Héraðsdómur Norðurlands vestra
Dómur 18. maí 2007.
Mál nr. S-73/2007:
Ákæruvaldið
(Birkir Már Magnússon fulltrúi)
gegn
Viktori Guðmundssyni
Guðmundi Guðmundssyni
I
(Jón Sigfús Sigurjónsson hdl)
Lykilorð
Áfengislagabrot. Eignaupptaka.
Útdráttur
Rekstraraðilar veitingastaðar sakfelldir fyrir brot gegn áfengislögum o.fl.
I
Mál þetta, sem þingfest var 13. mars sl. og dómtekið 12. apríl sl., er höfðað af lögreglustjóranum á Sauðárkróki með ákæru dagsettri 19. febrúar 2007 á hendur Viktori Guðmundssyni, fæddum 10. apríl 1973, til heimilis að Birkihlíð 25, Sauðárkróki og Guðmundi Guðmundssyni, fæddum 21. ágúst 1969, til heimilis að Kaupvangstorgi 1, Sauðárkróki, ,,fyrir eftirtalin brot:
Gegn ákærða Viktori fyrir áfengislagabrot:
Með því að hafa sem stjórnarmaður einkahlutafélagsins Guðmundssynir ehf., kt. 540904-2860, staðið fyrir áfengisveitingum gegn gjaldi til viðskiptavina skemmtistaðarins Bar-inn við Aðalgötu á Sauðárkróki að jafnaði nokkur kvöld í mánuði frá 1. desember 2004 til 2. apríl 2006, án þess að hafa áður aflað til þess lögboðins vínveitingaleyfis frá sveitarstjórn.
Telst þetta varða við 1. mgr. 3. gr. sbr. 13. gr., sbr. 1. mgr. 4. gr. og 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998.
II
Gegn ákærða Guðmundi fyrir brot gegn áfengislögum og barnaverndarlögum:
1) Með því að hafa sem varamaður í stjórn Guðmundssona ehf. látið birta í héraðsdagskránni Sjónhorninu auglýsingu um keppni í áfengisdrykkju á skemmtistaðnum Bar-inn á Sauðárkróki, en auglýsingin birtist þann 23. mars 2006, með orðunum: „Brjáluð skotkeppni – 10.000.- kall fyrir 1. sæti. Þátttökugjald 1000 kr.”, en yfirskrift auglýsingarinnar var: „SKOTHELGI Á BARNUM”.
Telst þetta varða við 20. gr., sbr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998, sbr. 15. gr. laga um prentrétt nr. 57/1956.
2) Með því að hafa aðfararnótt sunnudagsins 26. mars 2006, sem starfsmaður skemmtistaðarins Bar-inn á Sauðárkróki, veitt umtalsvert magn áfengis gegn gjaldi til 3 einstaklinga sem ekki höfðu náð 20 ára aldri, og þar á meðal til eins aðila sem ekki hafði náð 18 ára aldri, en umræddir einstaklingar voru þátttakendur í drykkjukeppni, á framangreindum skemmtistað, sem ákærði stóð fyrir og stjórnaði og fólst í því hver keppenda gæti innbyrt flest Ópal- eða Tópas-vodkaskot með 27% vínandastyrkleika, en afleiðingar keppninnar urðu þær að framangreind 3 ungmenni voru flutt á sjúkrahús vegna ofneyslu áfengis.
