Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-1006/2012:

Ákæruvaldið

(Vilhjálmur Reyr Þórhallsson ftr)

gegn

Vilhjálmi Vilhjálmssyni

svofelldur

d ó m u r :

(Stefán Karl Kristjánsson hdl)

Akstur án ökuréttar. Ávana- og fíkniefni. Ökuréttarsvipting. Reynslulausn. Umferðarlagabrot.

Ákærði dæmdur í fangelsi í eitt og hálft ár fyrir ítrekuð brot, fíkniefnaakstur, akstur sviptur ökurétti og fíkniefnalagabrot. Þá var reynslulausn dæmd upp.

Mál þetta, sem þingfest var 9. janúar 2012 og dómtekið 13. febrúar sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum, dagsettri 17. desember 2012, á hendur Vilhjálmi Vilhjálmssyni, kt. 000000-0000, Heiðargarði 5, 230 Reykjanesbæ, I. (007-2012-11370) „Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa, mánudaginn 27. febrúar 2012, ekið bifreiðinni RE800, norður Gullinbrú, að Fjallkonuvegi, Reykjavík, sviptur ökuréttindum ævilangt, á 98 kílómetra hraða á klukkustund, að teknu tilliti til vikmarka, þar sem leyfður hámarkshraði er 60 kílómetrar á klukkustund.

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 3., mgr. 37. gr. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.

II. (008-2012-4431) Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa, sunnudaginn 8. apríl 2012, ekið bifreiðinni VO147, vestur Reykjanesbraut, þaðan frá Stekk og til hægri austur Njarðarbraut og inn á bifreiðastæði við verslun Toyota, Njarðarbraut 17, Reykjanesbæ, sviptur ökuréttindum ævilangt og undir áhrifum ávana- og fíkniefna (Amfetamín í blóði mældist 100 ng/ml).

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.

III. (008-2012-4889) Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa, föstudaginn 20. apríl 2012, ekið bifreiðinni VO147, inn á bifreiðastæði og að bensíndælum við bensínstöðina Básinn, við Vatnsnesveg, Reykjanesbæ, sviptur ökuréttindum ævilangt og undir áhrifum ávana- og fíkniefna (Amfetamín í blóði mældist 130 ng/ml).

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.

IV. (007-2012-29617) A.

Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa, laugardaginn 26. maí 2012, ekið bifreiðinni VO147, eftir Vesturlandsvegi við Lágafell, inn á Langatanga og loks inn á athafnasvæði Olís, Reykjavík, sviptur ökuréttindum ævilangt og undir áhrifum ávana- og fíkniefna (Amfetamín í blóði mældist 290 ng/ml).

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.

B.

Fyrir fíkniefnalagabrot, fyrir að hafa, á sama tíma og greinir í ákærulið A., haft í vörslum sínum, 6,36 g af amfetamíni, 0,95 g af Ecstasy og 4 bláar miðjuskiptar töflur af óþekktri tegund, er lögregla fann falin í sígarettupakka sem geymdur var í hólfi við ökumannssæti bifreiðarinnar, í kjölfar þess að lögregla framkvæmdi leit í bifreiðinni á vettvangi.

Telst háttsemi þessi varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

V. (008-2012-6618) Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa, mánudaginn 28. maí 2012, ekið bifreiðinni VO147, vestur Grófina og inn á bifreiðastæði við Grófina 10, Reykjanesbæ, þar sem ákærði stöðvaði bifreiðina og fór út úr bifreiðinni, sviptur ökuréttindum ævilangt og undir áhrifum ávana- og fíkniefna (Amfetamín í blóði mældist 225 ng/ml).

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.

VI. (008-2012-7568) Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa, fimmtudaginn 14. júní 2012, ekið bifreiðinni VO147, austur Vesturgötu og þaðan norður inn á Hringbraut, gegn rauðu ljósi, uns ákærði stöðvaði bifreiðina við Grófina, Reykjanesbæ, sviptur ökuréttindum ævilangt og undir áhrifum ávana- og fíkniefna (Amfetamín í blóði mældist 105 ng/ml og MDMA í blóði mældist 80 ng/ml).

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 5. gr., 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.

VII. (007-2012-34470) Fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa, sunnudaginn 17. júní, haft í vörslum sínum, til sölu og dreifingar, samtals 30,84 g af amfetamíni, er lögregla fann í peysuvasa ákærða, við framkvæmd öryggisleitar á ákærða í kjölfar þess að höfð voru afskipti af honum þar sem hann lá áfengisdauður á Reykjavíkurvegi við Arnarhraun, Hafnarfirði.

