Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-403/2007:

S-403/2007

:

Ákærandi:       Sýslumaðurinn á Akureyri

Ákærðu:          X

Z

Dómari:          Erlingur

Sigtryggsson héraðsdómari

D Ó M U R

nr. S-403/2007:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X og

Z

(024-2007-6353)

Sektir. Skaðabætur. Skilorð. Svipting ökuréttar. Tilraun. Þjófnaður.

Tvö ungmenni voru sakfelld annað fyrir sjö þjófnaði og þjófnaðartilraunir og brot gegn umferðarlögum og lög um ávana-og fíkniefni og dæmt í skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar og skaðabóta og svipt ökurétti. Hitt sakfellt fyrir tvö þjófnaðarbrot og ákvörðun refsingar þar frestað skilorðsbundið.

Mál þetta, sem var dómtekið 11. desember sl., höfðaði sýslumaðurinn á Akureyri hér fyrir dómi þann 16. nóvember sl. með ákæru á hendur X og Z; „fyrir eftirtalin þjófnaðarbrot:

I. (024-2007-6353) Gegn [X], fyrir að hafa fimmtudaginn 19. júlí 2007, brotist inn í íbúðarhúsið að Lyngholti [...] á Akureyri og stolið þaðan DVD upptökuspilara af gerðinni Panasonic, tveimur HP fartölvum ásamt tengingum, tösku, tveimur tölvumúsum, USB lykli og hleðslutæki, Playstation 2 leikjatölvu með tveimur fjarstýringum, ellefu Playstation 2 tölvuleikjum, fjórum PC tölvuleikjum, átta DVD myndum, fjórum fjarstýringum, einu tölvuspili, The Sims Triple Deluxe leikjaseríu, peningabuddu með smápeningum að upphæð kr. 445, barmnælu, bindisnæIu, skyrtuhnöppum, barmmerki, hálskeðju, bréfaopnara, bakpoka merktum Nl og tveimur töskum.

II. (024-2007-6228) Gegn [X], fyrir að hafa aðfaranótt föstudagsins 20. júlí 2007, brotist inn í verslunina Litaland, að Furuvöllum [...] á Akureyri og stolið þaðan um 21.000 krónum í peningum úr afgreiðslukassa verslunarinnar.

III. (024-2007-6225).

Gegn [X], fyrir að hafa þessa sömu nótt, brotist inn í verslun Radíónaust, að Furuvöllum [...] á Akureyri og stolið þaðan þremur myndavélum af gerðinni Olympus FE-230, Olympus U-740 og Olympus U-750, en allar þessar myndavélar voru samtals að verðmæti kr. 72.700-.

IV. (024-2007-6333) Gegn [X] fyrir að hafa þessa sömu nótt, reynt í þjófnaðarskyni að brjótast inn í verslunina Videóbarinn að Sunnuhlíð [...], Akureyri og brotið í því skyni tvær rúður í hurðum verslunarinnar, en horfið af vettvangi þegar hann komst að því að báðar hurðirnar voru lykillæstar beggja vegna.

V. (024-2007-6246) Gegn [X], fyrir að hafa aðfaranótt laugardagsins 21. júlí 2007, í þjófnaðarskyni reynt að brjótast inn í verslunina Hreiðrið að Norðurgötu [...] á Akureyri, en ákærði var búinn að brjóta rúðu í útidyrahurð verslunarinnar, þegar íbúar í nálægum húsum stöðvuðu atferli hans.

VI. (024-2007-6249) Gegn [X], fyrir að hafa þessa sömu nótt, í þjófnaðarskyni reynt að brjótast inn í verslunina Síðu við Stapasíðu á Akureyri, en ákærði hafði brotið rúðu í versluninni þegar eigandi verslunarinnar stöðvaði atferli hans, en eigandinn var við vinnu inni í búðinni.

VII. (024-2007-6333) Gegn ákærðu báðum, fyrir að hafa aðfaranótt mánudagsins 23. júlí 2007, brotist inn í Sólskóga í Kjarnaskógi á Akureyri og stolið þaðan sjóðvél verslunarinnar.

Brot ákærða samkvæmt I-III lið ákærunnar og brot ákærðu samkvæmt VII lið ákærunnar teljast varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, en brot ákærða samkvæmt IV til VII lið ákærunnar við 1. mgr. 244. gr., sbr. 20. gr. sömu laga.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar. Í málinu gera eftirtaldir aðilar bótakröfu á hendur ákærða [X]:

A.    Litaland ehf., kt. 000000-0000, Furuvöllum [...], Akureyri, kr. 42.300-.

B.    Falcon-Traffic ehf., kt. 000000-0000, Norðurgötu [...], Akureyri, kr. 12.000.“

Mál nr. S-404/2007 var sameinað þessu.  Það höfðaði sami sýslumaður þann 23. nóvember 2007 gegn ákærða [X]; „fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot, með því að hafa laugardaginn 20. október 2007, ekið bifreiðinni SL-164, undir áhrifum áfengis (1,66 ‰), undir áhrifum fíkniefna (amfetamín 50 ng/ml.) og lyfja (klónazepam 55 ng/ml) um Borgarbraut og Glerárgötu á Akureyri, þar sem lögreglan stöðvaði akstur hans á Glerárgötu við Akureyrarvöll og fyrir að hafa verið með í vörslum sínum 0,65 grömm af amfetamíni þegar lögreglan stöðvaði akstur hans.

