Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 17. júlí 2007.
Mál nr. S-229/2007:
D Ó M U R
nr. S-229/2007:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X
Lykilorð
Skilorð. Upptaka. Ávana- og fíkniefni.
Útdráttur
Karlmaður dæmdur til skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir vörslu fíkniefna og til að sæta upptöku fíkniefnis.
X
Mál þetta, sem dómtekið var 10. júlí s.l. hefur lögreglustjórinn á Akureyri höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru útgefinni 20. júní 2007 á hendur X.
X er gefið að sök að hafa ásamt þeim E og J laugardaginn 18. nóvember 2006 haft í vörslum sínum 34 töflur af MDMA (ecstasy), samtals 8,91 gramm og 9,61 gramm af amfetamíni í bifreiðinni PJ-640 í Hörgárbyggð við Bægisá.
Telur ákæruvaldið brotið varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana- og fíkniefna nr. 233, 2001.
Er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar sem og að honum verði gert að sæta upptöku á 31 töflu, samtals 8,91 grömmum af MDMA sem lögregla haldlagði samkvæmt efnskrá nr. 10789, sbr. 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.
Hér fyrir dóminum hefur ákærði skýlaust játað brot sitt og er sú játning í samræmi við gögn málsins. Telst brot hans því sannað og varðar það við tilgreind lagaákvæði.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði áður brotið gegn lögum. Þann 3. mars 2006 var hann dæmdur til tveggja mánaða fangelsis skilorðsbundið til þriggja ára fyrir líkamsárás. Þann 29. maí 2007 gekkst hann svo undir sátt um að greiða 65.000 kr. í sekt ásamt því að vera sviptur ökurétti í 3 mánuði fyrir umferðarlagabrot.
Með broti sínu nú hefur ákærði rofið skilorð það sem hann fékk með dómi frá 3. mars 2006. Þykir rétt að taka upp þann dóm sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga og ákvarða refsingu samkvæmt 77. gr. sömu laga. Refsing ákærða þykir nú hæfilega ákveðin 4 mánaða fangelsi, en rétt þykir að fullnustu refsingar verði frestað og hún falli niður að 3 árum liðnum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955.
Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilvitnaðra ákvæða eru upptæk gerð fíkniefni svo sem í dómsorði greinir en það athugast að einungis er gerð krafa um upptöku 31 töflu af MDMA og ekki er gerð krafa um upptöku á amfetamíni því er ákærði er dæmdur fyrir að hafa í vörslum sínum.
Engin gögn eru um sakarkostnað í málinu.
Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, X, sæti fangelsi í 4 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingar og hún falla niður að 3 árum liðnum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955.
Ákærði sæti upptöku á 31 töflu, samtals 8,91 grömmum af MDMA samkvæmt efnaskrá lögreglu nr. 10789.