Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 19. október 2007.
Mál nr. S-138/2007:
D Ó M U R
nr. S-138/2007:
Ákæruvaldið
(Svavar Pálsson fulltrúi)
gegn
X
(Sigurður Sigurjónsson hrl)
Lykilorð
Útdráttur
Karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn vopnalögum með því að hafa ekki geymt nokkurn fjölda skotvopna með tryggilegum hætti og dæmdur í skilorðsbundið fangelsi.
„fyrir eftirtalin vopnalagabrot, með því að hafa haft í vörslum sínum fjölda vopna, vopnahluta og skotfæra, án þess að tryggja viðeigandi og áskilda geymslu þeirra í læstum hirslum þar sem óviðkomandi aðili næði ekki til þeirra, svo sem hér greinir:
I.
Að Brúnagerði [...] á Húsavík, nánar tiltekið í húsnæði Meindýravarna Íslands, einkahlutafélags í eigu ákærða, og í íbúð á efri hæð, en lögregla lagði hald á neðangreind vopn víðsvegar um húsið fimmtudaginn 1. september 2005:
- Husquarna haglabyssa.
- Stevens haglabyssa nr. UC36.
- Casnar haglabyssa nr. 1688.
- Fabarm Brescia haglabyssa nr. 348006.
- Omega model 30 pumpa nr. A360855.
- Nikko M-1000 nr. J25712.
- Remington CBC nr. C132170.
- Remington CBC nr. C139986.
- Harrington & Richardson nr. AX469370.
- Iver Johnson riffill nr. I673.666.
- Toz riffill nr. 12310.
- Loftriffill (1).
- Loftriffill (2).
- Loftriffill (3).
- Fabarm haglabyssa nr. 490280.
- AyA Eibar haglabyssa nr. 22615.
- Baikal haglabyssa nr. Y09035.
- Remington 1100 nr. L471148. (Mál nr. 025-2006-674)
II.
Að [...] í Öxarfirði, en lögregla lagði hald á neðangreind vopn og skotfæri að Aragerði [...] í Vogum þann 21. desember 2005 eftir að þeim hafði verið stolið frá [...] í innbroti í nóvember 2005:
- Whitetail hunter 16500 veiðibogi.
- Sako Finnbear L61R riffill nr. 44042.
- Winchester Mod. 94 riffill nr. 3229705.
- M80 haglabyssa (útboraður riffill) nr. S73592.
- Parker Hale Alpine Model Sporter riffill nr. 1024.
- Brno Mod. 2 riffill nr. 4096.
- Diana Mod. 6 loftskammbyssa.
- HW 35 (weihrauch) loftriffill.
- Husquarna GA-16 haglabyssa.
- Remington 1100 Diamond Anniversary haglabyssa nr. LE80-1084.
- Remington 1100 haglabyssa nr. M642736X.
- Skammbyssa Mod. 1900 af óþekktri tegund.
- Skammbyssa, nafn- og númerslaus m. utanáliggjandi hamri.
- Junker Spain skammbyssa nr. 095936.
33. 4 stk. skotgeymar í riffla og/eða skammbyssur.
34. 3 pakkar með 26 haglaskotum GA-20.
35. 28 stk. 9mm skammbyssuskot.
36. 50 stk. cal 45 skammbyssuskot. (Mál nr. 025-2005-2707) Telst þetta varða við 1. og 2. mgr. 23. gr., sbr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998, og 33. gr., sbr. 59. gr., reglugerðar nr. 787/1998.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar. Þá er krafist upptöku á framantöldum vopnum/vopnahlutum, að undanskildum þeim sem merkt eru nr. 2, 7, 8, 9 og 15, 4 skotgeymum, 72 haglaskotum og 78 skammbyssuskotum, sbr. 37. gr., sbr. 2. gr., vopnalaga nr. 16/1998, sbr. 69. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.“
Ákærði krefst aðallega sýknu en til vara vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá krefst hann þess að kröfu um upptöku muna verði hafnað.
I.
