Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 21. september 2007.
Mál nr. S-126/2007:
D Ó M U R
nr. S-126/2007:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X,
(Kristján Stefánsson hrl)
Z og
(Grímur Sigurðarson hdl)
Y
(Ingvar Þóroddsson hdl)
Lykilorð
Skilorðsbundið fangelsi og sekt. Umferðarlagabrot. Ávana- og fíkniefni. Ökuréttarsvipting.
Útdráttur
X var sakfelldur fyrir að hafa í fimm tilvikum af sex sem hann var ákærður fyrir, haft amfetamín, samtals rúm 70 grömm, hass og tóbaksblandað hass í vörslum sínum, ýmist einn eða í sameiningu með öðrum. Þá var hann sakfelldur fyrir að hafa ekið með amfetamín í blóði. X var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar og sviptur ökurétti í þrjú ár. Z og Y voru ákærðir fyrir að hafa í eitt sinn haft amfetamín í vörslum sínum í sameiningu með X. Var það í bifreið sem X og Z voru í og voru þeir sakfelldir fyrir vörslur efnisins. Y, sem kvaðst hafa skrökvað því að lögreglu að eiga efnið var sýknaður. Z var dæmdur til greiðslu sektar. Þ var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og vörslu amfetamíns í einu tilviki í sameingu með Þ og dæmdur til greiðslu sektar.
Mál þetta, sem dómtekið var þann 12. september sl., er höfðað hér fyrir dómi með ákærum sýslumannsins á Akureyri, á hendur X, Z, Hraunbæ 68, Reykjavík, Y, og Þ.
I. Ákæra sýslumannsins á Akureyri, útgefin 7. maí 2007 S-126/2007.
Með ákærunni er höfðað mál á hendur ákærða Þ „fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa aðfaranótt þriðjudagsins 10. apríl 2007, ekið bifreiðinni RU-263, undir áhrifum fíkniefna (amfetamín 550 ng/ml) suður Eyrarlandsveg og að Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, þar sem hann stöðvaði bifreiðina.
Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. A, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðar laga nr. 50, 1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66, 2006.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 1. mgr., sbr. 4. mgr. 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 18. gr. laga nr. 66, 2006.“
II. Ákæra sýslumannsins á Akureyri, útgefin 7. maí 2007 S-127/2007.
Með ákæru þessari er höfðað mál á hendur ákærðu X, Z og Y „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 10. maí 2006, verið með í vörslum sínum 5,50 grömm af amfetamíni í bifreiðinni SJ-847, þegar lögreglan stöðvaði för þeirra við býlið Teig í Eyjafjarðarsveit, en ákærðu [X] og [Z] voru með efnið í bifreiðinni, en ákærði [Y] var eigandi þess.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana- og fíkniefna nr. 233, 2001.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til að sæta upptöku á haldlögðu amfetamíni, sem tilgreint er í efnaskrá nr. 9.359, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“
III. Ákæra sýslumannsins á Akureyri, útgefin 10. maí 2007 S-134/2007.
Með ákærunni er höfðað mál á hendur X, „fyrir fíkniefnabrot, með því að hafa miðvikudaginn 12. apríl 2006, verið með í vörslum sínum á heimili sínu 9,2 grömm af amfetamíni, 1,78 grömm af hassi og 0,70 grömm af tóbaksblönduðu hassi.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana- og fíkniefna nr. 233, 2001.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á 9,2 grömmum af amfetamíni, 1,78 grömmum af hassi og 0,70 grömmum af tóbaks blönduðu hassi, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrám nr. 8.998 & 8.999, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“
IV. Ákæra sýslumannsins á Akureyri, útgefin 1. júní 2007 S-142/2007.
Með ákæru þessari er höfðað mál á hendur Þ, „fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa mánudaginn 4. september 2006, ekið bifreiðinni ICE FOX norður þjóðveg nr. 1, Hringveg, með allt að 99 kílómetra hraða miðað við klukkustund, eftir vegarkafla við Húsasmiðjuna í Hörgárbyggð, en þar er leyfilegur hámarkshraði 70 kílómetrar, og að hafa meðan á akstrinum stóð talað í farsíma án þess að nota handfrjálsan búnað.
