé að mestu byggður á viðskiptamannareikningi stefnda hjá Procura ráðgjöf ehf. Stefndi hafi sjálfur verið eigandi, framkvæmdastjóri, stjórnarmaður og prókúruhafi Procura ráðgjafar ehf. og hafi því haft greiðan aðgang að bókhaldi félagsins og þeim aðila sem annaðist bókhaldið. Þegar bú Procura ráðgjafar ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta hafi stefndi ekki gert reka að því að leiðrétta viðskiptamannareikninginn, hafi verið efni til þess. Þá hafi stefndi ekki gert reka að því að sýna fram á að skuldin væri greidd eða af öðrum ástæðum niður fallin. Stöðu sinnar vegna beri stefndi ábyrgð á því að bókhald félagsins sé í góðu horfi og í samræmi við þær kröfur sem séu gerðar í lögum um bókhald nr. 145/1994, sbr. 5. gr. laganna. Með sama hætti hafi stefnda borið á grundvelli laga um einkahlutafélög að annast um að nægilegt eftirlit væri með bókhaldi félagsins. Af þessum sökum telur stefnandi að stefndi verði að bera hallann af hvers kyns bókhaldsóreiðu og leggja verði bókfærða skuldastöðu samkvæmt bókhaldi félagsins til grundvallar þessum kröfulið. Þar sem stefndi hafi ekki greitt framangreinda skuld samkvæmt viðskiptamannareikningi, þrátt fyrir innheimtutilraunir stefnanda, sé stefnanda nauðugur sá kostur að höfða mál þetta til innheimtu skuldarinnar. Stefnandi telur framangreinda skuld stefnda samkvæmt viðskiptamannareikningi ekki fela í sér annað en lánveitingu félagsins til stefnda, sem sé óheimil samkvæmt 79. gr. laga nr. 138/1994. Séu færslur í viðskiptamannabókhaldi fyrirtækja í eðli sínu lán til viðkomandi aðila og endurspegli staða á viðskiptamannareikningi skuld viðkomandi við félagið hverju sinni. Óbókaðar millifærslur af bankareikningi Procura ráðgjafar ehf. Á árinu 2015 hafi verið gerðar nokkrar millifærslur af reikningi Procura ráðgjafar ehf. nr. [...] til stefnda en þær höfðu ekki verið færðar í bókhaldi félagsins er það var tekið til gjaldþrotaskipta. Um sé að ræða eftirfarandi millifærslur:
| Dagsetning | Fjárhæð |
|---|---|
| 07.01.2015 | 20.000 |
| 16.01.2015 | 240.000 |
| 09.02.2015 | 100.000 |
| 20.04.2015 | 500.000 |
| 21.04.2015 | -100.000 |
| 08.05.2015 | 350.000 |
| 18.05.2015 | 350.000 |
| 21.05.2015 | 1.212.381 |
| 21.05.2015 | 900.000 |
| 26.05.2015 | 225.000 |
| 26.05.2015 | 665.000 |
| 04.06.2015 | 320.000 |
| 16.06.2015 | 1.000.000 |
| 17.07.2015 | 300.000 |
| 02.09.2015 | 450.000 |
| 08.09.2015 | 250.000 |
| 09.10.2015 | 300.000 |
| 14.10.2015 | 250.000 |
| Samtals | 7.332.381 |
Hafi óbókaðar millifærslur til stefnda af bankareikningi Procura ráðgjafar ehf. samtals numið 7.332.381 krónu. Eins og áður segi hafi stefndi verið eigandi, framkvæmdastjóri, stjórnarmaður og prókúruhafi félagsins og hafi því haft óhindrað aðgengi að bankareikningum félagsins. Þær millifærslur sem hér ræðir hafi farið fram í andstöðu við ákvæði laga um einkahlutafélög og beri því að endurgreiða með dráttarvöxtum svo sem rakið hafi verið. Í öllu falli beri stefnda að endurgreiða fjármunina til stefnanda á grundvelli meginreglu kröfuréttar um efndir fjárskuldbindinga.
