Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-780/2012:

Ár 2012, fimmtudaginn 13. desember, er á dómþingi

máli nr. S-780/2012:

Ákæruvaldið

(Óli Ásgeir Hermannsson ftr)

gegn

Víkingi Ívari

Einarssyni

svofelldur

d ó m u r :

(Magnús Jónsson hdl)

Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Upptaka.

Ákærði sakfelldur og dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir ræktun á 841 plöntu af kannabis og vörslur á rúmlega kílói af kannabislaufum í sölu- og dreifingarskyni.

Mál þetta, sem þingfest var 6. nóvember sl. og dómtekið 28. nóvember sl, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum, dagsettri 1. október 2012, á hendur Víkingi Ívari Einarssyni, kt. 000000-0000, með lögheimili að Sogavegi 192 í Reykjavík, „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa þann 12. ágúst 2011, í skemmu á Hafurbjarnastöðum, Sandgerði, haft í vörslum sínum í sölu-og dreifingarskyni 841 stk. kannabisplöntur og hafa um skeið fram til þess dags ræktað greindar plöntur. Auk þess að hafa í vörslum sínum 1060,5 g af kannabislaufum en fíkniefnin fundust öll í skemmunni.

Telst þetta varða við 2., sbr. 4., sbr. 4. gr. a, sbr. 5. og 6. gr., laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 10/1997 og lög nr. 68/2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Þá er jafnframt krafist að gerðar verði upptækar framangreindar 841 stk af kannabisplöntum og 1060,5 g af kannabislaufum. Þá er þess jafnframt krafist að gerðir verið upptækir 15 stk lampar, 43 ljósaperur, rafmagnsofn, vökvunarslanga ásamt garðbyssu, 5 vatnsdælur, 4 viftur og þurrkarabarki sem notuð voru við ræktun kannabisplantnanna, sem lögreglan lagði hald á í skemmunni á Hafurbjarnarstöðum, Sandgerði, við húsleit 12. ágúst 2011, allt samkvæmt heimild í 6. og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 10/1997 og 68/2001, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Ákærði kom fyrir dóminn ásamt skipuðum verjanda sínum og játaði brot sitt fyrir dóminum. Er játning ákærða í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sitt en það er í ákæru rétt fært til refsiákvæða.

Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Verjandi ákærða krafðist vægustu refsingar sem lög leyfa og að fangelsisrefsing yrði skilorðsbundin yrði hún dæmd. Kvað verjandi ákærða vera með væga greindarskerðingu og eigi erfitt með að tjá sig og skilja en hann hafi lent í umferðarslysi í júní 2005 og séu það afleiðingar þess. Þá hafi þær plöntur sem fundust á staðnum verið svokallaðar mömmuplöntur og gefi lítið af sér. Þá hafi liðið langur tími frá því að rannsókn málsins var lokið þar til ákæra var gefin út.

Ákærði játaði vörslur og ræktun umræddra efna og verður hann sakfelldur fyrir það. Verður ákærða því gerð refsing fyrir þau brot. Þrátt fyrir að ákærði segist stríða við þroskahömlun, og verjandi hans telji útilokað að hann hafi getað staðið einn að ræktuninni, þá hefur ekki verið upplýst hver annar gæti hafa komið að henni með honum og þrátt fyrir þroskahömlun, er ákærði nægjanlega greindur til að standa að slíkri ræktun sem hér hefur sannast í sölu-og dreifingarskyni. Er háttsemi ákærða réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Samkvæmt sakavottorði sem liggur frammi í málinu hefur ákærða þrisvar sinnum verið gerð refsing áður frá árinu 2007 til 2011 fyrir brot gegn lögum um ávana-og fíkniefni og einu sinni fyrir fíkniefnaakstur. Brot það sem ákærði hefur verið sakfelldur fyrir nú framdi hann áður en dómur gekk þann 3. nóvember 2011 en þá var ákærði dæmdur til greiðslu 116.000 króna sektar fyrir brot gegn lögum um ávana-og fíkniefni. Verður ákærða því gerður hegningarauki nú samkvæmt skv. 78. gr. laga nr. 19/1940. Verjandi ákærða krafðist refsilækkunar þar sem langt er liðið frá því að rannsókn málsins lauk þar til að ákæra var gefin út.

Samkvæmt gögnum málsins kom ofangreind ræktun upp þann 12. ágúst 2011 við eftirlit lögreglu. Þann 3. nóvember 2011 gaf ákærði sig fram við lögreglu og kvaðst hafa verið í fjárhagsvandræðum vegna íbúðakaupa sem hann hafi stofnað til í góðærinu. Lýsti hann síðan aðdraganda þess að hann fór út í kannabisræktunina og að aðrir menn hafi útvegað honum tól og tæki til þess en vildi ekki gefa upp hverjir þeir voru. Var ákæra gefin út 1. október 2012. Þrátt fyrir að ellefu mánuðir séu liðnir frá því að ákærði gaf sig fram og þar til ákæra var gefin út, telur dómurinn að sá tími hafi ekki þau áhrif að efni séu til að skilorðsbinda refsinguna að hluta eða öllu leyti. Til þess verður einnig að líta við ákvörðun refsingar að ákærði þurfti að koma sér upp sérútbúnu húsnæði og leggja mikla vinnu í ræktun þeirra plantna sem um ræðir og að auki var ræktunin vel á veg komin og stutt í að ákærði klippti niður 180 plöntur sem voru að verða tilbúnar að hans sögn. Þá var ræktunin mjög umfangsmikil. Í matsgerð kemur fram að magn tetrahúdrókannabínóls í þurru sýni var 82 mg/g, sem samsvarar 49 mg/g í sýninu fyrir þurrkun. Auk þessa hafði ákærði lagt út nokkuð fé að hans sögn til að koma upp búnaðinum. Var hjá ákærða einbeittur ásetningur til að rækta mikið magn og hafa af því mikinn ávinning. Með hliðsjón af alvarleika brotsins, umfangs og einbeitts ásetnings ákærða þykir refsing hæfilega ákveðin fangelsi í átján mánuði. Þrátt fyrir að ákærði hafi gefið sig sjálfviljugur fram og játað greiðlega þykja, með hliðsjón af alvarleika brotsins ekki tilefni til að skilorðsbinda refsinguna.

Ákærði skal sæta upptöku á ofangreindum efnum og tækjum samkvæmt heimild í 6. og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 10/1997 og 68/2001, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, eins og í dómsorði segir.

Þá skal ákærði með vísan til 218. gr. laga nr. 88/2008 greiða allan sakarkostnað, 198.577 krónur, þar með talda þóknun skipaðs verjanda síns, Magnúsar Jónssonar hdl., samtals 100.400 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Víkingur Ívar Einarsson, kt. 000000-0000, með lögheimili að Sogavegi 192, Reykjavík, en dvalarstað að Gvendargeisla 21, Reykjavík, skal sæta fangelsi í átján mánuði.

Ákærði skal sæta upptöku á 841 stk. af kannabisplöntum og 1060,5 g af kannabislaufum, 15 lömpum, 43 ljósaperum, rafmagnsofni, vökvunarslöngu ásamt garðbyssu, 5 vatnsdælum, 4 viftum og þurrkarabarka.

Ákærði greiði allan sakarkostnað, 198.577 krónur, þar með talda þóknun skipaðs verjanda síns, Magnúsar Jónssonar hdl, 100.400 krónur.

Ástríður Grímsdóttir.

Rétt endurrit staðfestir Héraðsdómur Reykjaness 13.12. 2012.

Heimildaskrá