Þann 1. nóvember 2005 kom staðgengill heilbrigðisfulltrúans á Norð-Austurlandi því á framfæri við lögreglu að íbúi að Brúnagerði ..., Húsavík, hefði tilkynnt um vopn, eiturefni og jafnvel sprengiefni sem væru aðgengileg almenningi, þar sem hver sem væri kæmist inn á neðri hæð hússins, þar sem vopnin og efnin væru. Lögregla fór inn í húsnæðið í samráði við skiptastjóra þrotabús Meindýravarna Íslands ehf. Ákærði mun hafa verið fyrirsvarsmaður þess félags. Lögregla kveður dyr að neðri hæð hússins hafa verið ólæstar og hafi hver sem var getað farið þar inn. Eiturefni, skotfæri og skotvopn hafi verið þar á víð og dreif. Tók lögregla vopnin í sína vörslu og einnig vopn sem voru í íbúð á efri hæð að ósk húsráðanda. Þau vopn sem lögregla tók á neðri hæðinni og ákærða er gefið að sök að hafa ekki tryggt viðeigandi geymslu á eru tilgreind nr. 1-14 í I. kafla ákæru, en þau sem hún tók á efri hæð eru nr. 15-18 í sama kafla.
II.
Ákærði ber að hann hafi verið fyrirsvarsmaður Meindýravarna Íslands ehf. Það félag mun hafa orðið gjaldþrota á fyrri hluta ársins 2005. Ákærði kveður húsnæðið á neðri hæð Brúnagerðis ... hafa verið læst, bílskúrshurð hafi þó ekki verið með lás, en lokað með „borðabolta“. Ákærði kannast við þau vopn sem lögregla haldlagði á efri hæð hússins. Kveðst hann hafa búið þar, en verið fluttur út.
Ákærði bar fyrir lögreglu um einstök vopn í ákæru og endurtók það fyrir dómi að þau sem lögregla fann að Brúnagerði ... væru ýmist biluð eða sundurtekin og ónothæf sem skotvopn. Skotfæri hefðu söfnunargildi, en ekki notagildi.
A lögregluvarðstjóri staðfesti frumskýrslu lögreglu. Lýsti hann aðkomu á neðri hæð svo að þar hefðu legið byssur og byssuhlutar á víð og dreif. Byssur sem voru haldlagðar á efri hæð hefðu staðið úti í horni í forstofuherbergi.
B yfirlögregluþjónn ber að hann hafi komið að því að skrá byssur og byssuhluta þarna og koma í örugga geymslu. Segir hann að töluvert hafi verið um hluta úr byssum, en einnig hafi eitthvað verið þarna af virkum vopnum.
III.
Seint í nóvember 2005 var brotist inn á heimili ákærða að ..., Norðurþingi. Brotin var þverslá úr byssurekka sem stóð á gangi og teknir úr honum rifflar og haglabyssa. Byssur og einn bogi höfðu hangið á vegg og hafði þeim einnig verið stolið. Lykill að stofuskenk hafði verið tekinn úr skúffu, sem ákærði kvað engan eiga að vita um nema sig og fjölskyldu sína. Úr skenknum hafði verið stolið skammbyssu og fjórum startbyssum.
Ákærði lagði hart að sér við að aðstoða lögreglu við að upplýsa málið. Með tilstyrk hans hafði lögregla upp á öllum vopnunum nema skammbyssunni, sem mun enn vera ófundin. Vopnin eru nánar talin í ákærulið II.
IV.
Samkvæmt 1. mgr. 1. gr. laga nr. 16/1998 er með vopni í þeim lögum átt við hvert það tæki eða efni sem unnt er að beita til að deyða eða skaða heilsu manna eða dýra tímabundið eða varanlega, enda sé með tilliti til aðstæðna ástæða til að ætla að fyrirhugað sé að nota tækið eða efnið í þeim tilgangi.
Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er átt við með skotvopni í lögunum vopn eða tæki sem hægt er með sprengikrafti, samanþjöppuðu lofti eða á annan sambærilegan hátt að skjóta úr kúlum, höglum eða öðrum skeytum.
Byssur og byssuhlutar sem lögregla haldlagði að Brúnagerði ... eru skotvopn í þessum skilningi. Verður ekki talið að þau hafi ekki verið það lengur, þótt þau hafi í einhverjum tilvikum, eða jafnvel öllum, þurft lagfæringar eða samsetningar við til að unnt yrði að skjóta úr þeim kúlum eða höglum. Er hið sama að segja um vopn sem stolið var að ... . Ekki er ástæða til að fjölyrða sérstaklega um skotfærin, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Verða þau talin skotfæri þrátt fyrir þá mótbáru sem ákærði hafði uppi að um safngripi hafi verið að ræða.