Fullyrðing stefnda við skýrslutöku hjá skiptastjóra, um að greiðslur til stefnda frá félaginu hafi að stærstum hluta verið laun, eigi ekki við rök að styðjast, enda séu greiðslurnar hvorki auðkenndar sem slíkar né færðar í bókhald félagsins
| Dagsetning | Skýring á bankayfirliti | Fjárhæð |
|---|---|---|
| 23.03.2015 | L&H | 2.238 |
| 30.03.2005 | Bónus | 18.504 |
| 09.04.2015 | Hjart | 20.900 |
| 09.04.2015 | Engin skýring | 11.753 |
| 09.04.2015 | Engin skýring | 3.390 |
| 21.04.2015 | Glamú | 16.000 |
| 22.04.2015 | Marta | 18.746 |
| 22.04.2015 | Marta | 18.746 |
| 24.04.2015 | Espri | 10.645 |
| 24.04.2015 | Next | 7.104 |
| 24.04.2015 | Hagkaup | 9.158 |
| 24.04.2015 | Bónus | 10.945 |
| 24.04.2015 | Next | 10.480 |
| 27.04.2015 | Húsas | 4.487 |
| 04.05.2015 | Húsas | 4.407 |
| 04.05.2015 | Lækna | 3.100 |
| 04.05.2015 | Lyfja | 2.615 |
| 31.08.2015 | Hagkaup | 10.899 |
| 31.08.2015 | Línan | 46.170 |
| 08.09.2015 | Háskóli | 207.500 |
| Samtals | 437.787 |
sem laun. Þá séu fjárhæðir greiðslnanna ekki í samræmi við laun stefnda hjá félaginu. Kaup á vörum og þjónustu með debetkorti Procura ráðgjafar ehf. Við yfirferð Ernst & Young hf. á bankareikningi félagsins hafi komið í ljós færslur vegna kaupa á vörum og þjónustu sem teljist að mati stefnanda vera persónulegur kostnaður stefnda. Um sé að ræða eftirfarandi færslur:
Í skýrslu Ernst & Young hf., sem hafi að geyma niðurstöður bókhaldsrannsóknarinnar, komi fram að flestar ofangreindar færslur eigi það sameiginlegt að engir reikningar séu fyrir hendi í bókhaldi Procura ráðgjafar ehf. fyrir þeim. Stefnandi byggir á því að ofangreindar færslur, samtals að fjárhæð 437.787 krónur, séu tilkomnar vegna persónulegra útgjalda stefnda. Líkt og að framan sé rakið beri stefndi ábyrgð á því að bókhald félagsins sé í góðu horfi og í samræmi við þær kröfur sem séu gerðar í lögum um bókhald nr. 145/1994, sbr. 5. gr. laganna. Með sama hætti hafi stefnda borið á grundvelli laga um einkahlutafélög að annast um að nægilegt eftirlit væri með bókhaldi félagsins. Af þessum sökum telur stefnandi að stefndi verði að bera hallann af því að reikningar hafi ekki skilað sér í bókhald félagsins og leggja verði færslur á bankareikningsyfirliti til grundvallar þessum kröfulið.
Einkahlutafélagi sé óheimilt að greiða persónulegan kostnað fyrir hluthafa sína, en sé það gert, byggir stefnandi á því að slíkar færslur feli í raun í sér ólögmæta lánveitingu til viðkomandi hluthafa sem beri að endurgreiða með dráttarvöxtum. Í öllu falli beri stefnda að endurgreiða fjármunina með vísan til almennrar reglu kröfuréttar um efndir fjárskuldbindinga. Kaup á vörum og þjónustu með kreditkorti Procura ráðgjafar ehf. Við yfirferð Ernst & Young hf. á kreditkortayfirlitum félagsins vegna Master Card Corporate Gull kreditkorts númer 558740******8 hafi komið í ljós færslur vegna kaupa á vörum og þjónustu, bæði hér á landi og erlendis, sem teljast að mati stefnanda vera persónulegur kostnaður stefnda. Um er að ræða eftirfarandi færslur:
| Dagsetning | Söluaðili | Fjárhæð |
|---|---|---|
| 02.01.2015 | L&H | 1.386 |
| 05.01.2015 | L&H | 4.787 |
| 12.01.2015 | Nettó Granda | 8.085 |
| 07.01.2015 | John´s Tailor | 75.048 |
| 21.02.2015 | Betra Bak | 21.701 |
| 22.01.2015 | Netflix | 1.075 |
| 24.02.2015 | Lyfja | 4.460 |
| 26.02.2015 | Domus Medica | 850 |
| 04.03.2015 | Leikfélag Reykjavíkur | 7.200 |
| 12.03.2015 | Glamúr hársnyrtistofa | 4.500 |
| 15.03.2015 | Lyfja | 7.158 |
| 16.03.2015 | Lyfja | 6.242 |
| 22.02.2015 | Netflix | 1.080 |
| 07.03.2015 | Paypal EPL giftcard | 8.299 |
| 09.04.2015 | Dansrækt JSB | 2.400 |
| 10.04.2015 | Benetton Sisley | 13.647 |
| 15.04.2015 | Tertugallerí | 9.010 |
| 17.04.2015 | Bónus | 15.352 |
| 17.04.2015 | Lyfja | 5.090 |
| 22.03.2015 | Netflix | 1.694 |
| 28.03.2015 | Paypal EPL giftcard | 16.598 |
| 08.05.2015 | Nova | 100.935 |
| 22.04.2015 | Netflix | 1.665 |
| 12.05.2015 | Easyjet | 53.904 |
| 13.05.2015 | Friendlyrentals | 41.324 |
| 14.05.2015 | Eurostar | 52.272 |
| 16.05.2015 | Itunesgift | 18.008 |