Telst þetta varða við 1. mgr. 18. gr., sbr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998, og 2. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar. Þess er jafnframt krafist að eftirtalið áfengi, sem lögregla haldlagði við rannsókn málsins á skemmtistaðnum Bar-inn þann 2. apríl 2006, verði gert upptækt samkvæmt heimild í 1. og 3. tl. 1. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940:
Tegund Stærð umbúða Magn/fjöldi Áfengisprósenta Smirnoff Ice 275ml 16 fl 5% Smirnoff Tw- Berry 275ml 21 fl 5% Smirnoff Tw- Tropical 275ml 27 fl 5% Smirnoff Tw-Appel 275ml 36 fl 5% Egils Jólabjór 330 ml 2 fl 4,80% Baccardi Breezer -Orange 275 ml 23 fl 5% Baccardi Breezer -Pineapple 275 ml 19 fl 5% Baccardi Breezer -Watermelon 275 ml 15 fl 5% Gato Nero hvítv. 18,75 cl 6 fl 13% Tuborg bjór 50 cl 41 fl 4,50% Baccardi Breezer –Orange 275 ml 11 fl 5% Baccardi Breezer -Pineapple 275 ml 19 fl 5% Baccardi Breezer –Watermelon 275 ml 11 fl 5% Baccardi Breezer -Lemon 275 ml 12 fl 5% Smirnoff Ice 275 ml 9 fl 5% Smirnoff Tw-Tropical 275 ml 8 fl 5% Smirnoff Tw-Berry 275 ml 6 fl 5% Smirnoff Tw-Apple 275 ml 6 fl 5% Carlsberg bjór 330 ml 12 fl 4,60% Tuborg bjór 330 ml 11 fl 4,50% Egils Lite bjór 33 cl 12 fl 4,40% Eden Eplasnafs 700 ml upp að efri mörkum miða framan 20% Tuborg Gold bjór 330 ml 4 fl 5,50% Tuborg Julebrygg bjór 330 ml 3 fl 5,60% Miller bjór 330 ml 2 fl 4,70% Egils Pilsner 330 ml 1 fl 4,50% Víking Gull 330 ml 2 fl 5,60% Opal vodkasnafs, blár 700 ml 2 fl 27% Opal vodkasnafs, blár 700 ml hálffull flaska 27% Opal vodkasnafs, rauður 700 ml 1/3 vökvi í flösku 27% Smirnoff vodka 700 ml 3/5 vökvi í flösku 37,50% Eden Eplasnafs 700 ml 3/5 vökvi í flösku 20% Brennivín 700 ml 1/2 vökvi í flösku 40% Tópas vodkaskot 700 ml Axlarfull af vökva 27% Baccardi Breezer -Pineapple 275 ml 20 fl 5% Baccardi Breezer -Orange 275 ml 15 fl 5% Tuborg bjór 500 ml 9 fl 4,50% Thule bjór 500 ml 3 fl 5% Carlsberg bjór 33 cl 6 fl 4,60% Tuborg bjór 33 cl 24 fl 5,50% Egil Jólabjór 33 cl 12 fl 4,80% Tuborg Julebrygg 33 cl 10 fl 5,60% Tuborg Pilsner 33 cl 3 fl 4,50% Egils Premium 33 cl 1 fl 5,70% Smirnoff Tw -Berry 275 ml 24 fl 5% Tuborg Grön 0,5 ltr 69 fl 4,50% Tuborg Grön 33 cl 62 fl 4,50% Thule bjór 0,5 ltr 12 fl 5% Smirnoff Ice 275 ml 7 fl 5% Egils Lite bjór 33 cl 15 fl 4,40% Budweiser bjór 33 cl 30 fl 4,40% Smirnoff Tw -Apple 275 ml 12 fl 5% Smirnoff Ice 275 ml 15 fl 5% Baccardi Breezer - Pineapple 275 ml 8 fl 5% Baccardi Breezer - Orange 275 ml 7 fl 5% Gato Blanco hvítv. 18,75 cl 1 fl 13% Boland Cellar Merlot 18,75 cl 1 fl 14,50% Asti Abisazia 75 cl 1 fl 7,50% Carlsberg bjór 33 cl 10 fl 4,60% Tuborg Gold bjór 33 cl 12 fl 5,50% Thule bjór 33 cl 24 fl 5% Tuborg Grön 25 ltr 3 kútar 4,50% Tópas vodkaskot, grænn 700 ml 6 fl 27% Tópas vodkaskot, fjólublár 700 ml 2 fl 27% Opal vodkaskot, rauður 700 ml 6 fl 27% Eden eplasnafs 700 ml 2 fl 20% Bacardi Oro 70 cl 2 fl 37,50% Bacardi Suprior 70 cl 2 fl 37,50% Bacardi Limon 70 cl 1 fl 32% Hot n´ Sweet - 70 cl 1 fl 32% Hot n´ Sweet - 50 cl 1 fl 32% Metusalem Rum 70 cl 6 fl 40% Fisherman 70 cl 1 fl 30% Johnny Walker Black Label 70 cl 1 fl 40% Scottish Leader 1 ltr 1 fl 40% Dimple 70 cl 1 fl 40% Beefeater Gin 1 ltr 1 fl 40% Captain Morgan 1 ltr 2 fl 35% Smirnoff vodka 1 ltr 3 fl 37,50% Marie Brizard líkjör - Banana 500 ml 2 fl 25% Marie Brizard líkjör - Curaqao 500 ml 2 fl 25% Marie Brizard