Samkvæmt 23. grein sömu laga skal eigandi eða vörsluaðili skotvopns og skotfæra ábyrgjast vörslu þeirra með þeim hætti að óviðkomandi aðili nái ekki til þeirra. Skulu skotvopn og skotfæri geymd í aðskildum og læstum hirslum þegar þau eru ekki í notkun. Er ráðherra heimilað að setja nánari ákvæði í reglugerð, m.a. að setja skilyrði um tiltekna geymslu skotvopna eftir að tilteknum skotvopnafjölda er náð. Samkvæmt 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr. 787/1998, sem sett er samkvæmt þessari heimild, er einstaklingi sem á fleiri en þrjú skotvopn skylt að geyma þau í sérútbúnum vopnaskáp sem samþykktur er af lögreglustjóra. Þarf ekki að fara í grafgötur um það að gegn þessari skyldu var freklega brotið hér. Þótt ákærði hafi verið búinn að yfirgefa húsnæðið að Brúnagerði ... verður ekki talinn leika vafi á að hann beri ábyrgð á því hvernig vopnin þar voru geymd, bæði á efri og neðri hæð, enda engin ástæða til að ætla að húsráðandi á efri hæð og þrotabú Meindýravarna Íslands ehf. hafi breytt geymslu þeirra til hins verra eftir að ákærði flutti þaðan.
Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og varðar við þar greind laga- og reglugerðarákvæði.
V.
Ákærði hefur ekki sætt refsingum samkvæmt sakavottorði. Geymsluháttur hans á verulegum fjölda skotvopna og skotvopnahluta er óforsvaranlegur og enn ámælis verðari en ella með tilliti til þess að ákærði á að teljast fagmaður í meðferð skotvopna, en hann fékk t.d. árið 1987 leyfi til fimm ára til að flytja inn og selja skotvopn og skotfæri, sama ár leyfi til jafnlangs tíma til að mega hlaða skotfæri til endursölu og þann 10. janúar 2002 fékk hann leyfi til fimm ára til að nota skotvopn innan bæjarmarka Húsavíkur vegna eyðingar vargfugls og meindýra.
Brot þau sem ákærði er hér sakfelldur fyrir varða sekt eða fangelsi allt að fjórum árum. Með tilliti til þess hve hér var um mikinn fjölda vopna að ræða verður refsing ákærða ákveðin fangelsi í tvo mánuði, sem með tilliti til sakaferils hans er rétt að skilorðsbinda eins og greinir í dómsorði.
Með því að varsla ákærða á vopnunum var með ólögmætum hætti verður fallist á kröfu ákæruvaldsins um upptöku þeirra með skírskotun til tilvitnaðra ákvæða í ákæru.
Dæma ber ákærða til greiðslu sakarkostnaðar. Er þar um að tefla málsvarnarlaun skipaðs verjanda hans, Sigurðar Sigurjónssonar hrl., sem ákveðast eins og greinir í dómsorði, að virðisaukaskatti meðtöldum og að teknu tilliti til hugsanlegs kostnaðar af ferðalagi verjandans á dómþing.
Dóminn kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, X, sæti fangelsi í tvo mánuði, en fresta ber fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Upptæk eru Husquarna haglabyssa, Casnar haglabyssa nr. 1688, Fabarm Brescia haglabyssa nr. 348006, Omega model 30 pumpa nr. A360855, Nikko M-1000 nr. J25712, Iver Johnson riffill nr. I673.666, Toz riffill nr. 12310, þrír loftrifflar, Fabarm haglabyssa nr. 490280, AyA Eibar haglabyssa nr. 22615, Baikal haglabyssa nr. Y09035, Remington 1100 nr. L471148, Whitetail hunter 16500 veiðibogi, Sako Finnbear L61R riffill nr. 44042, Winchester Mod. 94 riffill nr. 3229705, M80 haglabyssa (útboraður riffill) nr. S73592, Parker Hale Alpine Model Sporter riffill nr. 1024, Brno Mod. 2 riffill nr. 4096, Diana Mod. 6 loftskammbyssa, HW 35 (weihrauch) loftriffill, Husquarna GA-16 haglabyssa, Remington 1100 Diamond Anniversary haglabyssa nr. LE80-1084, Remington 1100 haglabyssa nr. M642736X, skammbyssa Mod. 1900 af óþekktri tegund, skammbyssa, nafn- og númerslaus m. utanáliggjandi hamri, Junker Spain skammbyssa nr. 095936, 4 skotgeymar, 72 haglaskot og 78 skammbyssuskot.
Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Sigurðar Sigurjónssonar hrl., 250.000 krónur.