| 03.05.2015 | Paypal EPL giftcrd | 15.928 |
| 24.05.2015 | Heimsferðir | 127.600 |
| 22.05.2015 | Netflix | 1.620 |
| 22.05.2015 | REA | 39.560 |
| 26.05.2015 | Iberia | 67.492 |
| 15.06.2015 | Burger King | 4.325 |
| 15.06.2015 | Caffe Nero | 2.336 |
| 15.06.2015 | Pizza Express | 5.444 |
| 15.06.2015 | Tesco | 9.799 |
| 15.06.2015 | Boutique Orange | 24.529 |
| 02.07.2015 | Kfund – Ratadam | 7.350 |
| 12.07.2015 | Duty free store | 16.594 |
| 23.06.2015 | Netflix | 1.602 |
| 23.06.2015 | Ben and jerrys | 2.818 |
| 29.06.2015 | Paypal EPL giftcrd | 16.101 |
| 30.06.2015 | Mercadona | 4.205 |
| 30.06.2015 | Kiosco | 1.093 |
| 09.07.2015 | Aquopolis Torrevieja | 21.163 |
| 10.07.2015 | Decathon | 13.083 |
| 14.07.2015 | VCI, vitacost | 16.588 |
| 14.07.2015 | SP Dock artisan | 13.817 |
| 19.07.2015 | Paypal EPL giftcrd | 16.454 |
| 21.07.2015 | Paypal Envato | 13.849 |
| 23.07.2015 | IKEA | 23.710 |
| 05.08.2015 | Eymundsson | 5.578 |
| 11.08.2015 | Hagkaup | 84.990 |
| 22.07.2015 | Netflix | 1.650 |
| 09.08.2015 | Paypal EPL giftcrd | 16.328 |
| 20.08.2015 | Mindjet | 52.637 |
| 05.09.2015 | Línan | 6.365 |
| 12.09.2015 | Epal | 4.950 |
| 19.09.2015 | Cintamani | 54.480 |
| 22.08.2015 | Netflix | 1.596 |
| 23.08.2015 | Paypal EPL giftcrd | 15.835 |
| 02.11.2015 | Greiddur MasterCard reikningur | 261.300 |
| 02.12.2015 | Greiddur MasterCard reikningur | 335.050 |
| Samtals | 1.791.589 |
Í skýrslu Ernst & Young hf. komi fram að flestar ofangreindar færslur eigi það sameiginlegt að engir reikningar séu í bókhaldi Procura ráðgjafar ehf. fyrir þeim. Sé ljóst að ofangreindar færslur, samtals að fjárhæð 1.791.589 krónur, séu vegna persónulegra útgjalda stefnda. Líkt og að framan sé rakið hafi stefndi borið ábyrgð á því að bókhald félagsins væri í góðu horfi og í samræmi við þær kröfur sem séu gerðar í lögum um bókhald nr. 145/1994, sbr. 5. gr. laganna. Með sama hætti hafi stefnda borið á grundvelli laga um einkahlutafélög að annast um að nægilegt eftirlit væri með bókhaldi félagsins. Af þessum sökum telur stefnandi að stefndi verði að bera hallann af því að reikningar hafi ekki skilað sér í bókhald félagsins og að því verði að leggja færslur á kreditkortayfirliti til grundvallar þessum kröfulið.
Sem fyrr segi sé einkahlutafélagi óheimilt að greiða persónulegan kostnað fyrir hluthafa sína, en sé það gert byggir stefnandi á því að slíkar færslur feli í raun í sér ólögmæta lánveitingu til viðkomandi hluthafa sem beri að endurgreiða með dráttarvöxtum svo sem áður hefur verið rakið. Í öllu falli beri stefnda að endurgreiða fjármunina með vísan til almennrar reglu kröfuréttar um efndir fjárskuldbindinga. Gjaldfærð áhöld og tæki Loks hafi skoðun á bókhaldi Procura ráðgjafar ehf. leitt í ljós að félagið keypti og gjaldfærði fjölmörg tæki og búnað á árunum 2014 og 2015 sem ekki hafi verið til staðar á starfstöð félagsins að Hlíðasmára 17, Kópavogi, við skoðun þeirra Þórhalls Bergmann hdl., fulltrúa skiptastjóra, og Heimis Jóhannessonar hinn 15. desember 2015. Þessu lausafé hafi ekki verið skilað til þrotabúsins né gerð grein fyrir því hvar það er niðurkomið. Við skoðun fulltrúa skiptastjóra hafi verið fyrir hendi 1 stk. iMac 27“, sem stefndi hafi fullyrt að væri í eigu eiginkonu sinnar, Sigrúnar Hafsteinsdóttur, og 2 stk. iMac 21“ sem stefndi hafi fullyrt að væru í eigu Procura lögmanna ehf. Hafi þess verið krafist af hálfu skiptastjóra að stefndi sýndi fram á eignarhald þessara aðila á umræddum tölvum en ekki hafi verið orðið við því af hálfu stefnda, sbr. tölvupóstsamskipti fulltrúa skiptastjóra og stefnda á tímabilinu 20. janúar til 19. júlí 2016. Þá hafi verið fyrir hendi skrifstofubúnaður og Dell-tölva sem hafi verið selt til Procura fasteignasölu ehf. á 150.000 krónur að viðbættum virðisaukaskatti með kaupsamningi dags. 30. desember 2015. Ekkert af þessu lausafé hafi verið hluti af fyrrnefndum kaupsamningi en sérstaklega sé tilgreint í 1. gr. samningsins að þrjár Mactölvur sem og sófi í anddyri á starfstöð Procura ráðgjafar ehf. væru undskildar kaupunum.