líkjör - Curaqao 500 ml rúml, axlarfull af líkjör 25% Marie Brizard líkjör – Apry 500 ml 1 fl 20,50% Marie Brizard líkjör - Apry 500 ml um 6 cl af líkjör í flösku 20,50% Marie Birzard líkjör - Menthe 500 ml 2 fl 25% Disaronno 700 ml 4 fl 28% Southern Comfort 700 ml 1 fl 35% Baileys 700 ml 2 fl 17% Baileys 1 ltr 1 fl 17% Gordons Gin 70 cl 1 fl 37,50% Sierra Tequila Silver 70 cl 3 fl 38% Sierra Tequila Gold 70 cl 1 fl 38% Dooleys 70 cl 1 fl 17% Hennesy VSOP 70 cl 1 fl 40% Campary 70 cl 1 fl 21% Boland Cellar léttvín 187 ml 7 fl 14,50% Lindeman Cawarra léttvín 187 ml 11 fl 13% Bacardi Breezer - Watermelon 275 ml 12 fl 5% Bacardi Breezer - Pineapple 275 ml 96 fl 5% Smirnoff Tw- Tropical 275 ml 6 fl 5% Tuborg Grön bjór 0,5 ltr 144 fl 4,50% Pilsner 0,5 ltr 12 fl 4,50% Nord Cap fishermint skot 20 ml 42 stk 30% Opal vodkaskot, blár 700 ml við efrimörk miða framan 27% Opal vodkaskot, rauður 700 ml 1 fl 27% Campari 100 cl 1/2 af vökva 21% Sierra Tequila silver 70 cl 1/2 af vökva 38% Kahlúa líkjör 50 cl upp að letri á bakhlið 20% Sierra Tequila silver 70 cl milli I og E á hlið flösku 38% Bacardi Superior 70 cl upp að neðrimörkum miða framan 37,50% Romana Sambvka 70 cl rúmlega hálffull 40% Smirnoff vodka 1 ltr 2/6 af vökva í flösku 37,50% Hennesy VSOP 700 ml 1 fl 40% Eden Eplasnafs 700 ml næstum full af vökva 20% Marie Brizard - Cacao 500 ml 1/2 af vökva 20,50% Marie Brizard - Curaqao 500 ml upp að miðju, neðri miða framan 25% Marie Brizard - Banana 500 ml 1/3 af vökva 25% Marie Brizard - Apry 500 ml axlarfull af vökva 20,50% Marie Brizard - Menthe 500 ml upp að efrim. neðri miða framan 25% Bacardi Oro 70 cl rétt rúmlega hálf af vökva 37,50% Bacardi Límon 70 cl við neðrimörk miða aftan 32% Wild Kirsch 700 ml Rétt við neðri brún á neðsta haki 16% Tópas vodkaskot - grænn 700 ml 1 fl 27% Tópas vodkaskot - grænn 700 ml 1/3 af vökva 27% Hotn ´Sweet 70 cl 3/4 af vökva í flösku 32% Kveldúlfur 700 ml 1/8 af vökva í flösku 27% Brennivín 700 ml 1 fl 40% Disaronno 700 ml 1/4 af vökva í flösku 28% Baileys 1 ltr Tæplega full af vökva 17% Malibu 50 cl 1/2 af vökva 21% Apfel Korn 1 ltr við neðsta hak á flösku 20% Captain Morgan 1 ltr axlarfull af vökva 35% Remy Martin VSOP 700 ml 1/8 af vökva í flösku 40% Dooleys 700 ml rúmlega hálffull 17% Hotn ´Sweet 700 ml 1/4 af vökva í flösku 32% Sierra Tequila Reposado 700 ml við I á hlið, efri brún 38% Jólasnafs, brennivín 500 ml tæplega hálf af vökva 40% Scottish Leader 700 ml 1/2 af vökva 40% Sierra Tequila Reposado 70 cl Rétt ofan við miða að framan 38% Fisherman 70 cl 3/5 af vökva 30% Larsen VSOP 700 ml 1/8 af vökva í flösku 40% Johnny Walker Black Label 70 cl 2/3 af vökva í flösku 40% Island Pure Malt Whisky 70 cl 1/8 af vökva í flösku 40% Gordons Gin 1 ltr rúmlega 1/3 af vökva í flösku 37,50% Eden Eplasnafs 700 ml axlarfull af vökva 20% Southern Comfort 700 ml axlarfull af vökva 35% Beefeater Gin 1 ltr 3/5 af vökva í flösku 40% Bells Whisky 1 ltr 1 fl 40% Passoa 1 ltr 1/2 af vökva 17%”
III
Ákærðu sóttu þing þegar málið var dómtekið þann 12. apríl sl. og játuðu skýlaust háttsemi þá sem þeim er í ákæru gefin að sök. Með játningu ákærðu, sem er í samræmi við gögn málsins, telst sekt ákærðu fyllilega sönnuð og með hliðsjón af játningu ákærðu þykir háttsemi þeirra réttilega færð til refsiákvæða í ákæru. Ákærðu hafa ekki gert athugasemd við kröfu ákæruvaldsins um upptöku áfengis.
