Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 12. febrúar 2008.
Mál nr. S-35/2008:
S-35/2008:
Ákæruvaldið
(Jóhann Svanur Hauksson ftr)
gegn
Braga Rúnari Jónssyni
Málið, sem dómtekið var 6. febrúar,
er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 15. janúar
sl., á hendur Braga Rúnari Jónssyni, kt. (...), Móholti 6, Bolungarvík, „fyrir
umferðar- og fíkniefnalagabrot með því að hafa, aðfaranótt fimmtudagsins 25.
október 2007, ekið bifreiðinni PN-457 óhæfur um að stjórna henni örugglega
vegna áhrifa ávana og fíkniefna, um gatnamót Nýbýlavegar og Skeljabrekku í
Kópavogi og síðan norður Hafnarfjarðarveg þar sem lögreglan stöðvaði aksturinn,
og í sama skipti haft í vörslum sínum 1, 24 grömm af tóbaksblönduðu hassi sem
fannst innan klæða á honum við leit á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í Reykjavík,
og lagt var hald á.
Telst brot þetta varða við 1. og 2.
mgr. 45. gr. a., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr.
laga nr. 66/2006 og við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni
nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 1.
mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni
nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002.“
Í ákæru er þess krafist að ákærði
verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr.
nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006
og jafnframt að framangreind fíkniefni, sem hald var lagt á, verði gerð upptæk
samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr.
233, 2001.
I.
Ákærði
sótti ekki þing er mál þetta var tekið fyrir og boðaði ekki forföll. Dómur er
nú lagður á málið samkvæmt heimild í 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um
meðferð opinberra mála, enda var þess getið í fyrirkalli, sem birt var ákærða
sjálfum, að svo mætti fara með málið.
Meðal
gagna málsins er matsgerð Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og
eiturefnafræði, dags. 21. nóvember 2007. Í henni er gerð grein fyrir
niðurstöðum rannsókna sem gerðar voru á blóðsýni sem ákærði lét í té í kjölfar
þess að lögregla hafði af honum afskipti í umrætt sinn. Samkvæmt því mældist
kókaín í blóði 30 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 8,8 ng/ml.
Með
framangreindri matsgerð og öðrum sakargögnum telst sannað að ákærði hafi gerst
sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega
heimfærð til refsiákvæða.
II.
Ákærði er fæddur árið 1984 og hefur á
síðastliðnum sjö árum ellefu sinnum gerst brotlegur við lög. Þar af tvisvar
fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga, sex sinnum gegn lögum
um meðferð ávana- og fíkniefna og jafnframt fimm sinnum gegn umferðarlögum.
Hann hefur fjórum sinnum verið sviptur ökurétti, samtals í tíu mánuði.
Ofangreind brot hafa ekki þýðingu við ákvörðun refsingar fyrir það brot sem
ákærði er nú sakfelldur fyrir.
Ákveða þarf ákærða sektarrefsingu
fyrir umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Líta þarf til
þess magns fíkniefna sem var í blóði ákærða og þess magns sem ákærði hafði í
fórum sínum. Þykir refsing hæfilega ákveðin 160.000 króna sekt í ríkissjóð.
Greiðist sektin ekki innan fjögurra vikna komi tólf daga fangelsi í hennar
stað.
Þegar litið er til þess að magn fíkniefna, sem mældust
ákveðin 12 mánuðir talið frá birtingu þessa dóms.
Samkvæmt
6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 68/2001,
Lykilorð
Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing. Vörslur. Ávana- og fíkniefni. Ökuréttarsvipting.
Útdráttur
Sakfellt fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og fyrir vörslur fíkniefna. Dæmd sekt og svipting ökuréttar.
Málið, sem dómtekið var 6. febrúar, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 15. janúar sl., á hendur Braga Rúnari Jónssyni, kt. (...), Móholti 6, Bolungarvík, „fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot með því að hafa, aðfaranótt fimmtudagsins 25. október 2007, ekið bifreiðinni PN-457 óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana og fíkniefna, um gatnamót Nýbýlavegar og Skeljabrekku í Kópavogi og síðan norður Hafnarfjarðarveg þar sem lögreglan stöðvaði aksturinn, og í sama skipti haft í vörslum sínum 1, 24 grömm af tóbaksblönduðu hassi sem fannst innan klæða á honum við leit á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í Reykjavík, og lagt var hald á.
Telst brot þetta varða við 1. og 2. mgr. 45. gr. a., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006 og við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002.“
Í ákæru er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006 og jafnframt að framangreind fíkniefni, sem hald var lagt á, verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.
I.
Ákærði sótti ekki þing er mál þetta var tekið fyrir og boðaði ekki forföll. Dómur er nú lagður á málið samkvæmt heimild í 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, enda var þess getið í fyrirkalli, sem birt var ákærða sjálfum, að svo mætti fara með málið.
Meðal gagna málsins er matsgerð Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, dags. 21. nóvember 2007. Í henni er gerð grein fyrir niðurstöðum rannsókna sem gerðar voru á blóðsýni sem ákærði lét í té í kjölfar þess að lögregla hafði af honum afskipti í umrætt sinn. Samkvæmt því mældist kókaín í blóði 30 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 8,8 ng/ml. Með framangreindri matsgerð og öðrum sakargögnum telst sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða.
II.
Ákærði er fæddur árið 1984 og hefur á síðastliðnum sjö árum ellefu sinnum gerst brotlegur við lög. Þar af tvisvar fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga, sex sinnum gegn lögum um meðferð ávana- og fíkniefna og jafnframt fimm sinnum gegn umferðarlögum. Hann hefur fjórum sinnum verið sviptur ökurétti, samtals í tíu mánuði. Ofangreind brot hafa ekki þýðingu við ákvörðun refsingar fyrir það brot sem ákærði er nú sakfelldur fyrir.
Ákveða þarf ákærða sektarrefsingu fyrir umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Líta þarf til þess magns fíkniefna sem var í blóði ákærða og þess magns sem ákærði hafði í fórum sínum. Þykir refsing hæfilega ákveðin 160.000 króna sekt í ríkissjóð. Greiðist sektin ekki innan fjögurra vikna komi tólf daga fangelsi í hennar stað.
Þegar litið er til þess að magn fíkniefna, sem mældust í blóði ákærða, var hátt (kókaín 30 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 8,8 ng/ml) þykir svipting ökuréttar nú hæfilega ákveðin 12 mánuðir talið frá birtingu þessa dóms.
Samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 68/2001, skal gera upptæk 1,24 g af tóbaksblönduðu hassi sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.
Með vísan til 164. gr. laga nr. 19/1991 ber að dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað, sem nemur 176.427 krónum vegna lyfjarannsóknar.
Ingiríður Lúðvíksdóttir, settur héraðsdómari, kvað upp þennan dóm.
DÓMSORÐ:
Ákærði, Bragi Rúnar Jónsson, greiði 160.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu en sæti ella tólf daga fangelsi.
Ákærði skal sviptur ökurétti í tólf mánuði talið frá birtingu þessa dóms.
Ákærði greiði 176.427 krónur í sakarkostnað.
Ingiríður Lúðvíksdóttir Rétt endurrit staðfestir Héraðsdómur Reykjaness 12. febrúar 2008.