Verðmæti umrædds lausafjár nemi samtals 3.140.110 krónum miðað við kaupverð án/vsk þegar bú félagsins var tekið til gjaldþrotaskipta, sbr. eftirfarandi töflu:
| Áhöld og tæki keypt árið 2014 | |
| iMac 27" | 231.072 |
| iPad mini svartur | 62.304 |
| iMac 21" | 183.259 |
| Xerox ColourQube 8900 | 502.533 |
| iPhone 5s gold | 78.877 |
| iPhone 5s space gray | 91.068 |
| iMac 21" | 175.929 |
| iMac 21" | 175.929 |
| iMac 21" | 175.929 |
| iMac 21" | 175.929 |
| iMac 21" | 175.929 |
| iMac 21" | 175.929 |
| Mac mini server | 139.990 |
| Mgnifica espresso | 63.736 |
| 50" LED sjónvarp | 103.577 |
| Samtals | 2.511.990 |
| Áhöld og tæki keypt árið 2015 | |
| iPhone 6 gold | 97.977 |
| Philips 55" LED | 201.609 |
| Hornsófi m. Legubekk | 184.387 |
| Samsung soundbar | 32.254 |
| Apple airport | 33.382 |
| Rafhlöðuborvél | 36.288 |
| Massavél duetto | 42.223 |
| Samtals | 628.120 |
Samtals verðmæti við töku bús til gjaldþrotaskipta 3.140.110 Þar sem umræddum tækjum hafi ekki verið skilað til skiptastjóra eða gerð grein fyrir því hvar þau séu niðurkomin líti stefnandi svo á að stefndi hafi eignað sér þau og nýtt í eigin þágu. Því beri að líta svo á að um sé að ræða greiðslu verðmæta til stefnda sem sé í andstöðu við ákvæði laga um einkahlutafélög sem beri að endurgreiða með dráttarvöxtum líkt og rakið hefur verið. Í öllu falli beri stefnda að endurgreiða stefnanda andvirði tækjanna með vísan til meginreglu kröfuréttar um efndir fjárskuldbindinga.
- Sundurliðun heildarskuldar Samkvæmt öllu framansögðu sundurliðist dómkrafa stefnanda vegna skuldar stefnda við stefnanda með eftirfarandi hætti:
| Skuldaliður | Fjárhæð |
|---|---|
| Staða viðskiptareiknings skv. færðu bókhaldi | 4.347.369 |
| Millifærslur af bankareikningi Procura | 7.332.381 |
| Færslur af debetkorti Procura í eigin þágu | 437.787 |
| Færslur af kreditkorti Procura í eigin þágu | 1.791.589 |
| Verðmæti gjaldfærðra áhalda og tækja | 3.140.110 |
| Samtals | 17.049.236 |
Rétt sé að geta þess að í skýrslu Ernst & Young hf. sé gerð grein fyrir ógreiddum launum stefnda, samtals að fjárhæð 7.275.831 króna og sú tala dregin frá heildarskuld stefnda við félagið. Stefnandi lítur svo á að umrædd fjárhæð og sé ekki tæk til skuldajöfnunar á móti kröfu stefnanda gagnvart stefnda, enda séu skilyrði 100. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti ekki uppfyllt. Stefnandi telur að Procura ráðgjöf ehf. hafi verið ógjaldfært á þeim tíma er launakröfur þessar stofnuðust, auk þess sem ófrávíkjanleg tímaskilyrði ákvæðisins séu ekki uppfyllt í öllum tilvikum. Þá liggi fyrir að stefndi hafi ekki lýst kröfu í þrotabúið vegna ógreiddra launa. Af þessum sökum sé ekki tekið tillit til ógreiddra launa í framsetningu kröfugerðar stefnanda. Dráttarvextir Líkt og áður greini byggir stefnandi aðallega á því að í öllum framangreindum tilvikum hafi verið um að ræða óheimilar lánveitingar í skilningi 1. mgr. 79. gr. laga nr. 138/1994 sem stefnda beri að endurgreiða stefnanda ásamt dráttarvöxtum með vísan til 4. mgr. 79. gr. sömu laga. Um fjárhæð dráttarvaxtakröfu stefnanda vísast til 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Til einföldunar á kröfugerð stefnanda er aðallega krafist dráttarvaxta af 4.252.654 krónum frá 1. janúar 2015 en það var bókfærð staða á viðskiptamannareikningi stefnda hjá Procura ráðgjöf ehf. um áramótin 2014/2015. Krafist er dráttarvaxta á heildarkröfufjárhæð stefnanda, 17.049.236 krónum, frá 2. desember 2015 til greiðsludags en á því tímamarki var búið að framkvæma allar þær færslur og ráðstafanir sem mál þetta lýtur að, þ.e. millifærslur, debetkortafærslur, kreditkortafærslur og kaup á lausafé. Til vara er krafist dráttarvaxta af stefnufjárhæð frá 6. október 2016 á grundvelli 3. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.
