Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 11. apríl 2008.
Mál nr. S-320/2008:
S-320/2008:
Ákæruvaldið
(Hulda María Stefánsdóttir ftr)
gegn
Arnar Anderson
Málið,
sem var dómtekið 7. apríl sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 11. mars sl., á hendur Arnari Anderson, kt. (...),
Lækjarhjalla 5, Kópavogi, „fyrir eftirtalin brot framin á árinu 2007 í
Kópavogi, nema annað sé tekið fram:
(Þórdís Bjarnadóttir hdl)
Lykilorð
Eignaupptaka. Skilorðsbundið fangelsi og sekt. Ávana- og fíkniefni. Ökuréttarsvipting.
Útdráttur
Sakfellt fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Dæmt skilorðsbundið fangelsi. Ökuréttarsvipting. Fíkniefni gerð upptæk.
Málið, sem var dómtekið 7. apríl sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 11. mars sl., á hendur Arnari Anderson, kt. (...), Lækjarhjalla 5, Kópavogi, „fyrir eftirtalin brot framin á árinu 2007 í Kópavogi, nema annað sé tekið fram:
- Umferðarlagabrot, með því að hafa að morgni laugardagsins 1. desember ekið bifreiðinni KZ-660 óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna austur Nýbýlaveg við Breiðholtsbraut, uns lögregla stöðvaði aksturinn á Nýbýlavegi við Reykjanesbraut.
Telst brot þetta varða við 1. og 2. mgr. 45. gr. a., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.
- Fíkniefnalagabrot:
2.1. Föstudaginn 2. nóvember að Hverfisgötu 102a í Reykjavík haft í vörslum sínum að hluta í söluskyni 8,8 g af amfetamíni, 35,15 g af hassi, 3,58 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 8 stk töflur með vímuefninu MDMA (ecstasy), sem lögreglumenn fundu við leit.
2.2. Að kvöldi þriðjudagsins 11. desember að Lækjarhjalla 5 haft í vörslum sínum 4,68 g af amfetamíni og 0,80 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem lögreglumenn fundu við leit.
2.3. Að kvöldi laugardagsins 2. febrúar 2008 að Lækjarhjalla 5 haft í vörslum sínum 1,06 g af hassi, sem lögreglumenn fundu við leit.
Teljast brot þessi varða við 2. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, að því er varðar meðferð ákærða á amfetamíni, sbr. og 6. gr. laganna, að því er varðar meðferð ákærða á kannabisefnum og vímuefninu MDMA, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006. Jafnframt er þess krafist að gerð verði upptæk ofangreind fíkniefni sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“
Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög frekast leyfa og skipaður verjandi hans krefst þóknunar sér til handa.
Málið er dæmt samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.
Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust viðurkennt að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákærunni. Með þeirri játningu, sem samrýmist framkomnum sakargögnum, telst sannað að ákærði hafi gerst sekur um brot gegn umferðarlögum laugardaginn 1. desember 2007 með þeim hætti sem tíundað er í ákærunni, en magn amfetamíns í blóðsýni sem ákærða var tekið reyndist vera 145 ng/ml og magn tetrahýdrókannabínóls 3,1 ng/ml. Jafnframt telst hann hafa þá daga sem greindir eru í ákæru brotið gegn lögum um ávana- og fíkni efni með því að hafa haft í vörslum sínum þau fíkniefni sem í ákæru greinir.
Háttsemi ákærða er réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í desember 1985 og á að baki nokkurn sakaferil. Samkvæmt sakavottorði hans voru þrjú brot framin áður en ákærði náði átján ára aldri og þykir ekki ástæða til að rekja þau. Í janúar 2004 var ákærði dæmdur til að greiða sekt fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Í mars sama ár gekkst hann undir sátt hjá lögreglustjóra fyrir hraðakstur og var þá sviptur ökurétti í fjóra mánuði. Í júní sama ár gekkst hann aftur undir sátt hjá lögreglustjóra fyrir sviptingarakstur. Í janúar 2005 var hann dæmdur í fangelsi í þrjá mánuði fyrir þjófnað og í mars sama ár var hann aftur dæmdur í fangelsi fyrir þjófnaðarbrot skilorðsbundið í tvö ár. Skilorðstími vegna þess dóms rann út 16. mars 2007.
Við ákvörðun refsingar fyrir brot ákærða gegn lögum um ávana- og fíkniefni verður litið til þess magns fíkniefna sem ákærði hafði í vörslum sínum og hefur játað að hafa ætlað að hluta til til sölu. Ennfremur hefur það áhrif til mildunar að ákærði játaði brot sitt greiðlega bæði hjá lögreglu og fyrir dómi. Þykir refsing ákærða fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni hæfilega ákveðin fangelsi í þrjátíu daga.
Ákærði er nú kominn með fasta vinnu í vélsmiðju og hefur vilyrði fyrir námssamningi þar. Einnig hyggst hann fara í nám í rennismíði í haust. Með vísan til þessa verður refsing ákærða skilorðsbundin. Skal refsingin falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu þessa dóms haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Í 45. gr. a umferðarlaga nr. 50/1987 segir að mælist ávana- og fíkniefni, sem eru bönnuð á íslensku yfirráðasvæði, í blóði eða þvagi ökumanns teljist hann vera undir áhrifum ávana- og fíkniefna og óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega. Með vísan til 101. gr. umferðarlaga ber að svipta ákærða ökurétti. Í ljósi þess magns af tetrahýdrókannabínól og amfetamíni sem mældist í blóði ákærða þykir svipting í tólf mánuði hæfileg. Refsing ákærða fyrir brot gegn umferðarlögum þykir hæfileg 140.000 króna sekt til ríkissjóðs. Verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna, talið frá birtingu dómsins, komi í hennar stað fangelsi í tíu daga.
Samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni er fallist á upptöku kröfu ákæruvalds samkvæmt ákæru.
Með vísan til 164. gr. laga nr. 19/1991 ber að dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað, samtals 210.940 krónur, þar af 150.940 krónur vegna kostnaðar við rannsókn á fíkniefnum í blóði og 60.000 krónur í þóknun til skipaðs verjanda síns, Þórdísar Bjarnadóttur hrl., og er virðisaukaskattur meðtalinn.
Ingiríður Lúðvíksdóttir, settur héraðsdómari, kvað upp þennan dóm.
DÓMSORÐ:
Ákærði Arnar Anderson sæti fangelsi í þrjátíu daga, en fullnustu refsingar innar skal frestað og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði skal sviptur ökurétti í tólf mánuði talið frá dómsbirtingu.
Ákærði greiði 140.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu en sæti ella tíu daga fangelsi.
Ákærði sæti upptöku á haldlögðum 13,48 g af amfetamíni, 36,21 g af hassi, 4,38 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 8 stk. töflum með vímuefninu MDMA (ecstasy).
Ákærði greiði 210.940 krónur í sakarkostnað, þar af 60.000 krónur í þóknun til skipaðs verjanda síns, Þórdísar Bjarnadóttur hrl. Ingiríður Lúðvíksdóttir Rétt endurrit staðfestir Héraðsdómur Reykjaness 11.04.2008.