Telst þetta varða við 4. mgr. 37. gr. og 1. mgr. 47. gr. a, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
V. Ákæra sýslumannsins á Akureyri, útgefin 1. júní 2007 S-171/2007.
Með ákæru þessari er höfðað mál á hendur X og A, „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa í byrjun október 2006 haft í vörslum sínum 17,26 grömm af amfetamíni sem þeir komu fyrir í lofthreinsara bifreiðar innar RU-263 en þar fann lögreglan fíkniefnin við leit í bifreiðinni þann 9. október 2006.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana- og fíkniefna nr. 233, 2001.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til að sæta upptöku á 17,26 grömmum af amfetamíni sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá nr. 10564 samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“
VI. Ákæra sýslumannsins á Akureyri, útgefin 5. júní 2007 S-172/2007.
Með ákærunni er höfðað mál á hendur X, B og C, „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa sunnudaginn 17. júní 2006 haft sameiginlega í vörslum sínum 29,65 grömm af amfetamíni í bifreiðinni NA-740 þegar lögregla stöðvaði akstur hennar á Krossanesbraut á Akureyri.
Teljast brot þessi varða við 2. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 68, 2001 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana- og fíkniefna nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 838, 2002 og auglýsingu nr. 232, 2001.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til að sæta upptöku á 29,65 grömmum af amfetamíni sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrám nr. 9660 og 9661, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“
VII. Ákæra sýslumannsins á Akureyri, útgefin 6. júní 2007 S-173/2007.
Með ákærunni er höfðað mál á hendur X og Þ, „fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot:
A.
Gegn ákærðu X og Þ fyrir að hafa þriðjudaginn 30. maí 2006 haft sameiginlega í vörslum sínum 26,37 grömm af amfetamíni í bifreiðinni ME-659 á Þórunnarstræti á Akureyri.
B.
Gegn ákærða Þ fyrir að hafa þriðjudaginn 30. maí 2006 ekið bifreiðinni ME-659 þrátt fyrir stöðvunarmerki lögreglu suður Þórunnarstræti á Akureyri, inn á gatnamót Þingvallastrætis gegnt rauðu umferðarljósi, beygt til vinstri austur Þingvallastræti af rangri akrein, ekið austur Þingvallastræti þvínæst á röngum vegarhelmingi í krappri beygju austur Kaupvangsstræti.
Brot samkvæmt A lið ákæru telst varða við 2. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og 68, 2001 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana- og fíkniefna nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 838, 2002 og auglýsingu nr. 232, 2001. Brot samkvæmt B lið ákæru telst varða við 1. mgr. 5. gr., 1. mgr. 14. gr. og 1. mgr. 15. gr. sbr. 1. mgr. 100. gr. laga nr. 50/1987.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til að sæta upptöku á 26,37 grömmum af amfetamíni sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá nr. 9270, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“
VIII. Ákæra sýslumannsins á Akureyri, útgefin 5. júní 2007 S-174/2007.
Með ákærunni er höfðað mál á hendur X og D „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 13. september 2006 haft saman í vörslum sínum 0,41 gramm af amfetamíni á heimili ákærða [D] á Akureyri.
Brot þetta telst varða við 2. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og 68, 2001 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana- og fíkniefna nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 838, 2002 og auglýsingu nr. 232, 2001.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til að sæta upptöku á 0,41 grammi af amfetamíni sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrám nr. 10558, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“
Framangreindar ákærur voru sameinaðar í þetta mál undir rekstri þess, en á fyrri stigum var þáttur A, B, C og D síðan skilinn frá og dæmdur sérstaklega í málum nr. S-171/2007, S-172/2007 og S-174/2007.
Ákærði Þ krefst þess að verða sýknaður af sakargiftum um brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, en að sér verði ekki gerð sérstök refsing fyrir brot gegn umferðarlögum.
Ákærði X krefst sýknu af öðrum sakargiftum en að hafa haft í vörslum sínum lítilræði af amfetamíni, sem fannst á heimili hans 12. apríl 2006, sbr. kafla III. hér á eftir. Til vara krefst hann vægustu refsingar sem lög leyfa og að hún verði bundin skilorði. Hann krefst sýknu af kröfu um sviptingu ökuréttar.
Ákærðu Z og Y krefjast báðir sýknu en til vara vægustu refsingar sem lög leyfa.