Verði ekki fallist á að um hafi verið að ræða óheimilar lánveitingar í skilningi 79. gr. laga nr. 138/1994 byggir stefnandi í öllu falli á því að um hafi verið að ræða greiðslur til hluthafa sem hafi verið í andstöðu við ákvæði laganna og að þær beri að endurgreiða með vöxtum á grundvelli 77. gr. Verði ekki fallist á að umrædda fjármuni beri að endurgreiða á grundvelli framangreindra ákvæða laga nr. 138/1994 krefst stefnandi endurgreiðslu á umræddum fjármunum á grundvelli meginreglna kröfuréttar um efndir fjárskuldbindinga ásamt dráttarvöxtum frá 6. október 2016 til greiðsludags með vísan til 3. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.
Um lagarök vísar stefnandi aðallega til umfjöllunar um málsástæður hér að framan. Krafa stefnanda byggist aðallega á XII. kafla laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög, einkum 79. gr. og 77. gr. sömu laga. Þá byggir stefnandi til vara á meginreglu kröfuréttar um efndir fjárskuldbindinga. Krafan um dráttarvexti byggist á 4. mgr. 79. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög en um fjárhæð dráttarvaxtakröfu stefnanda vísast til 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Til vara er dráttarvaxtakrafa stefnanda byggð á 3. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, sbr. 6. gr. sömu laga. Krafan um málskostnað styðst við 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Um varnarþing er vísað til 33. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.
IV
Stefndi bendir á að vegna útgefinnar ábyrgðar stefnda og eiginkonu hans, sem eigenda Procura ráðgjafar ehf., til handa félaginu, samtals að fjárhæð 11.851.638 krónur, hafi Procura ráðgjöf ehf. gefið út skuldabréf til stefnda og eiginkonu hans sem hafi staðið til tryggingar framangreindum ábyrgðarskuldbindingum.
Öllum kröfum stefnanda á hendur stefnda sé hafnað. Þegar ljóst var að félagið Procura ráðgjöf ehf. var úrskurðað gjaldþrota hafi jafnframt verið ljóst að framangreindar ábyrgðir féllu á stefnda og eiginkonu hans. Byggir stefndi á því að skuldum stefnanda við stefnda verði skuldajafnað á móti hugsanlegum halla á viðskiptamannareikningi stefnda og eiginkonu hans.
Óskiljanleg sé krafa stefnanda um afhendingu lausafjármuna sem ekki voru í eigu stefnanda, sbr. kaupsamning milli Procura ráðgjafar ehf. og stefnda. Samkvæmt samningnum kaupi Procura ráðgjöf ehf. húsgögn samkvæmt lista að fjárhæð 4.360.000 krónur og greiði fyrir með lausafjármunum samkvæmt lista að fjárhæð 1.136.486 krónur. Mismunur, 3.223.514 krónur, hafi því verið skuld stefnanda við stefnda og hafi átt samkvæmt gögnum máls að færast til lækkunar á skuld á viðskiptamannareikningi.
Xerox ColorQube prentari hafi verið leigður samkvæmt samningi við Advania. Þeim samningi hafi með samkomulagi veri rift og prentara skilað til Advania svo sem einfalt sé að staðreyna með vitnisburði starfsmanna Advania en stefndi hafi ekki aðgang að gögnum stefnanda um það atriði.
Þá sé ekki tekið tillit til tveggja 21,5” iMac-tölva sem afhentar hafi verið starfsmönnum svo sem fram komi í gögnum málsins, samtals að verðmæti 351.858 krónur.
Samkvæmt framangreindu sé ljóst að lausafé sem stefnandi meti að fjárhæð 3.140.110 krónur hafi ekki verið í eigu stefnanda. Þarna sé stefnandi því að gera tilraun til að slá eign sinni á hluti sem hann geti ómögulega átt svo sem sannreynt sé í bókhaldi félagsins en þar sé hvergi getið um kaup stefnanda á umræddum húsgögnum fyrr en með kaupsamningi milli stefnanda annars vegar og stefnda og eiginkonu hans hins vegar. Stefnandi geti því ekki með nokkru móti gert tilkall til téðra lausafjármuna, enda hafi þeim verið afsalað til stefnda með kaupsamningi.
Stefandi líti fram hjá greiðslu stefnda vegna bifreiðakaupa félagsins, samtals að fjárhæð 500.000 krónur, en ótvírætt sé að stefndi greiddi þá fjárhæð af sínum einkareikningi til Öskju fyrir Procura ráðgjöf ehf. Varðandi sundurliðun sem gerð sé af endurskoðendum er því mótmælt að tilgreindar færslur, samtals að fjárhæð 2.229.376 krónur, sem endurskoðendurnir telji persónulegan kostnað, séu persónulegur kostnaður. Ljóst megi vera að um sé að ræða rekstrarvörur til fyrirtækisins, útgjöld vegna starfsmanna og fleira sem augljóslega tengist rekstri fyrirtækisins. Ekki sé óeðlilegt að bókhald sé ekki fært í rauntíma í minni fyrirtækjum en ætla megi að gögn, sem styðji umræddar fjárhæðir, sem átti eftir að færa í tölvukerfi bókara, sé að finna í einhverjum þeirra sex hillumetra af gögnum sem stefnandi hafi ekki hirt um að sækja til skoðunar á stöðu félagsins. Hvað sem því líður sé ljóst að þó svo ólíklega vilji til að einhver hluti þess kostnaðar, sem talinn sé vera persónulegur kostnaður, sé samkvæmt ótvíræðri skilgreiningu slíkur. Auk þess sé óuppgerð skuld stefnanda við stefnda langt um hærri en sem því nemi.