Við ákvörðun refsingar ákærða Viktors ber að horfa til þess að hann hefur ekki áður sætt refsingu, hann hefur skýlaust játað brot sitt og þá hefur hann hætt rekstri veitingastaðarins. Þykir refsing hans hæfilega ákveðin 100.000 króna sekt til ríkissjóðs en 8 daga fangelsi komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna.
Við ákvörðun refsingar ákærða Guðmundar ber að horfa til sömu atriða og varðandi ákærða Viktor. Þá verður að horfa til þess að ,,drykkjukeppni“ hvetur til misnotkunar á áfengi og í þessu tilfelli er ljóst að ,,keppnin“ fór úr böndunum þannig að þrjú ungmenni voru flutt á sjúkrahús vegna ofneyslu áfengis. Þá verður að taka tillit til þess að í ,,keppninni“ tóku þátt ungmenni sem ekki hafa aldur til að neyta áfengis og eitt ungmennanna hafði ekki náð 18 ára aldri. Refsing ákærða Guðmundar þykir hæfilega ákveðin 250.000 króna sekt til ríkissjóðs en 18 daga fangelsi komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna.
Með hliðsjón af niðurstöðu málsins ber að dæma ákærðu hvorn um sig til greiðslu helmings alls sakarkostnaðar. Samkvæmt yfirliti rannsóknara féll 22.500 króna sakarkostnaður til við rannsókn málsins. Við þennan kostnað bætist þóknun verjanda ákærðu, Jóns Sigfúsar Sigurjónssonar, héraðsdómslögmanns, en hann var skipaður verjandi þeirra við rannsókn málsins hjá lögreglu svo og við meðferð málsins fyrir dóminum. Samanlögð þóknun verjandans þykir hæfilega ákveðin 273.900 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Við ákvörðun þóknunar verjanda hefur verið tekið tillit til þess tíma sem fór í ferðalag verjandans. Að endingu telst ferðakostnaður verjandans að fjárhæð 39.000 krónur einnig til sakarkostnaðar.
Af hálfu ákæruvaldsins sótti málið Birkir Már Magnússon, fulltrúi lögreglustjórans á Sauðárkróki.
Halldór Halldórsson dómstjóri kveður upp dóm þennan. Dómsuppsaga hefur dregist lítillega vegna anna dómarans.
DÓMSORÐ
Ákærði, Viktor Guðmundsson, greiði 100.000 króna sekt til ríkissjóðs en 8 daga fangelsi komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan 4 vikna.
Ákærði, Guðmundur Guðmundsson, greiði 250.000 króna sekt til ríkissjóðs en 18 daga fangelsi komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan 4 vikna.
Ákærðu greiði hvor um sig 167.700 krónur í sakarkostnað, þar með talinn helmingur 273.900 króna þóknunar verjanda þeirra, Jóns Sigfúsar Sigurjónssonar héraðsdómslögmanns.