I. (Ákæra útgefin 7. maí 2007, mál nr. S-126/2007. Málsnr. ákæruvaldsins: 024- 2007-02764) Þann 10. apríl sl., klukkan 15:52, var lögreglu tilkynnt um háskalegan akstur ökumanns bifreiðarinnar RU-263 framan við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Á vettvangi fundu lögreglumenn þessa bifreið, framan við inngang B. Hún var mannlaus en lykill var í kveikjulásnum og útvarp í gangi. Lögregla ræddi við vitni sem kváðust hafa séð út um glugga að bifreiðinni hefði verið ekið hratt suður Eyrarlandsveg, yfir grasflöt og hún síðan stöðvuð framan við inngang B.
Ökumaður hefði verið einn í bifreiðinni. Hann hefði hraðað sér inn í sjúkrahúsið.
Læknir vísaði lögreglu á ákærða inni á geðdeild. Kvað læknirinn hann hafa verið æstan er hann kom inn og kvaðst hafa gefið honum nánar tilgreint lyf. Hefði hann þá róast.
Ákærði var færður á lögreglustöð og honum dregið blóð. Samkvæmt matsgerð E læknis, f.h. Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, mældist 550 ng/ml af amfetamíni í því blóði. Segir í matsgerðinni að sá styrkur sé langt umfram það sem megi búast við eftir lækningalega skammta og bendi til eitrunar. Amfetamín sé í flokki ávana- og fíkniefna sem séu óheimil á íslensku forráðasvæði. E staðfesti matsgerð sína hér fyrir dómi. Kom fram í skýrslu hennar að þetta væri með því mesta sem mælst hefði hjá rannsóknastofunni.
Ákærði ber hér fyrir dómi að sér hafi legið mikið við að komast til læknis því að sig hafi vantað lyf. Hann hafi haft amfetamín á sér í poka. Er hann hafi orðið lögreglu var hafi hann gleypt hvort tveggja, efnið og pokann.
Við aðalmeðferð málsins voru að auki teknar vitnaskýrslur af F geðlækni, G hjúkrunarfræðingi, H lækni og I lögreglumanni. Ekkert þessara vitna sá, eða var í aðstöðu til að sjá, ákærða gleypa amfetamín. Ekki er deilt um að ákærði hafi ekið greindri bifreið að sjúkrahúsinu. Ræðst niðurstaða í þessum þætti málsins af því hvort byggt verði á framburði ákærða um að hafa neytt amfetamínsins eftir að akstrinum lauk. Frásögn ákærða um þetta kom fyrst fram við aðalmeðferð málsins.
Það er mat dómara að hún sé ótrúverðug. Er þá haft í huga að F ber að ákærði hafi verið mjög æstur og þurfti F að lempa hann niður og gefa honum freyðitöflu af nánar greindu lyfi til að róa hann. Í framburði vitnanna G og H kom fram að bifreið ákærða hafi verið ekið hratt og ógætilega að sjúkrahúsinu. Er nærtækt að álykta að amfetamín sem mældist í blóði ákærða hafi þá þegar verið til staðar og haft áhrif á andlegt jafnvægi hans og akstursmáta. Verður framburður ákærða um neyslu efnisins eftir akstur að engu hafður. Samkvæmt því verður hann sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákærunni og varðar við þar tilgreint refsiákvæði.
II. (Ákæra útgefin 7. maí 2007. Málsnr. S-127/2007. Mál ákæruvalds nr. 024-2006- 03181) Síðdegis þann 10. maí 2006 veittu lögreglumenn því eftirtekt að ákærði Z kom flugleiðis til Akureyrar og sté upp í bifreið hjá ákærða Þengli. Lögregla veitti bifreiðinni eftirför og stöðvaði för ákærðu skömmu síðar. Lögreglumenn fundu hvítt efni í poka á gólfi bifreiðarinnar. Greindi tæknideild lögreglustjórans í Reykjavík þetta efni sem 5,50 grömm af amfetamíni. Í frumskýrslu lögreglu segir að er lögreglumenn komu að bifreiðinni hafi ákærði Z haldið á þjónustubók bifreiðarinnar í annarri hendi og upprúlluðum peningaseðli í hinni. Hafi þeir séð hvítar efnisleifar á nefi og í nösum þessa ákærða, svo og á bókinni.
Ákærði X skýrir svo frá hér fyrir dómi að hann hafi ekki vitað neitt um þetta efni.