Samkvæmt ráðleggingu frá færsluaðila bókhalds hafi aðeins verið um að ræða einn viðskiptamannareikning eigenda sem hafi verið bæði stefndi og eiginkona hans, Sigrún Hafsteinsdóttir. Millifærslur inn á reikning Sigrúnar séu því jafngildar því að þær hefðu verið færðar á reikning stefnda, enda ekki óalgengt að eigendur minni fyrirtækja kaupi aðföng til rekstrarins sem greidd séu með persónulegum sjóðum og slíkt síðan jafnað út á viðskiptamannareikningi eigenda.
Óreglulegar millifærslur af bankareikningi Procura ráðgjafar ehf. séu augljóslega launagreiðslur til stefnda, svo sem stefnandi viðurkenni í upphaflegri kröfu og launaseðlar beri með sér en af óútskýrðum ástæðum hafi stefnandi ákveðið að handvelja án nokkurs rökstuðnings eina launagreiðslu frá því í júní 2015 sem viðurkennd laun. Ekki geti talist óeðlilegt að eigendur lítilla fyrirtækja láti sjálfa sig mæta afgangi við útgreiðslu launa og því verði þær greiðslur óreglulegar. Samtals sé þar um að ræða 7.275.831 krónu sem greidd var stefnda samkvæmt lögmætri launakröfu en með óreglulegum hætti.
Þegar allt sé talið nemi skuld stefnanda við stefnda og eiginkonu hans 7.821.857 krónum þann 15. desember 2015 og því ljóst að reikniskekkja stefnanda nemi heilum 25.991.093 krónum.
Um lagarök vísast aðallega til XVI. kafla laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti, einkum 100. gr., og XVIII. kafla sömu laga, einkum 118. gr. Krafa um málskostnað styðst við XXI. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, einkum 130. gr.
V
Bú Procura ráðgjafar ehf. var með úrskurði tekið til gjaldþrotaskipta 10. desember 2015. Frestdagur við skiptin er 28. október 2015. Skýrsla var tekin af fyrirsvarsmanni Procura ráðgjafar ehf. 17. og 18. desember 2015. Stefndi var framkvæmdastjóri og prókúruhafi félagsins auk þess sem hann sat í stjórn þess og var einn eigenda. Starfsemi Procura ráðgjafar ehf. fólst aðallega í því að hafa milligöngu um að útvega lántökum hjá Lýsingu hf. lögmann vegna málareksturs vegna gengistryggðra lána. Málssókn stefnanda byggist á því að við skoðun skiptastjóra á bókhaldi, bankareikningum og kreditkortayfirlitum þrotabúsins hafi komið í ljós fjölmargar úttektir af fjármunum félagsins í þágu stefnda, hvort sem var í formi beinna millifærslna af reikningi félagsins yfir á persónulegan reikning stefnda eða í formi greiðslna félagsins á persónulegum útgjöldum stefnda. Þá hafi komið í ljós mikill fjöldi af áhöldum og tækjum sem höfðu verið gjaldfærð í bókhaldi félagsins en ekki fundist í búinu. Endurskoðunarfyrirtækinu Ernst & Young hf. var falið að rannsaka bókhald Procura ráðgjafar ehf. og liggur skýrsla um rannsóknina frammi í málinu. Krafa stefnanda byggist í fyrsta lagi á bókfærðri skuld stefnda við Procura ráðgjöf ehf. að fjárhæð 4.347.369 krónur samkvæmt viðskiptamannareikningi stefnda hjá félaginu. Stefndi var sjálfur eigandi, stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi félagsins og hafði því greiðan aðgang að bókhaldi þess. Hann hefur ekki sýnt fram á að skuldin hafi verið greidd. Stefndi bar ábyrgð á að bókhald félagsins væri í góðu horfi og í samræmi við þær kröfur sem eru gerðar í lögum um bókhald nr. 145/1994, sbr. 5. gr. laganna. Líta verður á þessa skuld stefnda sem lánveitingu til hans sem er óheimil samkvæmt 1. mgr. 79. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög. Í öðru lagi er krafa stefnanda reist á nokkrum millifærslum, samtals að fjárhæð 7.332.381 króna, af reikningi Procura ráðgjafar ehf. til stefnda. Þessar millifærslur höfðu ekki verið færðar í bókhald félagsins þegar það var tekið til gjaldþrotaskipta en komu í ljós við rannsókn endurskoðanda. Stefndi hefur borið því við að 7.275.831 króna af umkrafði fjárhæð til hans hafi verið launagreiðslur og krefst skuldajafnaðar á þeim við kröfu stefnanda. Stefndi lýsti ekki kröfu í búið vegna ógreiddra launa og kom þessi krafa fyrst fram í greinargerð hans fyrir dómi. Samkvæmt 118. