Héraðsdómur Norðurlands vestra
Dómur 6. desember 2007.
Mál nr. S-318/2007:
S-318/2007:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
Ásgeiri Rúnari Magnússyni
I
(enginn)
Lykilorð
Fésekt. Eignaupptaka. Vopnalagabrot.
Útdráttur
Karmaður sakfelldur og gert að greiða sekt fyrir brot gegn vopnalögum.
I
Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið 27. nóvember sl., er höfðað af lögreglustjóranum á Akureyri með ákæru dagsettri 5. október 2007 á hendur Ásgeiri Rúnari Magnússyni, fæddum 19. maí 1970, til heimilis að Aðalgötu 34, Siglufirði, ,,fyrir vopnalagabrot, með því að hafa aðfaranótt fimmtudagsins 19. október 2006, í ölvunarástandi, haft með höndum tvær hlaðnar haglabyssur og riffil ásamt hlöðnum skothylkjum og hleypt af tveimur skotum í bílskúr heimilis síns að Túngötu 41, Siglufirði, auk þess sem hann var með lásboga í vörslum sínum á greindum stað.
Telst brot þetta varða við 2. mgr. og 4. mgr. 21. gr. og f lið 2. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16, 1998.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á haldlagðri haglabyssu, Remington, haglabyssu af gerðinni Browning, haldlögðum riffli af gerðinni JG Anschutz og haldlögðum lásboga, samkvæmt 1. mgr. og 2. mgr. 37. gr. laga nr. 16,1998 og 1. tl., 1. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,1940.”
II
Ákærði sótti ekki þing þegar málið var þingfest 27. nóvember sl. og er málið því dæmt með vísan til 1. mgr. 126. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 enda er þess getið í fyrirkalli sem birt var fyrir ákærða sjálfum á lögmætan hátt 2. nóvember sl. að svo mætti fara með málið. Ákærði hafði raunar símasamband við dóminn áður en málið var þingfest og lýsti því þá að hann hygðist ekki, vegna þess að hann kæmist ekki úr vinnu sinni, sækja þing og þá gerði hann nokkra grein fyrir högum sínum eins og þeir eru í dag.
Þar sem ákærði hefur ekki látið málið til sín taka verður með vísan til þess sem að framan er rakið að líta svo á að hann viðurkenni háttsemi þá sem honum er í ákæru gefin að sök og telst sök hans þar með nægilega sönnuð enda er ákæran í samræmi við gögn málsins og brot hans þar réttilega fært til refsiákvæða.
Ákærði hefur ekki áður sætt refsingu. Í gögnum málsins kemur fram að ákærði var einn í bílskúr sínum þegar hann, undir áhrifum áfengis, hleypti þar af tveimur skotum. Við þetta skapaðist ekki hætta fyrir aðra en hann sjálfan. Að teknu tilliti til þessa þykir refsing hans hæfilega ákveðin 100.000 króna sekt til ríkissjóðs en 8 daga fangelsi komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna.
Sakarkostnaður hefur ekki fallið til við meðferð máls þessa.
Með vísan til þeirra lagagreina sem vitnað er til í ákæru ber að fallast á kröfu ákæruvaldsins um upptöku á Remington og Browning haglabyssum, JG Anschutz riffli og lásboga en þessi vopn voru haldlögð við rannsókn málsins.
Af hálfu ákæruvaldsins sótti málið Eyþór Þorbergsson fulltrúi lögreglustjórans á Akureyri.
Halldór Halldórsson dómstjóri kveður upp dóm þennan.
DÓMSORÐ
Ákærði, Ásgeir Rúnar Magnússon, greiði 100.000 króna sekt til ríkissjóðs en átta daga fangelsi komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna.
Enginn sakarkostnaður hefur fallið á málið.
Upptækar til ríkissjóðs eru Remington, og Browning haglabyssur, riffill af gerðinni JG Anschutz og lásbogi, en vopn þessi voru haldlögð við rannsókn málsins.
Halldór Halldórsson.