Hafi þeir ákærði Z séð það í bifreiðinni. Tók ákærði fram að ákærði Y hafi áður notað þessa bifreið auk annarra, hinna og þessara manna. Þeir ákærði Z hafi ekki látið sig neinu skipta hvaða efni þetta hafi verið, enda hafi þeir tekið hvað sem var í nefið.
Ákærði Z kom ekki fyrir dóm við aðalmeðferð málsins, en kom fyrir dóm við fyrirtöku þess þann 9. júlí síðastliðinn og kvaðst neita sök. Skipaður verjandi hans upplýsti við aðalmeðferðina að ákærði kysi að neyta réttar síns til að tjá sig ekki frekar um sakargiftir í ákæru.
Ákærði Y kveðst hafa gefið sig fram á lögreglustöð nokkrum dögum eftir þetta, 13. maí 2006 samkvæmt staðhæfingu yfirheyranda í næst greindri lögregluskýrslu, til að skýra frá því að hann væri eigandi þess efnis sem fannst í pokanum. Skýrsla var ekki tekin af honum þá þegar. Lögregla tók skýrslu af honum 1. mars sl. Sagðist hann þá hafa gleymt efninu milli framsætanna í bifreiðinni, fimm til sex grömmum af amfetamíni að sig minnti.
Þessi ákærði skýrði frá því hér fyrir dómi að hann hafi sjálfur neytt fíkniefna, en hætt því snemma á þessu ári. Ákærði X hafi átt hönk upp í bakið á sér og fengið sig til að fara á lögreglustöð og taka á sig sök fyrir að eiga þetta efni. Hann hafi greitt sér fyrir þetta með amfetamíni að verðmæti 100.000 krónur. Ákærði kveðst hafa breytt lífi sínu til hins betra og hafa ákveðið að hverfa frá því að skrökva því á sig að hafa átt greint amfetamín.
Fyrir dóminn var kallaður til vitnisburðar maður að nafni J. Hafði hann ekki frá neinu að segja sem skiptir máli hér.
Vitnið K lögreglumaður ber að hann og annar lögreglumaður hafi ákveðið að fylgjast með ferðum ákærðu X og Z. Þeir hafi ekki séð betur en að hinn síðarnefndi væri að bjástra við fíkniefnaneyslu. Þeir hafi stöðvað bifreiðina og fundið amfetamínið á gólfi hennar. Vitnið staðfesti það sem fram kemur í frumskýrslu lögreglu um efnisleifar á bók og í andliti ákærða Z. Vitnið kveðst ekki hafa rætt við ákærða Y er hann kom á lögreglustöð 13. maí 2006. Vitnið kveðst hafa fylgst með rannsókn málsins. Vitnið ber að lögreglan hafi frá upphafi haft grun um það, studdan upplýsingum frá ónafngreindum heimildarmönnum, að ákærði X hefði fengið þennan ákærða til að taka á sig sök.
Fyrir liggur að greint amfetamín fannst á gólfi bifreiðar sem ákærði X ók og ákærði Z var farþegi í. Þá benda vegsummerki, sem lögregla lýsir í frumskýrslu og vitnið K staðfesti, til þess að ákærði Z hafi verið að taka eitthvað í nefið rétt áður en lögregla stöðvaði för ákærðu. Hver sem kann að hafa átt þetta efni og hvort sem ákærðu, annar hvor eða báðir, fundu það í bifreiðinni fyrir tilviljun eða annar hvor þeirra hafði það með sér, verður fallist á það með ákæruvaldinu að við þessar aðstæður hafi ákærðu X og Z haft þetta efni sameiginlega í sinni vörslu.
Af ákæru verður ráðið að ákærða Y er gefið að sök að hafa haft vörslur þessa sama efnis sem eigandi þess. Um það er engum sönnunargögnum til að dreifa nema framburði hans þess efnis fyrir lögreglu, sem hann hefur breytt hér fyrir dómi eins og áður er rakið og kveðst hafa gefið að beiðni ákærða X og fengið greitt fyrir með amfetamíni. Verður framburður þessa ákærða hér fyrir dómi um að hafa skrökvað því að hann ætti efnið tekinn trúanlegur, sérstaklega með tilliti til þess að lögreglan taldi frá upphafi að hann segði ósatt um að eiga efnið. Verður þessi ákærði sýknaður af sakargiftum í ákærunni.