Telst háttsemi þessi varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

VIII. (008-2012-8557) Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa, miðvikudaginn 4. júlí 2012, ekið bifreiðinni VO147, austur Suðurstrandarveg, skammt austan við Selatanga, sviptur ökuréttindum ævilangt og undir áhrifum ávana- og fíkniefna (Amfetamín í blóði mældist 75 ng/ml).

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.

IX. (007-2012-41657) Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa, sunnudaginn 22. júlí 2012, ekið bifreiðinni VO147, austur Reykjanesbraut, til móts við Straumsvík, sviptur ökuréttindum ævilangt.

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.

X. (007-2012-42044) Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa, þriðjudaginn 24. júlí 2012, ekið bifreiðinni VO147, austur Vesturvör og þaðan inn á Kársnesbraut, uns ákærði stöðvaði bifreiðina til móts við Kársnesbraut 71, Kópavogi, sviptur ökuréttindum ævilangt.

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.

XI. (007-2012-43155) Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa, aðfaranótt mánudagsins 30. júlí 2012, ekið bifreiðinni VO147, vestur Nesvör og þaðan inn á Hafnarbraut til suðurs uns ákærði stöðvaði bifreiðina við Hafnarbraut 11, Kópavogi, sviptur ökuréttindum ævilangt og undir áhrifum ávana- og fíkniefna (Amfetamín í blóði mældist 205 ng/ml, kókaín í blóði mældist 30 ng/ml og tetrahýdrókannabínól í blóði mældist 1,4 ng/ml).

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.

XII. (007-2012-45878) Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa, laugardaginn 11. ágúst 2012, ekið bifreiðinni IX970, austur Hvaleyrarbraut, Hafnarfirði, sviptur ökuréttindum ævilangt.

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.

XIII. (008-2012-12510) Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa, miðvikudaginn 3. október 2012, ekið bifreiðinni VO147, austur Vesturbraut, Reykjanesbæ, uns ákærði stöðvaði bifreiðina við Vesturbraut 6, Reykjanesbæ, sviptur ökuréttindum ævilangt og undir áhrifum ávana- og fíkniefna (Amfetamín í blóði mældist 235 ng/ml).

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.

XIV. (008-2012-12871) Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa, fimmtudaginn 11. október 2012, ekið bifreiðinni VO147, vestur Reykjanesbraut, áleiðis til Reykjanesbæjar, uns ákærði stöðvaði bifreiðina við Stapabraut, Reykjanesbæ, sviptur ökuréttindum ævilangt og undir áhrifum ávana- og fíkniefna (Amfetamín í blóði mældist 320 ng/ml).

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.

XV. (008-2012-13194) Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa, laugardaginn 20. október 2012, ekið bifreiðinni NU942, suður Hringbraut, Reykjanesbæ, sviptur ökuréttindum ævilangt og undir áhrifum ávana- og fíkniefna (Amfetamín í blóði mældist 320 ng/ml). Er ákærði kom akandi að gatnamótum Hringbrautar og Aðalgötu, missti ákærði stjórn á bifreiðinni NU942 með þeim afleiðingum að bifreiðin skall framan á bifreiðinni DEU91 sem var kyrrstæð við gatnamót Hringbrautar og Aðalgötu. Í kjölfar þess að ökumaður bifreiðarinnar DEU91 óskaði eftir aðstoð lögreglu hljóp ákærði af vettvangi án þess að nema staðar og gera viðvart um óhappið og án þess að skýra frá nafni sínu og heimilisfangi.

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 10. gr., 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Þess er einnig krafist að ákærði verði dæmdur til sviptingar ökuréttar, skv. 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006, og að gerð verði upptæk framangreind 37,20 g af amfetamíni, 0,95 g af Ecstasy og 4 bláar miðjuskiptar töflur af óþekktri tegund, samkvæmt heimild í 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 10/1997 og 68/2001, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglug. nr. 233/2001.“

Ákærði kom fyrir dóminn 30. janúar sl., ásamt skipuðum verjanda sínum, og játaði þá háttsemi sem lýst er í ákæruliðum I, II, III, IV-A og -B, VI, VII, VIII, IX, X, XI, XII, XIII og XIV. Þá samþykkti hann kröfu um upptöku. Við fyrirtöku þann 13. febrúar sl. féll ákæruvaldið frá ákærulið V og þeirri háttsemi að ákærði hafi, í ákærulið VII, haft umrædd fíkniefni til sölu- og dreifingar.

Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 164. gr. laga nr. 88/2008 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun refsingar. Ákærði krafðist vægustu refsingar. Játning ákærða er í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann því sakfelldur fyrir brot sín. Háttsemin er í ákæru réttilega færð til refsiákvæða.

