Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-39/2019:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

Herði Eydal

Hegningarauki. Skilorð. Þjófnaður.

Ákærði dæmdur í 60 daga fangelsi fyrir þjófnað, en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Mál   þetta,   sem   var   dómtekið   12.   mars   sl.,   var   höfðað   með   ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, dagsettri 13. febrúar 2019, á hendur Herði Eydal, [...] „fyrir þjófnað, með því að hafa laugardaginn 3. júlí 2018, stolið í verslun [...], leikföngum (leikfangabílum, leikfangagröfum og rútu) samtals að verðmæti 18.941 krónur. Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940. Þess er krafist á að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Ákærði sótti ekki þing, þrátt fyrir að hafa verið birt fyrirkall. Þar var þess getið að málið kynni að verða dæmt að honum fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 155. gr. laga nr. 88/2008. Er því heimilt samkvæmt 1. mgr. 161. gr. sömu laga með áorðnum breytingum að leggja dóm á málið að ákærða fjarverandi, enda varðar brot ekki þyngri viðurlögum en þar er áskilið í a-lið og framlögð gögn verða talin nægjanleg til sakfellingar. Verður ákærði sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til refsiákvæða.

Þann 9. júlí 2018 var ákærði dæmdur fyrir þjófnað, í 30 daga fangelsi en fullnustu   refsingar   frestað   skilorðsbundið   í   tvö   ár.   Það   brot   sem   hann   er   nú sakfelldur fyrir framdi hann áður en sá dómur var kveðinn upp og ber því nú að dæma hegningarauka er samsvari þeirri þyngingu refsingarinnar sem kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um öll brotin í fyrra málinu, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þar sem refsing samkvæmt dóminum frá 9. júlí sl. var bundin skilorði verður sú refsing tekin upp og honum gerð refsing í einu lagi fyrir bæði   brotin   eftir   reglum   60.   gr.   almennra   hegningarlaga.   Þykir   refsing   hans hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga. Þar sem um hegningarauka er að ræða verður fullnusta refsingarinnar enn bundin skilorði. Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. Arnbjörg Sigurðardóttir, settur héraðsdómari, kveður upp dóminn.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði, Hörður Eydal, sæti fangelsi í 60 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.