III. (Ákæra útgefin 10. maí 2007. Mál nr. S-134/2007. Mál ákæruvalds nr. 024- 2006-024851) Lögregla fylgdist á þeim tíma sem ákæra greinir með mannaferðum við heimili ákærða, vegna þess að hún grunaði hann um að dreifa fíkniefnum. Taldi hún í kjölfar þess ástæðu til að sækja ákærða heim. Er hann sá hverjir komnir voru flúði hann út um bakdyr og stakk hendinni ofan í skafl. Tók lögregla hann þar höndum.
Þar sem hann hafði sett höndina í skaflinn fannst hvít kúla með meintum fíkniefnum. Segir í frumskýrslu lögreglu að kúlan hafi verið heit viðkomu og greinilega nýkomin í skaflinn. Tæknideild lögreglustjórans í Reykjavík greinir efni sem í kúlunni var sem 7,32 grömm af amfetamíni. Annað amfetamín og önnur efni sem ákæra greinir fundust við leit lögreglu í íbúð ákærða.
Ákærði tekur fram að hann geti í veikindum ekki neytt hass og hafi ekki hugmynd um hass sem fannst í íbúðinni. Að öðru leyti neitar hann að tjá sig um sakargiftir í þessari ákæru.
Vitnið L lögreglumaður ber að þeir félagi hans M hafi ákveðið að heimsækja ákærða og kallað til liðstyrk. Þeir hafi barið að dyrum og stúlka opnað. Þeir hafi séð inn um dyrnar að ákærði hafi komið innan úr herbergi. Fát hafi komið á hann og hann hlaupið af stað. Þeir hafi farið á eftir. Ákærði hafi farið út um bakdyr út á lóð, stungið hendi í skafl og síðan snúið sér að þeim. Þeir hafi handtekið ákærða og leitað í skaflinum. Þar hafi þeir fundið fyrrgreinda kúlu.
Auk L gaf K lögreglumaður skýrslu vitnis í þessum þætti málsins. Ekki þykir þurfa að rekja sérstaklega efni skýrslu hans.
Óljóst er, enda fjallar þetta mál ekki sérstaklega um það, hvað lögregla hugðist fyrir með því að sækja ákærða heim við fimmta mann án þess að hafa aflað sér heimildar til að leita á heimili hans. Fyrir liggur hins vegar að ákærði heimilaði lögreglu leit eftir að hann var handtekinn. Með hliðsjón af því er ekki alveg nægilegt tilefni að sýkna ákærða af þeirri ástæðu að lögregla hafi brotið af sér við rannsóknina.
Skynsamlegur vafi leikur ekki á því að ákærði hafi stungið í skaflinn því efni sem þar fannst. Verður hann sakfelldur fyrir vörslur þess og efna sem fundust á heimili hans. Varðar það við tilgreint refsiákvæði í ákæru.
IV. (Ákæra útgefin 1. júní 2007. Mál nr. S-142/2007. Mál ákæruvalds nr. 024-2006- 06979) Með játningu ákærða Þ, sem ekki er ástæða til að draga í efa að sé sannleikanum samkvæm, telst nægilega sannað að hann hafi framið þá háttsemi sem honum er gefin að sök í þessari ákæru og varðar við þar tilgreind ákvæði umferðarlaga.
V. (Ákæra útgefin 1. júní 2007. Mál nr. S-171/2007. Mál ákæruvalds nr. 024-2006- 07960) Ákærði var handtekinn við Varmahlíð að kvöldi 8. október 2006 og bifreið sem hann ók færð til Akureyrar og leit gerð í henni með samþykki ákærða. Í loftsíu hennar fannst hvítt efni vafið í sellófan. Greindi tæknideild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu efnið sem 17,26 grömm af amfetamíni.
Ákærði ber hér fyrir dómi að hann hafi ekki átt þetta efni og ekki vitað að það væri þarna. Fyrir dóminn kom vitnið A og skýrði frá því að hann hefði átt þetta efni.
Hefði hann falið það í bifreiðinni án vitundar ákærða, þar sem hann hefði verið óttafullur um að það fyndist í vörslum sínum.
Vitnið K ber að lögregla hafi fengið ábendingu sem varð til þess að fylgst var með ferðum ákærða og hann handtekinn.
Ekkert hefur verið fært fram af hálfu ákæruvaldsins því til stuðnings að frásögn nefnds A sé röng. Verður ákærði því sýknaður af sakargiftum í þessum þætti málsins.
