Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 29. nóvember 2016.
Mál nr. S-144/2016:
D Ó M U R
nr. S-144/2016:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
A
Mál
þetta sem dómtekið var 21. nóvember sl., höfðaði lögreglustjórinn á Norðurlandi
eystra 25. júlí 2016 á hendur A,
„fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa fimmtudagskvöldið 8. júní
suður Drottningarbraut á Akureyri, með allt að 113 kílómetra hraða miðað við
klukkustund eftir vegarkafla við Aðalstræti, þar sem hámarkshraði er 50
kílómetrar.
Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr., 1. mgr., sbr. 2.
mgr. 45. gr. A, 1. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr.
50/1987, með síðari breytingum.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls
sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar, samkvæmt 101. gr. og 102. gr.
nefndra umferðarlaga.“
Ákærði játar sök. Með játningu hans sem ekki er ástæða til að efa að sé
sannleikanum samkvæm, enda í samræmi við rannsóknargögn, telst hann sannur að
sök um þann verknað sem í ákæru er lýst og þar er rétt heimfærður til
refsiákvæða. Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu, með heimild
í 164. gr. laga nr. 88/2008.
Sakaferill ákærða hefur hér þýðingu að því
leyti að með sátt 8. september 2009 sætti hann 140.000 króna sekt og sviptingu
ökuréttar í 12 mánuði fyrir brot gegn 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a og 1.
mgr. 63. gr. umferðarlaga og með annarri sátt 13. febrúar 2013 sætti hann aftur
140.000 króna sekt og sviptingu ökuréttar í 12 mánuði fyrir brot gegn 1. mgr.,
sbr. 3. mgr. 45. gr. umferðarlaga.
Ákærði hefur nú ítrekað brot gegn 45. gr. eða
45. gr. a umferðarlaga öðru sinni. Breytir engu þótt viðurlög sem hann sætti
með sáttinni 13. febrúar 2013 hafi verið vægari en venja er og andstæð ákvæði
6. mgr. 102. gr. umferðarlaga hvað varðar sviptingu ökuréttar.
Með vísan til þess hluta sakaferils ákærða sem
hér hefur verið rakinn verður refsing hans ákveðin fangelsi í 30 daga og hann
sviptur ökurétti ævilangt, sbr. 3. mgr. 101. gr. umferðarlaga.
Ákærði verður dæmdur til greiðslu
sakarkostnaðar sem ákveðst eins og greinir í dómsorði. Er virðisaukaskattur
innifalinn og tekið tillit til þess að hluti kostnaðar á rannsóknarstigi stafar
af rannsókn á morfíni í blóðsýni, en það efni greindist ekki.
Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.
D Ó M S O
R Ð:
Ákærði, A, sæti fangelsi í 30 daga.
Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.
Ákærða greiði 473.474 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun skipaðs
verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar hrl. 306.900 krónur og
ferðakostnað, 48.065 krónur.
(Stefán Karl Kristjánsson hrl)
Lykilorð
Ítrekun. Ökuréttarsvipting. Ölvunarakstur.
Útdráttur
A var dæmdur í 30 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt fyrir að aka undir áhrifum áfengis og fíkniefna.
„fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa fimmtudagskvöldið 8. júní 2016, ekið bifreiðinni [...], undir áhrifum áfengis (alkóhólmagn í blóði reyndist 1,19‰), undir áhrifum fíkniefna (amfetamín mældist í blíði 60 ng/ml.) suður Drottningarbraut á Akureyri, með allt að 113 kílómetra hraða miðað við klukkustund eftir vegarkafla við Aðalstræti, þar sem hámarkshraði er 50 kílómetrar.
Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr., 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. A, 1. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar, samkvæmt 101. gr. og 102. gr. nefndra umferðarlaga.“
Ákærði játar sök. Með játningu hans sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, enda í samræmi við rannsóknargögn, telst hann sannur að sök um þann verknað sem í ákæru er lýst og þar er rétt heimfærður til refsiákvæða. Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu, með heimild í 164. gr. laga nr. 88/2008.
Sakaferill ákærða hefur hér þýðingu að því leyti að með sátt 8. september 2009 sætti hann 140.000 króna sekt og sviptingu ökuréttar í 12 mánuði fyrir brot gegn 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a og 1. mgr. 63. gr. umferðarlaga og með annarri sátt 13. febrúar 2013 sætti hann aftur 140.000 króna sekt og sviptingu ökuréttar í 12 mánuði fyrir brot gegn 1. mgr., sbr. 3. mgr. 45. gr. umferðarlaga.
Ákærði hefur nú ítrekað brot gegn 45. gr. eða 45. gr. a umferðarlaga öðru sinni. Breytir engu þótt viðurlög sem hann sætti með sáttinni 13. febrúar 2013 hafi verið vægari en venja er og andstæð ákvæði 6. mgr. 102. gr. umferðarlaga hvað varðar sviptingu ökuréttar.
Með vísan til þess hluta sakaferils ákærða sem hér hefur verið rakinn verður refsing hans ákveðin fangelsi í 30 daga og hann sviptur ökurétti ævilangt, sbr. 3. mgr. 101. gr. umferðarlaga.
Ákærði verður dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar sem ákveðst eins og greinir í dómsorði. Er virðisaukaskattur innifalinn og tekið tillit til þess að hluti kostnaðar á rannsóknarstigi stafar af rannsókn á morfíni í blóðsýni, en það efni greindist ekki. Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, A, sæti fangelsi í 30 daga. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.
Ákærða greiði 473.474 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar hrl. 306.900 krónur og ferðakostnað, 48.065 krónur.