Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-17/2019:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

Marcin Sychowicz

Fangelsi. Fjársvik. Hegningarauki. Skilorðsbundnir dómar. Þjófnaður.

Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað, fjársvik og tilraun til fjársvika. Dæmdur til að sæta fangelsi í þrjá mánuði, en fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið.

Mál   þetta,   sem   var   dómtekið   7.   mars   sl.,   var   höfðað   með   ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, dagsettri 14. janúar 2019, á hendur Marcin Sychowicz [...] „fyrir þjófnað og fjársvik framin á Akureyri, mánudaginn 26. nóvember 2018:

I.

Að hafa stolið seðlaveski úr yfirhöfn sem hékk á fatahengi við bakinngang í [...]. Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

II.

Að hafa í framhaldi af því að hann stal peningaveskinu, sem hann er ákærður fyrir að stela í ákærulið I, svikið út matvæli og annars konar vörur í verslunum [...], samtals að fjárhæð kr. 10.360 og fyrir að hafa gert tilraun til að svíkja út til viðbótar vörur í versluninni [...] að fjárhæð 1.995 krónur, með því að nota greiðslukort sem hann hafði tekið úr veskinu.

Telst þetta varða við 248. gr., og sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Ákærði sótti ekki þing, þrátt fyrir að hafa verið birt fyrirkall. Þar var þess getið að málið kynni að verða dæmt að honum fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 155. gr. laga nr. 88/2008. Er því heimilt samkvæmt 1. mgr. 161. gr. sömu laga með áorðnum breytingum að leggja dóm á málið að ákærða fjarverandi, enda varðar brot ekki þyngri viðurlögum en þar er áskilið í a-lið og framlögð gögn verða talin nægjanleg til sakfellingar. Verður ákærði sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til refsiákvæða.

Þann 26. nóvember 2018, sama dag og atvik þessa máls urðu, var ákærði dæmdur í 60 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir þjófnað og fjársvik. Ekki var bókað klukkan hvað að deginum sá dómur var kveðinn upp. Verður ákærði að njóta vafans af því og því miðað við að hann hafi framið brot sín áður en hinn   fyrri   dómur   var   kveðinn   upp.   Verður   honum   dæmdur   hegningarauki   er samsvari þeirri þyngingu refsingarinnar sem kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um öll brotin í fyrra málinu, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þar sem refsing samkvæmt dóminum frá 26. nóvember sl. var bundin skilorði verður hún nú tekin upp og ákærða gerð refsing í einu lagi fyrir bæði brotin. Er refsing hans ákveðin fangelsi í 3 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið, eins og nánar greinir í dómsorði. Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. Arnbjörg Sigurðardóttir settur héraðsdómari kveður upp dóminn.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði,   Marcin   Sychowics,   sæti   fangelsi   í   þrjá   mánuði,   en   fresta   skal fullnustu   refsingarinnar   og   falli   hún   niður   að   liðnum   tveimur   árum   frá uppkvaðningu dómsins að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.