Telst þetta varða við 2. mgr. 44. gr., 1. sbr. 3. mgr. 45. gr., 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. A, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66, 2006 og 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana- og fíkniefna nr. 233, 2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 1. mgr., sbr. 3. og 4. mgr. 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 18. gr. laga nr. 66, 2006 og til að sæta upptöku á 0,65 grömmum af amfetamíni sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá nr. 12645, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“

Ákærðu hafa báðir komið fyrir dóm og játað sök.  Með játningum þeirra, sem ekki er ástæða til að efa að séu sannleikanum samkvæmar, er nægilega sannað að þeir hafi framið þá verknaði sem þeim eru gefnir að sök í ákærum og þar eru rétt heimfærðir til laga að því athuguðu að brot ákærða samkvæmt IV.-VI. lið fyrri ákæru varða við 1. mgr. 244. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga. Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu með heimild í 125. gr. laga nr. 19/1991.

Ákærði X, sem er 17 ára gamall, hefur ekki sætt refsingum.  Hann er hér sakfelldur fyrir fjögur þjófnaðarbrot og þrjár þjófnaðartilraunir, allt með innbrotum, akstur undir áhrifum áfengis, lyfja og fíkniefna og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.  Ákærði verður með tilliti til aldurs hans og hreins sakaferils dæmdur í fangelsi í tvo mánuði, sem rétt er að skilorðsbinda eins og greinir í dómsorði.  Þá verður hann dæmdur til að greiða sekt til ríkissjóðs að fjárhæð 180.000 krónur innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja, en sæta ella fangelsi í 12 daga, fyrir brot sín gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni og sviptur ökurétti í 15 mánuði frá birtingu dómsins að telja, sbr. 3. mgr. og 4. mgr. 102. gr. umferðarlaga, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006.

Ákærði Z er 16 ára gamall.  Hann sætti þann 14. september sl. sekt og sviptingu ökuréttar samkvæmt lögreglustjórasátt.  Ber að tiltaka refsingu hans fyrir það brot sem hann er nú sakfelldur fyrir sem hegningarauka við refsingu samkvæmt sáttinni.

Með tilliti til æsku ákærða þykir rétt að fresta ákvörðun refsingar hans skilorðsbundið eins og greinir í dómsorði.

Gera ber efni upptækt eins og krafist er í ákæru og nánar er rakið í dómsorði.

Dæma ber ákærða X til að greiða sakarkostnað, sem samkvæmt yfirliti nemur 169.643 krónum.

Í málinu eru hafðar uppi tvær bótakröfur eins og greint er í ákæru. Litaland ehf. krefst bóta vegna nýrrar rúðu, 9.300 krónur, vinnu við að skipta um rúðu, 12.000 krónur og skiptimyntar, 21.000 krónur.  Tveir fyrstu liðirnir eru studdir gögnum og sá síðasti játningu ákærða.  Verður ákærði X dæmdur til að greiða kröfuna.  Krafa Falcon Traffic ehf. er nægilega studd kvittun tryggingafélags vegna sjálfsábyrgðar og verður tekin til greina. Í rannsóknargögnum er að finna bótakröfu frá eiganda verslunarinnar Síðu, en hún er ekki höfð uppi í ákæru og kemur því ekki til umfjöllunar.

Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði X sæti fangelsi í tvo mánuði og greiði 180.000 krónur í sekt til ríkissjóðs.

Fresta skal fullnustu fangelsisrefsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955, með því að fremja ekki nýtt brot á skilorðstímanum.  Fangelsi í 12 daga komi í stað sektarinnar, verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja.

Ákvörðun refsingar ákærða Z er frestað og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi hann hið almenna skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955, að gerast ekki sekur um nýtt brot á skilorðstímanum.

Ákærði X er sviptur ökurétti í 15 mánuði frá birtingu þessa dóms að telja.

Ákærði X greiði 169.643 krónur í sakarkostnað.

Gerð eru upptæk 0,65 grömm af amfetamíni með nr. 12645 í efnaskrá lögreglu.

Ákærði X greiði Litalandi ehf. 42.300 krónur og Falcon-Traffic ehf. 12.000 krónur.