VI. (Ákæra útgefin 5. júní 2007. Mál nr. S-172/2007. Málsnr. ákæruvalds 024- 2006-04221) Ákærði var farþegi í bifreið sem ákæra greinir, er lögregla stöðvaði för hennar þar og þá sem í ákærunni er lýst. Fannst í bifreiðinni duft í poka, sem tæknideild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu greindi sem 19,96 grömm af amfetamíni. Sama deild greindi 9,69 grömm af sama efni í poka sem fannst í buxnavasa öku mannsins.
Ákærði ber að hann hafi verið sofandi í bifreiðinni, en vaknað við læti. Kveðst hann ekkert um efnið vita.
Vitnið B ber að hafa verið í slagtogi með C kunningja sínum þennan dag. Ákærði hafi komið í bifreiðina við veitingastaðinn Ak-inn og haft fíkniefni meðferðis. Hafi hann rétt þeim poka með slíku efni, sem vitnið kveðst hafa ætlað að kaupa. Hafi C stungið þeim poka í vasann. Hinum pokanum hafi ákærði reynt að troða fram í bifreiðina þegar lögreglan kom að.
Vitnið C ber að hafa lítið vitað um þetta mál. Hann hafi ekið bifreiðinni og B setið við hlið hans. Ákærði hafi komið inn í bifreiðina við Ak-inn. Hafi ákærði og B verið með þetta efni, en hann hafi vitað vel að þeir voru að höndla með eitthvað.
Til skýrslugjafar voru kvaddir sem vitni lögreglumennirnir N og L. Er óþarft að rekja framburð þeirra um handtöku ákærða og fund efnisins efnislega hér.
Framburður vitnanna B og C er samhljóða um það atriði að ákærði og B voru að höndla með efnið eða skipta því með sér. Verður ákærði sakfelldur á grundvelli þess fyrir að hafa haft vörslur efnisins í sameiningu með þeim. Varðar það við tilgreint refsiákvæði í ákæru.
VII. (Ákæra útgefin 6. júní 2007. Mál nr. S-173/2007. Mál ákæruvalds nr. 024- 2006-03585) Aðfaranótt 30. maí 2006 veitti lögregla bifreið sem ákæra greinir eftirför. Tendruðu lögreglumenn forgangsljós, en ökumaður hélt samt sem áður áfram suður Þórunnarstræti. Segir í frumskýrslu lögreglu að hann hafi síðan beygt til vinstri austur Þingvallastræti og ekið gegn rauðu ljósi. Rétt eftir að bifreiðin kom á Þingvallastræti hafi hönd komið út um glugga farþegamegin og varpað einhverju suður fyrir götuna. Bifreiðinni hafi verið ekið áfram og á öfugum vegarhelmingi í beygju vestast á Kaupvangsstræti. Lögregla ók í veg fyrir hana á móts við Hótel KEA og stöðvaði för hennar. Ökumaður, ákærði Þ, og farþegi, ákærði X, voru handteknir.
Lögregla leitaði þess sem varpað hafði verið út. Fannst lítil opin glerkrukka. Lagði úr henni mikla lykt. Efst í henni var plastpoki en neðar eitthvert rakt, þétt, hvítt efni. Lokið af krukkunni fannst skammt frá. Tæknideild lögreglustjórans í Reykjavík fékk þetta efni greint hjá Rannsóknastofu Háskólans sem 26,37 grömm af amfetamíni.
Ákærði Þ ber hér fyrir dómi að nefnt umferðarljós hafi verið „hálf gult“. Hann kveðst ekkert kannast við amfetamín, sem honum er gefið að sök að hafa haft í vörslu sinni, og kveðst alfarið neita sök.
Ákærði X ber hér fyrir dómi að muna ekki vel eftir atvikum, en hafa rétt hönd út um glugga bifreiðarinnar til að steyta hnefa að lögreglunni.
Vitnið I lögreglumaður ber að þeir félagi hans L hafi veitt bifreiðinni athygli og ákveðið að ræða við ökumann. Þeir hafi tendrað forgangsljós á gatnamótum Hamarstígs og Þórunnarstrætis. Ökumaður hafi ekki sinnt því og ekið gegn rauðu ljósi á gatnamótum Þórunnarstrætis og Þingvallastrætis, þar sem hann hafi snarbeygt til vinstri. Eftir að þeir stöðvuðu för ákærðu hafi þeir farið að leita þess sem þeir sáu varpað út úr bifreiðinni og fundið greinda krukku.
