Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 25. júní 2007.
Mál nr. S-131/2007:
D Ó M U R
máli
nr. S-131/2007:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X
Lykilorð
Skilorð. Upptaka. Ávana- og fíkniefni.
Útdráttur
Karlmaður dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslur fíkniefna og til að sæta upptöku efnanna.
X
Mál þetta, sem dómtekið var 12. júní 2007, hefur lögreglustjórinn á Akureyri höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru, útgefinni 7. maí 2007, á hendur X; „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa í janúar 2007, sent hingað til lands frá Portúgal 112,36 grömm af hassi, en efni þessi hafði hann falið í tveimur tölvuhátölurum, sem hann sendi hingað til lands með pósti og stílað sendinguna á nafn félaga síns.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á 112,36 grömmum af hassi, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá nr. 10.797, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“
Við þingfestingu málsins þann 12. júní sl., sótti ákærði þing og játaði greiðlega brot sitt eins og því er í ákæru lýst. Er játning ákærða í samræmi við gögn málsins og telst brot hans því nægjanlega sannað, sbr. 125. gr. laga nr. 19, 1991 og varðar það við tilgreind lagaákvæði í ákæru.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði tvisvar áður brotið gegn lögum.
Þann 26. september 2005 gekkst hann við viðurlagaákvörðun vegna ölvunaraksturs og þann 1. febrúar 2006 var hann dæmdur til greiðslu sektar fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Þykir refsing ákærða nú hæfilega ákveðin fangelsi í 45 daga en rétt þykir að fresta fullnustu refsingar og falli hún niður að 3 árum liðnum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð samkvæmt 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955.
Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilgreindra lagaákvæða í ákæruskjali, ber að gera upptæk fíkniefni, svo sem í dómsorði greinir.
Enginn sakarkostnaður er í málinu.
Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, X, sæti fangelsi í 45 daga, en fresta skal fullnustu refsingar og skal hún falla niður að 3 árum liðnum frá uppkvaðningu dómsins, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955.
Ákærði sæti upptöku á 112,36 grömmum af hassi samkvæmt efnaskrá lögreglu nr. 10.797.