Upptækt er gert eftirtalið áfengi:
Smirnoff Ice 275 ml 16 flöskur, Smirnoff Tw- Berry 275 ml 21 flaska, Smirnoff Tw- Tropical 275 ml 27 flöskur, Smirnoff Tw-Appel 275 ml 36 flöskur, Egils Jólabjór 330 ml 2 flöskur, Baccardi Breezer -Orange 275 ml 23 flöskur, Baccardi Breezer -Pineapple 275 ml 19 flöskur, Baccardi Breezer -Watermelon 275 ml 15 flöskur, Gato Nero hvítvín 18,75 cl 6 flöskur, Tuborg bjór 50 cl 41 flaska, Baccardi Breezer –Orange 275 ml 11 flöskur, Baccardi Breezer -Pineapple 275 ml 19 flöskur, Baccardi Breezer –Watermelon 275 ml 11 flöskur, Baccardi Breezer - Lemon 275 ml 12 flöskur, Smirnoff Ice 275 ml 9 flöskur, Smirnoff Tw-Tropical 275 ml 8 flöskur, Smirnoff Tw-Berry 275 ml 6 flöskur, Smirnoff Tw-Apple 275 ml 6 flöslkur, Carlsberg bjór 330 ml 12 flöskur, Tuborg bjór 330 ml 11 flöskur, Egils Lite bjór 33 cl 12 flöskur, Eden Eplasnafs 700 ml upp að efri mörkum miða framan, Tuborg Gold bjór 330 ml 4 flöskur, Tuborg Julebrygg bjór 330 ml 3 flöskur, Miller bjór 330 ml 2 flöskur, Egils Pilsner 330 ml 1 flaska, Víking Gull 330 ml 2 flöskur, Opal vodkasnafs, blár 700 ml 2 flöskur, Opal vodkasnafs, blár 700 ml hálffull flaska, Opal vodkasnafs, rauður 700 ml 1/3 vökvi í flösku, Smirnoff vodka 700 ml 3/5 vökvi í flösku, Eden Eplasnafs 700 ml 3/5 vökvi í flösku, Brennivín 700 ml 1/2 vökvi í flösku, Tópas vodkaskot 700 ml axlarfull af vökva, Baccardi Breezer - Pineapple 275 ml 20 flöskur, Baccardi Breezer -Orange 275 ml 15 flöskur, Tuborg bjór 500 ml 9 flöskur, Thule bjór 500 ml 3 flöskur, Carlsberg bjór 33 cl 6 flöskur, Tuborg bjór 33 cl 24 flöskur, Egil Jólabjór 33 cl 12 flöskur, Tuborg Julebrygg 33 cl 10 flöskur, Tuborg Pilsner 33 cl 3 flöskur, Egils Premium 33 cl 1 flaska, Smirnoff Tw -Berry 275 ml 24 flöskur, Tuborg Grön 0,5 ltr 69 flöskur, Tuborg Grön 33 cl 62 flöskur, Thule bjór 0,5 ltr 12 flöskur, Smirnoff Ice 275 ml 7 flöskur, Egils Lite bjór 33 cl 15 flöskur, Budweiser bjór 33 cl 30 flöskur, Smirnoff Tw -Apple 275 ml 12 flöskur, Smirnoff Ice 275 ml 15 flöskur, Baccardi Breezer - Pineapple 275 ml 8 flöskur, Baccardi Breezer - Orange 275 ml 7 flöskur, Gato Blanco hvítvín 18,75 cl 1 flaska, Boland Cellar Merlot 18,75 cl 1 flaska, Asti Abisazia 75 cl 1 flaska, Carlsberg bjór 33 cl 10 flöskur, Tuborg Gold bjór 33 cl 12 flöskur, Thule bjór 33 cl 24 flöskur, Tuborg Grön 25 ltr 3 kútar, Tópas vodkaskot, grænn 700 ml 6 flöskur, Tópas vodkaskot, fjólublár 700 ml 2 flöskur, Opal vodkaskot, rauður 700 ml 6 flöskur, Eden eplasnafs 700 ml 2 flöskur, Bacardi Oro 70 cl 2 flöskur, Bacardi Suprior 70 cl 2 flöskur, Bacardi Limon 70 cl 1 flaska, Hot n´ Sweet 70 cl 1 flaska, Hot n´ Sweet 50 cl 1 flaska, Metusalem Rum 70 cl 6 flöskur, Fisherman 70 cl 1 flaska, Johnny Walker Black Label 70 cl 1 flaska, Scottish Leader 1 ltr 1 flaska, Dimple 70 cl 1 flaska, Beefeater Gin 1 ltr 1 flaska, Captain Morgan 1 ltr 2 flaska, Smirnoff vodka 1 ltr 3 