Vitnið L lögreglumaður ber í öllum aðalatriðum á sama veg um atvik og síðast greint vitni.
Við aðalmeðferð málsins var sýnd kvikmynd af eftirförinni sem tekin var með myndavél á lögreglubifreiðinni. Eftir skoðun hennar metur dómari það útilokað að ákærði Þ hafi ekki tekið eftir forgangsljósum lögreglu og að þau hafi verið til þess tendruð að gefa honum merki um að stöðva för sína, að því gefnu að hann hafi verið með fullri rænu. Þessi háttsemi er ekki sérstaklega heimfærð til ákvæða umferðarlaga í ákæru og verður ákærða því ekki gerð refsing fyrir hana. Önnur brot sem hann framdi gegn umferðarlögum í þetta sinn framdi hann þrátt fyrir og raunar langlíklegast vegna þess að lögregla hafði gefið honum merki um að nema staðar. Verður það haft í huga við ákvörðun refsingar. Með þessari kvikmynd og vætti lögreglumannanna er sannað svo ekki leikur vafi á að ákærði ók gegn rauðu ljósi eins og lýst er í ákæru. Með kvikmyndinni er einnig sannað að ákærði beygði af rangri akrein og ók á röngum vegarhelmingi eins og í ákæru greinir.
Af nefndri kvikmynd má greina að einhverju er varpað út úr bifreiðinni um glugga farþegamegin að framan. Fannst krukka með amfetamíni við leit lögreglu. Leikur ekki skynsamlegur vafi á að þeirri krukku hafi verið varpað úr bifreiðinni sem ákærðu voru í. Með því að ekki er annað upplýst, verða þeir sakfelldir fyrir að hafa haft vörslu amfetamínsins sameiginlega, enda verður sú háttsemi ákærða Þ að sinna ekki stöðvunarmerkjum lögreglu best skýrð með því að hann hafi viljað skapa tækifæri til að koma efninu undan.
Háttsemi ákærðu varðar við tilgreind refsiákvæði í ákæru.
VIII. (Ákæra 5. júní 2007. Mál nr. S-174/2007. Mál ákæruvalds nr. 024-2006- 07227) Lögregla sá ákærða og D yfirgefa íbúð hins síðarnefnda að Hafnarstræti ..., Akureyri, að kvöldi 13. september 2006. Veitti hún þeim eftirför og hafði afskipti af D, sem heimilaði leit í íbúðinni. Fannst þar hvítt efni í poka og ein lína af hvítu efni á geislaplötuumslagi. Tæknideild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu greindi þetta efni sem 0,41 gramm af amfetamíni.
Ákærði ber hér fyrir dómi að hafa neytt amfetamíns heima hjá D í boði hans. Hafi D ranglega borið á hann að eiga amfetamín sem fannst á heimili hans.
Vitnið D ber hér fyrir dómi að maður sem hann vilji ekki segja til hafi átt þetta efni.
Vitnið K lögreglumaður staðfestir að D hafi sagt ákærða eiga efnið, svo sem fram kemur í skýrslu lögreglu um framburð hans á rannsóknarstigi málsins.
Fyrir liggur að ákærði neytti amfetamíns á heimili D og að D skýrði lögreglu frá því í upphafi að ákærði ætti það amfetamín sem þar fannst. D kveðst nú hafa skrökvað þessu. Breyttur framburður hans þykir ekki trúverðugur. Með skírskotun til neyslu ákærða heima hjá D og upphaflegs framburðar D, verður talið nægilega sannað að þeir ákærði hafi haft vörslur þessa efnis í sameiningu. Samkvæmt því verður ákærði sakfelldur fyrir þá háttsemi sem lýst er í ákæru og þar er rétt heimfærð til refsiákvæðis.
IX. (Viðurlög og fleira.) Ákærði X hefur ekki sætt öðrum refsingum en tveimur sektum fyrir umferðarlagabrot árið 1999 og með dómi 27. nóvember 2006 til að greiða 90.000 króna sekt og sæta sviptingu ökuréttar í þrjá mánuði fyrir brot gegn 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a umferðarlaga.