Í málinu liggur fyrir matsgerð Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði. Kemur þar fram að magn THC í sýnum var lítið eða á bilinu 9,5 til 14 mg/g eftir þurrkun sýnanna.

Við ákvörðun refsingar verður að líta til þess að ákærði játaði brot sitt greiðlega fyrir lögreglu og fyrir dóminum. Samkvæmt sakavottorði ákærða hefur honum sjö sinnum verið gerð refsing frá árinu 2004. Þau brot sem hafa áhrif við ákvörðun refsingar nú er dómur frá 9. febrúar 2006, en þá var ákærði dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir brot gegn 173a gr. almennra hegningarlaga. Þann 3. júlí 2008 gekkst ákærði undir viðurlagaákvörðun fyrir brot gegn 1. sbr. 2. mgr. 45. gr. a umferðarlaga og var sviptur ökurétti í tólf mánuði frá 3. júlí 2008. Þann 17. desember 2009 var ákærði dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga og 2., sbr. 5., gr. laga um ávana- og fíkniefni. Þann 9. júlí 2010 var ákærði dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og 1. og 2. mgr. 45. gr. a umferðarlaga auk 2. mgr. 37. gr. umferðarlaga og var sviptur ökurétti ævilangt frá 12. ágúst 2010 og þann 20. október 2011 var ákærði dæmdur í eins mánaðar fangelsi fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni svo og vopnalagabrot. Ákærði fékk reynslulausn á dómi frá 9. febrúar 2006 á 240 dögum þann 13. júlí 2007 í tvö ár. Ákærði rauf þá reynslulausn 27. mars 2008 og lauk afplánun 22. nóvember 2008.

Ákærði fékk aftur reynslulausn 28. desember 2011 í tvö ár á eftirstöðvum refsingar, 280 dögum. Dómar frá 9. júlí 2010 og 20. október 2011 eru hegningarauki við fyrri dóm þannig að ákærði rauf ekki reynslulausn með þeim brotum. Með brotum þeim sem ákærði hefur verið sakfelldur fyrir nú rauf hann reynslulausn sem honum var veitt 28. desember 2011 á eftirstöðvum refsingar, 280 dögum. Ber að dæma reynslulausnina upp nú með hliðsjón af 65. gr. laga 49/2005, sbr. 60. gr. laga nr. 19/1940.

Ákærði hefur með brotum sínum nú verið sakfelldur fyrir að aka þrettán sinnum sviptur ökurétti frá 27. febrúar 2012 til 20. október 2012. Er hér um tólftu ítrekun að ræða. Þá hefur ákærði verið sakfelldur fyrir átta brot gegn 45. gr. a umferðarlaga nr. 50/1987 og þar af fjórum sinnum með mikið magn fíkniefna í blóði. Áður hafði ákærði verið sakfelldur í tvígang fyrir fíkniefnaakstur. Er hér um níu ítrekanir að ræða. Þá hefur ákærði verið sakfelldur fyrir að hafa í tvígang haft í vörslum sínum samtals 37,20 g af amfetamíni, 0,95 g af Ecstasy og óþekktar töflur. Er þar um endurtekin brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni að ræða. Ákærði á sér engar málsbætur.

Með vísan til 72. gr. laga nr. 19/1940 og dómaframkvæmdar er refsing ákærða ákveðin fangelsi í eitt og hálft ár. Ekki eru efni til að skilorðsbinda refsinguna. Þá skal ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá uppkvaðningu dóms þessa.

Ákærði mótmælti því að hann yrði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar þar sem hluti sakarkostnaðar er vegna rannsóknar á kannabínóíðum sem ekki hafi verið ákært fyrir. Við skoðun á matsgerðum hefur efnið THC fundist í þvagi ákærða í öllum tilfellum sem það var rannsakað utan einu sinni. Verður ákærði ekki dæmdur til greiðslu á þeim kostnaði. Með vísan til 218. gr. laga nr. 88/2008 verður ákærði dæmdur til að greiða sakarkostnað sem hlaust af málinu, sem er samkvæmt yfirliti 1.012.654 krónur. Þá verður ákærði dæmdur til að greiða þóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar hdl., 261.040 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Vilhjálmur Vilhjálmsson, kt. 000000-0000, skal sæta fangelsi í eitt og hálft ár.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá uppkvaðningu dóms þessa.

Ákærði skal sæta upptöku á 37,20 g af amfetamíni, 0,95 g af Ecstasy og fjórum bláum töflum af óþekktri tegund.

Ákærði greiði sakarkostnað, samtals 1.273.694 krónur, þar með talda þóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar hdl., 261.040 krónur.

Ástríður Grímsdóttir.

Heimildaskrá