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. fellur krafa á hendur þrotabúi niður ef henni er ekki lýst fyrir skiptastjóra innan tiltekins frests nema fullnægt sé skilyrðum 100 gr. Skilyrðum 1. mgr. 100. gr. er hins vegar ekki fullnægt í málinu þar sem annars vegar hluti af gagnkröfu stefnda stofnaðist eftir að þrír mánuðir voru til frestdags og hins vegar vegna þess að stefndi mátti vita á þessum tíma að Procura ráðgjöf ehf. átti ekki fyrir skuldum. Verður því að líta svo á að þessar millifærslur hafi verið í andstöðu við 1. mgr. 79. gr. laga nr. 138/1994 og verður því fallist á kröfu stefnanda um að stefnda beri að endurgreiða fjármunina til stefnanda. Í þriðja lagi gerir stefnandi kröfu um að stefndi endurgreiði stefnanda 437.787 krónur sem eru færslur af bankareikningi félagsins með debetkorti þess sem stefnandi telur að séu persónuleg útgjöld stefnda. Flestar ofangreindar færslur eiga það sameiginlegt að engir reikningar eru fyrir hendi vegna þeirra í bókhaldi Procura ráðgjafar ehf. Stefndi bar ábyrgð á að bókhald félagsins væri í góðu horfi, sbr. 5. gr. laga nr. 145/1994. Stefndi ber því hallann af því að reikningar fyrir ofangreindum færslum hafa ekki skilað sér í bókhald félagsins. Verður því að líta á þessa úttekt stefnda hjá Procura ráðgjöf ehf. sem lán sem er í andstöðu við ákvæði 1. mgr. 79. gr. laga um einkahlutafélög. Krafa samkvæmt þessum kröfulið verður því tekin til greina. Í fjórða lagi tekur krafa stefnanda til úttektar stefnda með kreditkorti Procura ráðgjafar ehf. bæði hér og erlendis, samtals að fjárhæð 1.791.589 krónur. Niðurstaða bókhaldsrannsóknar Ernst & Young hf. leiddi í ljós að í fæstum tilvikum voru reikningar í bókhaldi félagsins fyrir þeim. Stefndi mótmælir því að um persónuleg útgjöld sé að ræða en hefur ekki rökstutt þá staðhæfingu sína frekar. Af gögnum málsins má hins vegar sjá að úttektir með greiðslukortinu eru m.a. vegna kaupa á matvælum, fötum, snyrtivörum, flugfarfarmiðum, lyfjum, sjónvarpsáskrift o.fl. Samkvæmt bókhaldslögum nr. 145/1994, 5. gr., bar stefnda að sjá til þess að bókhald félagsins væri í góðu horfi og að reikningar væru í bókhaldi fyrir framangreindum úttektum. Stefndi verður að bera hallann af því að svo var ekki. Verður því að líta á framangreindar færslur sem persónulegar úttektir stefnda sem eru óheimilar samkvæmt 1. mgr. 79. gr. laga nr. 138/1991 og teljast ólögmætt lán samkvæmt ákvæðinu. Ber því stefnda að endurgreiða stefnanda þá fjárhæð sem krafist er samkvæmt þessum liðum í kröfugerð stefnanda. Í fimmta lagi byggist krafa stefnanda að fjárhæð 3.140.110 krónur á tækjum og búnaði sem ekki voru til staðar á starfsstöð Procura ráðgjafar ehf. en voru gjaldfærð í bókhaldi félagsins. Þrátt fyrir áskorun hefur stefndi ekki skilað þessum hlutum eða sýnt fram á að þrjár tilteknar tölvur séu í eigu þriðja aðila eins og hann heldur fram. Þá hefur stefndi ekki sýnt fram á að prentara, sem hann segir að leigusamningur hafi gilt um, hafi verið skilað til eigenda eins og hann heldur fram. Þar sem umræddur búnaður og tæki hafa ekki skilað sér verður að líta svo á að stefndi hafi nýtt sér þau í eigin þágu. Með vísan til meginreglna kröfuréttarins um efndir fjárskuldbindinga ber stefnda að endurgreiða stefnanda andvirði þessara hluta. Af hálfu stefnda er því haldið fram að hann eigi skuldajafnaðarkröfu á hendur stefnanda. Þessi gagnkrafa kom fyrst fram í greinargerð stefnda sem var lögð fram 11. janúar 2017. Hún kom ekki fram í skýrslu stefnda hjá skiptastjóra tæpum tveimur árum áður en þá sagði stefndi að Procura ráðgjöf ehf. stæði ekki í neinni skuld við sig.
