Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 19. júlí 2007.
Mál nr. S-200/2007:
Ó M U R
nr. S-200/2007:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X
Lykilorð
Hegningarauki. Upptaka. Ávana- og fíkniefni.
Útdráttur
Karlmaður fudninn sekur um vörslur fíkniefna en ekki gerð sérstök refsing þar sem um hegningarauka var að ræða. Hann var dæmdur til að sæta upptölu efnanna.
X
Mál þetta, sem dómtekið var þann 10. júlí sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru lögreglustjórans á Akureyri, útgefinni þann 14. júní sl., á hendur X, „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 25. mars 2007, verið með í vörslum sínum 23,15 grömm af hassi og 0,93 grömm af marihúana í bifreiðinni TL-306, en hann henti því út úr bifreiðinni skömmu áður en lögreglan hafði afskipti af akstri ökumanns bifreiðarinnar á Hlíðarbraut, skammt sunnan við Merkigil á Akureyri.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á 23,15 grömmum af hassi og 0,93 grömmum af tóbaksblönduðu hassi, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá nr. 11.379 samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“
Við þingfestingu málsins, þann 10. júlí sl., kom ákærði fyrir dóminn og viðurkenndi brot sitt eins og því er í ákæru lýst. Er játning hans í samræmi við gögn málsins og þykir brot hans því nægjanlega sannað og varðar við tilgreind ákvæði í ákæruskjali. Að framangreindu virtu þykja skilyrði til að fella dóm á málið samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði tíu sinnum verið dæmdur til refsingar fyrir brot á hegningarlögum, umferðarlögum og fíkniefnalöggjöfinni.
Þann 2. júní 2006 var ákærði dæmdur í 7 mánaða fangelsi. Þann 12. janúar 2007 hlaut hann reynslulausn í 1 ár á 105 daga eftirstöðvum refsingarinnar. Þann 18. október var hann dæmdur til greiðslu kr. 30.000 í sekt fyrir fíkniefnalagabrot og var þar um hegningarauka að ræða. Þann 23. maí sl. var ákærði dæmdur í 2 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og var þar einnig um hegningarauka að ræða. Þann 22. júní sl. var ákærði dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot. Með því broti hafði hann rofið skilyrði reynslulausnarinnar frá 12. janúar 2007 og voru eftirstöðvar hennar teknar með við ákvörðun refsingar. Það brot sem ákærði er nú dæmdur fyrir framdi hann fyrir uppkvaðningu dómanna 23. maí sl. og 22. júní sl. og ber því að ákvarða honum hegningarauka er samsvari þeirri þynging hegningarinnar sem hefði orðið ef dæmt hefði verið um öll brotin í einu lagi, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Verður ákærða því ekki gerð sérstök refsing.
Með vísan til krafna og tilvitnaðra lagagreina í ákæru ber að dæma ákærða til að sæta upptöku fíkniefna svo sem nánar greinir í dómsorði.
Enginn sakarkostnaður hlaust af rannsókn og rekstri málsins.
Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson.
D Ó M S O R Ð :
Ákærða X er ekki gerð sérstök refsing.
Ákærði sæti upptöku 23,15 grömmum af hassi og 0,93 grömmum af tóbaksblönduðu hassi samkvæmt efnaskrá lögreglu nr. 11.379.