Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 22. maí 2007.
Mál nr. S-39/2007:
D Ó M U R
máli
nr. S-39/2007:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X
Mál
þetta, sem dómtekið var þann 11. maí sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi
Norðurlands eystra með ákæru lögreglustjórans á Akureyri útgefinni þann 16.
febrúar 2007, á hendur X;
Í
A kafla ákærunnar er ákærða gefið að sök umferðarlagabrot
,,með
því að hafa aðfaranótt laugardagsins 23. desember 2006, ekið bifreiðinni
UY-527, undir áhrifum áfengis (0,65‰) og fíkniefna (MDMA 100 ng/ml.) frá
Vestursíðu á Akureyri, um Hlíðarbraut og Þingvallastræti, uns lögreglan
stöðvaði akstur hans við sundlaug Akureyrar og vera ekki með ökuskírteini sitt
meðferðis við aksturinn.“
Í
B kafla ákærunnar er ákærða gefið að sök fíkniefnalagabrot
,,með
því að hafa þessa sömu nótt verið með í vörslum sínum 0,48 grömm af ecstasy,
1,81 grömm af hassi og 0,18 grömm af tóbaksblönduðu hassi í nefndri bifreið,
þegar lögreglan stöðvaði akstur hans“.
Brot
ákærða samkvæmt A kafla ákærunnar er talið varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45.
gr. og 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. A, sbr., 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr.
50, 1987, sbr. lög nr. 66, 2006.
Brot
ákærða samkvæmt B kafla ákærunnar er talið varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6.
gr. laga um ávana- og fíkniefni, nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög
nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um
sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.
Þess
er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar
samkvæmt 101. gr. og 1. mgr., sbr. 4. mgr. 102. gr. nefndra umferðarlaga og til
að sæta upptöku á 0,48 grömmum af ecstasy, 1,81 grömmum af hassi og 0,18
grömmum af tóbaksblönduðu hassi, sem lögreglan lagi hald á og tilgreint er í
efnaskrám nr. 10.897, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14.
gr. reglugerðar nr. 233, 2001.
Af
hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og að refsing verði
skilorðsbundin. Þá er þess krafist að
(Ingvar Þóroddsson hdl)
Lykilorð
Eignaupptaka. Hegningarauki. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Karlmanni dæmdur hegningarauki fyrir umferðarlagabrot og fíkniefnabrot. Jafnframt var honum gert að sæta upptöku fíkniefnanna.
Mál þetta, sem dómtekið var þann 11. maí sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru lögreglustjórans á Akureyri útgefinni þann 16. febrúar 2007, á hendur X;
Í A kafla ákærunnar er ákærða gefið að sök umferðarlagabrot ,,með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 23. desember 2006, ekið bifreiðinni UY- 527, undir áhrifum áfengis (0,65‰) og fíkniefna (MDMA 100 ng/ml.) frá Vestursíðu á Akureyri, um Hlíðarbraut og Þingvallastræti, uns lögreglan stöðvaði akstur hans við sundlaug Akureyrar og vera ekki með ökuskírteini sitt meðferðis við aksturinn.“
Í B kafla ákærunnar er ákærða gefið að sök fíkniefnalagabrot ,,með því að hafa þessa sömu nótt verið með í vörslum sínum 0,48 grömm af ecstasy, 1,81 grömm af hassi og 0,18 grömm af tóbaksblönduðu hassi í nefndri bifreið, þegar lögreglan stöðvaði akstur hans“.
Brot ákærða samkvæmt A kafla ákærunnar er talið varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. og 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. A, sbr., 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. lög nr. 66, 2006.
Brot ákærða samkvæmt B kafla ákærunnar er talið varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 1. mgr., sbr. 4. mgr. 102. gr. nefndra umferðarlaga og til að sæta upptöku á 0,48 grömmum af ecstasy, 1,81 grömmum af hassi og 0,18 grömmum af tóbaksblönduðu hassi, sem lögreglan lagi hald á og tilgreint er í efnaskrám nr. 10.897, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.
Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og að refsing verði skilorðsbundin. Þá er þess krafist að svipting ökuréttar verði ekki lengri en lög framast heimila. Að lokun krefst verjandi ákærða hæfilegra málsvarnarlauna.
Ákærði hefur hér fyrir dóminum skýlaust viðurkennt brot sín eins og þeim er í ákæru lýst. Er játning ákærða í samræmi við gögn málsins og þykja brot hans því nægjanlega sönnuð og varða þau við tilgreind lagaákvæði í ákæru.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins á ákærði nokkurn sakaferil að baki frá árinu 1993. Hefur hann alls 10 sinnum sætt refsingum fyrir brot á almennum hegningarlögum, umferðarlögum og fíkniefnalögum. Þann 14. maí 2004 var ákærði dæmdur í 3 mánaðar fangelsi, skilorðsbundið í 3 ár fyrir brot gegn almennum hegningarlögum og umferðarlögum og sviptur ökurétti í 1 ár. Þann 14. september sama ár, var ákærði dæmdur í 5 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 3 ár fyrir brot gegn almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni og til greiðslu sektar sem hegningarauka. Var dómurinn frá 14. maí dæmdur með. Þann 25. janúar 2005 hlaut ákærði dóm fyrir brot gegn almennum hegningarlögum en var ekki gerð sérstök refsing. Með dómi er ákærði hlaut þann 13. mars 2007 í Héraðsdómi Reykjaness fyrir brot gegn umferðarlögum, rauf ákærði skilorð dómsins frá 14. september 2004. Í þeim dómi var framangreint skilorð látið haldast og ákærða gerð sérstök refsing fyrir ölvunarakstur með greiðslu sektar að upphæð kr. 220.000- og til að sæta ökuréttarsviptingu í 2 ár. Brot þau er nú er dæmt fyrir voru framin áður en síðast taldi dómurinn var kveðinn upp og ber því að ákvarða ákærða hegningarauka að því er þann dóm varðar sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Með brotum þeim er hér eru til umfjöllunar rauf ákærði einnig skilorð dóms frá 14. september 2004. Líta ber á umferðalagabrot ákærða nú sem fyrstu ítrekun gegn 2. mgr. 45. gr. umferðarlaga svo sem gert var í síðast talda dómnum og varða brotin nú einungis sektum. Þykir því með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga rétt að láta skilorðsdóminn haldast og ákveða ákærða sérstaka refsingu nú eftir reglum 78. gr. almennra hegningarlaga eins og að framan er rakið. Þykir hegningarauki hæfilega ákveðinn kr. 50.000í sekt til ríkissjóðs og komi 4 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.
Ekki eru efni til að dæma ákærða í frekari ökuréttarsviptingu en þegar hefur verið gert í framangreindum dómi Héraðsdóms Reykjaness frá 13. mars 2007.
Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilvitnaðra ákvæða eru upptæk gerð fíkniefni svo sem í dómsorði greinir.
Samkvæmt yfirliti ákæruvaldsins nemur kostnaður af rekstri málsins kr. 70.297sem er kostnaður af töku blóðsýnis og rannsóknar þess. Ber að dæma ákærða til greiðslu þess kostnaðar í sakarkostnað auk þóknunar skipaðs verjanda síns , Ingvars Þóroddssonar hdl. sem þykir hæfilega ákveðin kr. 70.000- og er virðisaukaskattur þar innifalinn.
Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, X, greiði kr. 50.000í sekt til ríkissjóðs og komi 4 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.
Ákærði sæti upptöku á 0,48 grömmum af ecstasy, 1,81 grömmum af hassi og 0,18 grömmum af tóbaksblönduðu hassi, samkvæmt efnaskrá lögreglu nr. 10.897.
Ákærði greiði kr. 140.297í sakarkostnað, þ.á.m. kr. 70.000í þóknun til skipaðs verjanda síns, Ingvars Þóroddssonar hdl., og er virðisaukaskattur þar innifalinn.