Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. E-1260/2006:

Þórir Gísli Sigurðsson

(Klemenz Eggertsson hdl)

gegn

Dofra Þórðarsyni og

Poulu Steingrimsdóttur Petersen

(Ármann Fr. Ármannsson hdl)

Fasteignakaup. Gallar. Útivist.

Mál fellt niður vegna útivistar af hálfu stefnanda og stefnda úrsurðaður málskostnaður.

Stefnandi gerir þær dómkröfur aðallega að stefndu verði óskipt dæmd til þess að greiða stefnanda 7.621.177 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt III., IV. og V. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. febrúar 2006 til greiðsludags. Til vara að stefndu verði dæmd til að greiða stefnanda óskipt 7.396.177 krónur með dráttarvöxtum eins og í aðalkröfu. Í báðum tilvikum er krafist málskostnaðar. Þá krefst stefnandi þess að stefndu verði dæmd til að gefa út fyrirvaralaust afsal fyrir fasteigninni Fjallalind 106, Kópavogi, að viðlögðum 30.000 króna dagsektum.

Stefndu krefjast aðallega frávísunar málsins, til vara sýknu en að því frágengnu að kröfur stefnanda verði lækkaðar. Í öllum tilvikum krefjast þau málskostnaðar.

Frávísunarkröfu stefndu var hafnað með úrskurði þann 16. nóvember 2006 og var þar kveðið á um að ákvörðun um málskostnað biði efnisdóms í málinu. Var málið sameinað málinu nr. E-1337/2005 þann dag gegn mótmælum stefndu. Í þinghaldi þann 19. desember varð útivist af hálfu stefnanda og voru málin í framhaldi skilin sundur að nýju og þetta mál tekið til úrskurðar um niðurfellingu og ákvörðun málskostnaðar í samræmi við ákvæði 2. mgr., sbr. b. lið 1. mgr. 105. gr. laga nr. 91/1991, en málið nr. 1337/2005 tekið til dóms, sem útivistarmál, að fram kominni sókn. Krafðist stefnandi endurupptöku  með beiðni móttekinni þann 15. janúar sl. þar sem lögmaður hans hefði haft lögmæt forföll í fyrrnefndu þinghaldi þann 19. desember. Þeirri beiðni var endanlega hafnað með dómi Hæstaréttar 12. febrúar sl. í máli nr. 52/2007.

Með vísan til áður tilvitnaðrar greinar laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála er mál þetta fellt niður.

Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 130. gr. sömu laga verður stefnanda gert að greiða stefndu málskostnað. Við ákvörðun hans er haft í huga að stefndi verður að teljast hafa haft nokkuð hagræði af því að gagnsakarkröfu sama efnis og er til umfjöllunar í máli þessu hafði áður verið vísað frá dómi, að framkomnum vörnum stefndu og er málskostnaður vegna þessa til umfjöllunar í dómi í máli nr. 1337/2005, sem einnig er dæmt í dag. Að teknu tilliti til framangreinds og þess óhagræðis sem stefndu hafa haft af því að taka til varna í máli þessu skal stefnandi greiða stefndu málskostnað sem þykir hæfilega ákveðinn með hliðsjón af sakarefni málsins 150.000 krónur.

Uppkvaðning úrskurðar hefur dregist nokkuð vegna embættisanna dómara.

Halldór Björnsson settur héraðsdómari kvað upp úrskurð þennan.

Ú r s k u r ð a r o r ð :

Mál þetta er fellt niður.

Stefnandi Þórir Gísli Sigurðsson greiði stefndu Dofra Þórðarsyni og Paulu Steingrímsdóttur Petersen, 150.000 krónur í málskostnað.

Halldór Björnsson

Heimildaskrá

Dómaskrá