flöskur, Marie Brizard líkjör - banana 500 ml 2 flöskur, Marie Brizard líkjör - Curaqao 500 ml 2 flöskur, Marie Brizard líkjör - Curaqao 500 ml rúml, axlarfull flaska, Marie Brizard líkjör – Apry 500 ml 1 flaska, Marie Brizard líkjör - Apry 500 ml um 6 cl í einni flösku, Marie Birzard líkjör - Menthe 500 ml 2 flöskur, Disaronno 700 ml 4 flöskur, Southern Comfort 700 ml 1 flaska, Baileys 700 ml 2 flöskur, Baileys 1 ltr 1 flaska, Gordons Gin 70 cl 1 flaska, Sierra Tequila Silver 70 cl 3 flöskur, Sierra Tequila Gold 70 cl 1 flaska, Dooleys 70 cl 1 flaska, Hennesy VSOP 70 cl 1 flaska, Campary 70 cl 1 flaska, Boland Cellar léttvín 187 ml 7 flöskur, Lindeman Cawarra léttvín 187 ml 11 flöskur, Bacardi Breezer - Watermelon 275 ml 12 flöskur, Bacardi Breezer - Pineapple 275 ml 96 flöskur, Smirnoff Tw- Tropical 275 ml 6 flöskur, Tuborg Grön bjór 0,5 ltr 144 flöskur, Pilsner 0,5 ltr 12 flöskur, Nord Cap fishermint skot 20 ml 42 stk, Opal vodkaskot, blár 700 ml við efrimörk miða framan, Opal vodkaskot, rauður 700 ml 1 flaska, Campari 100 cl 1/2 flaska, Sierra Tequila silver 70 cl 1/2 flaska, Kahlúa líkjör 50 cl flaska, upp að letri á bakhlið, Sierra Tequila silver 70 cl milli I og E á hlið flösku, Bacardi Superior 70 cl upp að neðrimörkum miða framan, Romana Sambvka 70 cl rúmlega hálffull flaska, Smirnoff vodka 1 ltr 2/6 af vökva í flösku, Hennesy VSOP 700 ml 1 flaska, Eden Eplasnafs 700 ml næstum full flaska, Marie Brizard - Cacao 500 ml 1/2 flaska, Marie Brizard - Curaqao 500 ml upp að miðju, neðri miða framan, Marie Brizard - Banana 500 ml 1/3 af flösku, Marie Brizard - Apry 500 ml axlarfull flaska, Marie Brizard - Menthe 500 ml upp að efrim. neðri miða framan, Bacardi Oro 70 cl rétt rúmlega hálf flaska, Bacardi Límon 70 cl við neðrimörk miða aftan, Wild Kirsch 700 ml rétt við neðri brún á neðsta haki, Tópas vodkaskot - grænn 700 ml 1 flaska, Tópas vodkaskot - grænn 700 ml 1/3 af flösku, Hotn ´Sweet 70 cl 3/4 af flösku, Kveldúlfur 700 ml 1/8 af flösku, Brennivín 700 ml 1 flaska, Disaronno 700 ml 1/4 af flösku, Baileys 1 ltr tæplega full flaska, Malibu 50 cl 1/2 flaska, Apfel Korn 1 ltr við neðsta hak á flösku, Captain Morgan 1 ltr axlarfull flaska, Remy Martin VSOP 700 ml 1/8 af flösku, Dooleys 700 ml rúmlega hálffull flaska, Hotn ´Sweet 700 ml 1/4 af flösku, Sierra Tequila Reposado 700 ml við I á hlið, efri brún flösku, Jólasnafs, brennivín 500 ml tæplega hálf flaska, Scottish Leader 700 ml 1/2 flaska, Sierra Tequila Reposado 70 cl rétt ofan við miða að framan, Fisherman 70 cl 3/5 af flösku, Larsen VSOP 700 ml 1/8 af flösku, Johnny Walker Black Label 70 cl 2/3 flösku, Island Pure Malt Whisky 70 cl 1/8 af flösku, Gordons Gin 1 ltr rúmlega 1/3 af flösku, Eden Eplasnafs 700 ml axlarfull flaska, Southern Comfort 700 ml axlarfull flaska, Beefeater Gin 1 ltr 3/5 af flösku, Bells Whisky 1 ltr 1 flaska og Passoa 1 ltr 1/2 flaska.
Halldór Halldórsson.