Til stuðnings þessari gagnkröfu sinni hefur stefndi nú lagt fram nokkur skjöl. Hann lagði fram afrit kaupsamnings um kaup Procura ráðgjafar ehf. af stefnda á ýmsum skrifstofubúnaði að fjárhæð 4.360.000 krónur, dags. 15. maí 2015. Samkvæmt samningnum skyldi Procura ráðgjöf ehf. afhenda stefnda tækjabúnað að fjárhæð 1.136.486 krónur en mismunurinn, 3.223.514 krónur, skyldi leggjast inn á viðskiptamannareikning stefnda hjá Procura ráðgjöf ehf. Stefndi lagði ennfremur fram til stuðnings skuldajafnaðarkröfu sinni afrit skuldabréfs að fjárhæð 12.000.000 króna, útgefið 1. júlí 2014 af Procura ráðgjöf ehf. til stefnda og eiginkonu hans, með fyrsta gjalddaga 1. júlí 2017. Þetta skuldabréf segir stefndi að sé trygging stefnda og eiginkonu hans vegna ábyrgðarskuldbindinga sem þau hafi undirgengist í þágu Procura ráðgjafar ehf. Til sönnunar fyrir þessum ábyrgðarskuldbindingum hefur stefndi lagt fram afrit víxils, útgefinn 16. desember 2014 af stefnda að fjárhæð 5.000.000 króna, skuldabréf, útgefið 23. janúar 2015 af Procura ráðgjöf ehf. til Miðjunnar ehf. að fjárhæð 3.351.638 krónur, sem stefndi hefur undirritað sem sjálfskuldarábyrgðaraðili, og loks afrit tryggingabréfs að fjárhæð 3.500.000 krónur, útgefið af Procura fasteignasölu ehf. til Íslandsbanka hf. með fasteignaveði. Stefndi segir að áðurnefnt skuldabréf að fjárhæð 12.000.000 króna, útgefið af Prócura ráðgjöf ehf. til stefnda og eiginkonu hans, hafi staðið til tryggingar framangreindum ábyrgðarskuldbindingum. Þetta skuldabréf að fjárhæð 12.000.000 króna og framangreindur kaupsamningur um húsgögn og tækjabúnað komu fyrst fram tæpum tveimur árum eftir skýrslutöku stefnda hjá skiptastjóra þar sem stefndi lýsti því yfir að félagið stæði ekki í skuld við hann. Bæði þessi skjöl eru ljósrit sem eru óvottuð og gefin út af stefnda. Muna samkvæmt kaupsamningi var ekki getið í bókhaldi félagsins, hvorki með niðurfærslu á viðskiptamannareikningi né eignafærslu í bókhaldi og fundust ekki í búinu. Stefndi er einn til frásagnar um gerð þessa kaupsamnings. Skuldabréfið er lagt fram í ljósriti og er það óvottað. Þegar framangreint er virt verður að fallast á með stefnanda að þessi skjöl séu ótrúverðug.
Þá er einnig ótrúverðugt að þær skuldbindingar, sem stefndi segir að hann og eiginkona hans hafi verið í ábyrgð fyrir, eru dagsettar eftir að Procura ráðgjöf ehf. gaf út framangreint skuldabréf til handa stefnda og eiginkonu hans að fjárhæð 12.000.000 króna. Þá er einnig til þess að líta að ekki liggur fyrir í málinu að ábyrgð samkvæmt meintum ábyrgðarskuldbindingum hafi fallið á stefnda. Loks er til þess að líta að tryggingabréf að fjárhæð 3.500.000 krónur, sem stefndi segist vera í ábyrgð fyrir, er gefið út af Procura fasteignasölu ehf., sem er ekki aðili að þessu máli. Stefnandi getur ekki borið ábyrgð á skuldum sem óskyld félög kunna að vera í vanskilum með gagnvart stefnda. Þegar allt framangreint er virt er ekki unnt að fallast á að gagnkrafa stefnda sé tæk til skuldajafnaðar. Loks er það málsástæða af hálfu stefnda að hann hafi sjálfur greitt 500.000 krónur vegna bifreiðaviðskipta 16. júní 2015 en af framlögðu reikningsyfirliti Íslandsbanka hf. vegna reiknings Procura ráðgjafar ehf. má sjá að sú greiðsla var innt af hendi með debetkorti Procura ráðgjafar ehf. en ekki af stefnda. Er því ekki hald í þessari málsástæðu stefnda. Samkvæmt öllu framansögðu verða kröfur stefnanda teknar til greina að öllu leyti. Samkvæmt 4. mgr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög og 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu verður dráttarvaxtakrafa stefnanda tekin til greina eins og hún er fram sett. Eftir þessari niðurstöðu verður stefndi dæmdur til að greiða stefnanda 600.000 krónur í málskostnað og hefur þá ekki verið tekið tillit til reglna um virðisaukaskatt. Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
Dómsorð
Stefndi, Guðmundur Andri Skúlason, greiði stefnanda, Procura ráðgjöf ehf., 17.049.236 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 4.252.654 krónum frá 1. janúar 2015 til 2. desember 2015 og af 17.049.236 krónum frá 2. desember 2016 til greiðsludags og 600.000 krónur í málskostnað.
Gunnar Aðalsteinsson