Ákærði hefur hér verið sakfelldur fyrir nýtt brot gegn nefndu umferðarlaga-ákvæði og fyrir fimm brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni með því að hafa í vörslum sínum, ýmist einn eða í sameiningu með öðrum, samtals rúm 70 grömm af amfetamíni auk lítilræðis af hassi.
Refsing ákærða ákveðst fangelsi í tvo mánuði og sekt til ríkissjóðs að fjárhæð 160.000 krónur. Með tilliti til þess að ákærði hefur ekki fyrr sætt refsingum fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni þykir rétt að skilorðsbinda fangelsisrefsinguna eins og nánar greinir í dómsorði. Sektin skal greiðast innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja, en ákærði ella sæta fangelsi í 12 daga.
Samkvæmt 6. mgr. 102. gr. umferðarlaga, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006, ber að svipta ákærða ökurétti. Með hliðsjón af því hve mikið magn amfetamíns mældist í blóði hans ákveðst sviptingartíminn þrjú ár frá birtingu þessa dóms að telja.
Ákærði Z á að baki töluverðan sakaferil fyrir brot gegn almennum hegningarlögum og umferðarlögum. Síðast var honum refsað með viðurlagaákvörðun 23. júní 2003, 10.000 króna sekt fyrir þjófnað. Sakaferill ákærða hefur ekki áhrif á ákvörðun refsingar hans í þessu máli, sem ákveðst 75.000 króna sekt til ríkissjóðs, sem skal greiða innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja, en ákærði ella sæta fangelsi í sex daga.
Ákærði Þ var þann 18. maí sl. dæmdur til greiðslu 75.000 króna sektar fyrir brot gegn 1. mgr. 37. gr. umferðarlaga. Ber að tiltaka refsingu hans sem hegningarauka við þann dóm. Refsing hans ákveðst sekt að fjárhæð 280.000 krónur, sem skal greiða innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja, en ákærði ella sæta fangelsi í 20 daga.
Gera ber upptækt amfetamín, hass og tóbaksblandað hass eins og krafist er.
Sakarkostnaður á rannsóknarstigi nemur 294.247 krónum, sem dæma ber ákærða X til að greiða, þar af 74.002 krónur í sameiningu með ákærða Þ. Á dómstigi málsins leiddi ekki annan kostnað af rekstri þess en málsvarnarlaun og ferðakostnað skipaðra verjenda ákærðu. Ferðakostnaður skipaðs verjanda ákærðu X og Þ Kristjáns Stefánssonar hrl., nemur 61.120 krónum, sem þeir verða dæmdir til að greiða í sameiningu, sem og málsvarnarlaun hans, sem ákveðast eins og greinir í dómsorði.
Ákærði Z greiði ferðakostnað og málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Gríms Sigurðarsonar hdl., eins og nánar greinir í dómsorði.
Tekið er tillit til þess að báðir lögmennirnir þurftu að ferðast tvívegis frá Reykjavík til Akureyrar vegna þessa máls.
Málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða Y, Ingvars Þóroddssonar hdl., greiðast úr ríkissjóði eins og greinir í dómsorði.
Virðisaukaskattur er innifalinn í tilgreindum fjárhæðum í dómsorði þar sem við á.
Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði X sæti fangelsi í tvo mánuði og greiði 160.000 krónur í sekt til ríkissjóðs.
Fresta skal fullnustu fangelsisrefsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Fangelsi í 12 daga komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja.
Ákærði Z greiði 75.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja, en sæti ella fangelsi í 6 daga.
Ákærði Y er sýkn af kröfum ákæruvaldsins í þessu máli.
Ákærði Þ greiði 280.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja, en sæti ella fangelsi í 20 daga.
Ákærði X er sviptur ökurétti í þrjú ár frá birtingu dómsins að telja.
Upptækt er amfetamín, hass og tóbaksblandað hass, auðkennt nr. 9.359, 8.998, 8.999, 9660, 9661, 9270 og 10558 í efnaskrá lögreglu.
Ákærði X greiði 705.367 krónur í sakarkostnað. Þar af greiði þeir ákærði Þ í sameiningu 424.002 krónur, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda þeirra, Kristjáns Stefánssonar hrl., 350.000 krónur.
Ákærði Z greiði 350.070 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Gríms Sigurðarsonar hdl., 300.000 krónur.
Málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða Y, Ingvars Þóroddssonar hdl., 185.000 krónur, greiðist úr ríkissjóði.