Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-600/2014:

S-600/2014:

Ákæruvaldið

(Sigurður Pétur Ólafsson ftr)

gegn

Leó Berg Írisarsyni

(Stefán Karl Kristjánsson hdl)

Fangelsi. Skaðabætur. Svipting ökuréttar. Þjófnaður.

Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnaakstur og þjófnað.

Mál þetta, sem var dómtekið 9. desember 2014, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 11. nóvember 2014, gegn Leó Berg Írisarsyni, kt. 000000-0000, Dalshrauni 13, Hafnarfirði, fyrir umferðar-, fíkniefna og hegningarlagabrot, með því að hafa:

  1. Laugardaginn 16. ágúst 2014 í Reykjavík ekið bifreiðinni TP-179 sviptur ökurétti og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 140 ng/ml) um Fákafen og að bifreiðastæði Hagkaups í Skeifunni þar sem lögregla hafði afskipti af honum og fyrir að hafa í kjölfar handtöku, á lögreglustöðinni við Hverfisgötu, neitað að veita atbeina sinn við rannsókn meints umferðarlagabrots með því að neita að láta í té þvagsýni og fyrir að hafa við handtöku haft í vörslum sínum 1,92 g af amfetamíni sem lögregla fann við leit og lagði hald á. Mál 007-2014-47662. Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr., 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., og 3. mgr., sbr. 2. mgr., 47. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006, 6. gr. laga nr. 66/2006 og 3. gr. laga nr. 24/2007 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
  2. Fimmtudaginn 26. júní í Borgarnesi, í þjónustustöð Olís við Brúartorg, í félagi við 2 óþekkta aðila, stolið borðstandi með happaþrennum að samtals söluandvirði 19.100 kr. Mál 013-2014-1087. Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
  3. Föstudaginn 27. júní á Akureyri, úr verslun Vínbúðarinnar (ÁTVR) við Hólabraut 16, stolið Camus Vs Elegance koníaksflösku að söluandvirði 2.998 kr. Mál 024-2014-3959. Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. gr. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006 og jafnframt er þess krafist að framangreind fíkniefni, sem hald var lagt á, verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/ 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 23/2001.

Einkaréttarkröfur:

Í máli 024-2014-3959 gerir Erla Skúladóttir, hdl., f. h. Áfengis og tóbaksverslunar ríkisins, kt. 000000-0000, hér eftir nefndur kröfuhafi að ákærði verði dæmdur til að greiða kröfuhafa skaðabætur að fjárhæð 2.998 krónur auk vaxta skv. 8. gr. l. nr. 38/2001 af þeirri fjárhæð,- frá 27. júní 2014 til 22. ágúst 2014. Eftir það er krafist dráttarvaxta skv. 1. mgr. 6. gr. sbr. 9. gr. laganna til greiðsludags. Að auki er krafist lögmannskostnaðar að mati dómsins.

Í máli 013-2014-1087 gerir Eyvindur Sólnes, hrl., f.h. Olíuverslunar Íslands hf., kt. 000000-0000, hér eftir nefndur kröfuhafi, að ákærði verði dæmdur til að greiða kröfuhafa 19.100 krónur auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá tjónsdegi þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en síðan dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Jafnframt er krafist málskostnaðar fyrir héraðsdómi að mati dómsins.

Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað brot sitt og var því farið með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjandi og verjandi, höfðu tjáð sig stuttlega um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Fram kom hjá ákærða að hann krefðist vægustu refsingar. Á það var bent af hálfa ákærða að ekki kæmi fram í gögnum málsins að sakarkostnaður vegna blóðtökuvottorðs hafi verið greiddur af lögreglu og því væri óeðlilegt að ákæruvaldið væri að krefjast þess að hann greiddi þann kostnað.

Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur árið 1991. Samkvæmt sakavottorði ákærða hefur honum níu sinnum verið gerð refsing frá árinu 2010. Þann 3. júní 2010 gekkst ákærði undir þrjár sáttir með greiðslu sekta. Þá fyrstu fyrir ölvunarakstur og akstur án ökuréttinda, aðra fyrir akstur sviptur ökuréttindum og þriðju fyrir ölvunarakstur og akstur sviptur ökuréttindum. Verða framangreindar sáttir teknar saman sem fyrstu brot hans gegn ákvæðum 45. gr. og 48. gr. umferðarlaga. Þann 20. október 2010 var ákærði dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára fyrir brot gegn 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga. Þann 9. maí 2011 gekkst hann undir sátt með greiðslu sektar fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Þann 12. janúar 2012, var framangreindur dómur frá 20. október 2010, dæmdur upp og ákærði dæmdur í 75 daga fangelsi, þar af 30 daga skilorðsbundnir í 3 ár, fyrir brot gegn 45. gr. a., 48. gr. umferðarlaga og gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Þann 10. maí 2012 var skilorðsdómur frá 12. janúar 2012 dæmdur upp og ákærði dæmdur í 60 daga fangelsi fyrir brot gegn 45. gr. og 48. gr. umferðarlaga. Þann 18. september 2013 er ákærði dæmdur í 3 mánaða fangelsi skilorðsbundið í tvö ár fyrir auðgunarbrot og þann 28. febrúar 2014 er honum dæmdur hegningarauki, fangelsi í 45 daga fyrir brot gegn ákvæðum 45. gr. a. og 48. gr. umferðarlaga.

Samkvæmt þessu verða brot ákærða nú gegn ákvæðum 45. gr. og 48. gr. umferðarlaga, talin sem fimmtu brot hans gegn nefndum ákvæðum. Í dómaframkvæmd hefur refsing fyrir hvert ítrekað brot gegn 45. gr., 45. gr. a. og 48. gr. umferðarlaga, umfram fyrstu ítrekun, varðað þrjátíu daga fangelsi og hafa refsingar við ítrekanir eftir það, þyngst um sem nemur þrjátíu daga fangelsi.

Ákærði hefur með brotum gegn 244. gr. almennra hegningarlaga rofið framangreindan skilorðsdóm frá 18. september 2013. Verður sá dómur tekinn upp og brotin dæmd í einu lagi með vísan til 60., sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga. Með hliðsjón af framansögðu og sakarferli ákærða er refsing ákærða nú ákveðin fangelsi í 8 mánuði. Ekki eru skilyrði til að skilorðsbinda refsinguna.

Með vísan til 101. og 102. gr. umferðarlaga er áréttað að ákærði skuli vera sviptur ökurétti ævilangt.

Ákærði hefur samþykkt bótakröfu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Verður hún því tekin til greina auk vaxta, svo sem greinir í dómsorði, og málskostnaðar að fjárhæð 32.630 krónur. Ákærði hefur samþykkt bótakröfu Olíuverslunar Íslands hf.. Verður hún því tekin til greina auk vaxta, svo sem greinir í dómsorði, og málskostnaðar að fjárhæð 32.630 krónur.

Ákærði hefur fallist á kröfu ákæruvalds um upptöku. Með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 verður hún tekin til greina.

Í 216., 2. mgr. 217. og 218. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er fjallað um sakarkostnað, en til hans falla óhjákvæmileg útgjöld vegna rannsóknar málsins. Blóðtökuvottorð ákærða telst til nefndra útgjalda og fyrir liggur að kostnaður vegna þess var 12.757 krónur. Í málinu liggur fyrir yfirlit um sakarkostnað eins og ráð er fyrir gert í framangreindum ákvæðum, en ekki gert það skilyrði að sakarkostnaðurinn hafi þegar verið greiddur.

Sakarkostnaður samkvæmt framlögðum yfirlitum sækjanda nemur 105.133 krónum og verður ákærða gert að greiða hann. Um annan sakarkostnað sem er þóknun skipaðs verjanda ákærða, fer svo sem í dómsorði greinir. Við ákvörðun þóknunar hefur verið tekið tillit til virðisaukaskatts.

Bogi Hjálmtýsson, héraðsdómari dæmir mál þetta.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Leó Berg Írisarson, sæti fangelsi í átta mánuði.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.

Ákærði greiði Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins 2.998 krónur auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 27. júní 2014 til 17. október 2014, en dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags og 32.630 krónur í málskostnað.

Ákærði greiði Olíuverslunar Íslands hf. 19.100 krónur auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 26. júní 2014 til 17. október 2014, en dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags og 32.630 krónur í málskostnað.

Ákærði sæti upptöku á 1,92 g af amfetamíni.

Ákærði skal greiða allan sakarkostnað málsins, 228.123 krónur, þar með talda þóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar héraðsdómslögmanns, 122.990 krónur.

Bogi Hjálmtýsson