Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 24. apríl 2007.
Mál nr. S-267/2007:
Ákæruvaldið
(Þuríður B. Sigurjónsdóttir ftr)
gegn
Gunnari Reynari Gunnarssyni
(Páll Arnór Pálsson hrl)
Lykilorð
Skilorðsrof. Upptaka. Ávana- og fíkniefni.
Útdráttur
Rúmlega tvítugur karlmaður dæmdur í 9 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslur amfetamíns. Skilorðsrof og eldri skilorðsdómur dæmdur upp. 42,88 grömm af amfetamíni gerð upptæk.
Mál þetta, sem dómtekið var 18. þ.m., höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru, útgefinni 20. mars 2007, á hendur ákærða, Gunnari Reynari Gunnarssyni, kt. 000000-0000, nú til heimilis að Miklubraut 1, Reykjavík, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfaranótt föstudagsins 15. september 2006 í bifreiðinni ZP-890 á Strandgötu í Hafnarfirði haft í vörslum sínum 42,88 g af amfetamíni, sem lögregla fann við leit í bifreiðinni.
Framangreind háttsemi ákærða er talin varða við 2. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
Í ákæru er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og jafnframt að gerð verði upptæk 42,88 g af amfetamíni, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.
I.
Mál þetta er dæmt sem játningarmál án frekari sönnunarfærslu samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, en ákærði hefur fyrir dómi skýlaust viðurkennt að hafa gerst sekur um þá háttsemi, sem honum er gefin að sök í málinu. Telst sannað með þeirri játningu, sem er í samræmi við framlögð sakargögn, að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæru greinir og þar er réttilega færð til refsiákvæða.
II.
Frá árinu 2002 hefur ákærði fjórum sinnum hlotið dóma fyrir hegningarlagabrot. Þann 28. júní 2002 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað, 7. nóvember s.á. 3ja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað og hylmingu. Var fyrrnefndur dómur þá dæmdur með. Þann 30. desember 2004 var ákærði svo dæmdur í 7 mánaða fangelsi skilorðsbundið í 2 ár fyrir þjófnað og tilraun til þjófnaðar. Loks gekkst ákærði undir viðurlagaákvörðun þann 5. apríl 2005 vegna fíkniefnalagabrot. Var honum gert að greiða 112.500 króna sekt. Með broti því sem ákærði er nú sakfelldur fyrir rauf hann skilorð dómsins frá 30. desember 2004. Ber því að taka þann dóm upp og dæma í einu lagi með broti ákærða nú, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga. Að framangreindu virtu og í ljósi hreinskilnislegrar játningar ákærða þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 9 mánuði. Eins og ráða má af sakavottorði ákærða hafði nokkur tími liðið frá síðustu brotum hans þangað til hann framdi brot það sem hann er nú sakfelldur fyrir. Hann hefur nú tekið sig á og samkvæmt læknisvottorði innritaðist ákærði á sjúkrastofnanir SÁÁ þann 2. október 2006. Hann var á sjúkrahúsinu Vogi frá 2. október 2006 til 5. nóvember 2006 og á eftirmeðferðarstofnunni Staðarfelli frá 7. nóvember 2006 til 5. desember 2006. Þann 5. desember 2006 byrjaði ákærði í Víkingastuðningi I og mætti þar tvisvar í viku. Hann er nú kominn í Víkingastuðning II og lýkur hann þeirri meðferð þann 5. desember 2007. Jafnframt er ákærði í viðhaldsmeðferð á göngudeild SÁÁ og hefur hann búið á áfangaheimili SÁÁ, Miklubraut 1 Reykjavík frá 5. desember 2006. Í ljósi þessa þykir rétt að ákveða að refsing ákærða skuli verða skilorðsbundin og falla niður að liðnum þremur árum frá uppsögu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955. Þá skal ákærði sæta upptöku á þeim fíkniefnum sem lögregla lagði hald á og nánar greinir í dómsorði. Þá verður ákærði dæmdur til að greiða allan sakarkostnað sem nemur alls 130.027 krónum og samanstendur af kostnaði af matsgerð 74.002 krónur og þóknun skipaðs verjanda síns Páls Arnórs Pálssonar hrl., sem þykir hæfilega ákveðin 56.025 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Finnbogi H. Alexandersson héraðsdómari kveður dóminn upp.
DÓMSORÐ:
Ákærði, Gunnar Reynar Gunnarsson, sæti fangelsi í 9 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum þremur árum frá uppsögu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955.
Ákærði sæti upptöku á 42,88 g af amfetamíni.
Ákærði greiði allan sakarkostnað, 130.027 krónur, þar með talda þóknun skipaðs verjanda ákærða, Páls Arnórs Pálssonar hrl,. 56.025 krónur.
Finnbogi H. Alexandersson