Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 23. maí 2007.
Mál nr. S-110/2007:
D Ó M U R
nr. S-110/2007:
Ákæruvaldið
(Guðjón Jóel Björnsson fulltrúi)
gegn
X
Lykilorð
Líkamsárás. Skaðabætur. Skilorð.
Útdráttur
Karlmaður dæmdur í skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu skaðabóta fyrir líkamsárás
X.
Mál þetta, sem dómtekið var þann 16. maí sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæruskjali lögreglustjórans á Akureyri útgefnu þann 23. apríl sl., á hendur X; „fyrir líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 13. maí 2006, í Kjarnaskógi við Akureyri, skallað, [A], í andlitið með þeim afleiðingum að hann hlaut nefbeinsbrot vegna höggs á nefið og 1 mm skarð á dýpt og breidd í hægri framtönn í efri gómi.
Telst þetta varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20, 1981.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Í málinu gerir Árni Pálsson hrl. fyrir hönd [A] bótakröfu á hendur ákærða að fjárhæð kr. 311.666,- auk vaxta frá 13. maí 2006 skv. lögum nr. 38/2001.“
Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa. Hann krefst lækkunar á miskabótakröfu A.
Hér fyrir dóminum hefur ákærði skýlaust viðurkennt brot sitt eins og því er í ákæru lýst. Er játning ákærða í samræmi við gögn málsins og telst brot hans því nægjanlega sannað og varða það við tilgreind lagaákvæði í ákæruskjali.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði einu sinni gengist undir sátt fyrir brot á umferðarlögum. Við ákvörðun refsingar ber að líta til þess að ákærði hefur ekki áður gerst brotlegur við almenn hegningarlög og hefur skýlaust játað brot sitt. Þykir refsing hans hæfilega ákveðin 2 mánaða fangelsi. Rétt þykir að fresta fullnustu refsingarinnar þannig að hún falli niður að 2 árum liðnum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningalaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Bótakrafa A er þannig sundurliðuð:
Miskabætur kr. 250.000 Lögmannskostnaður kr. 50.422 m. vsk.
Lækniskostnaður kr. 11.244 Alls kr. 311.666 Samkvæmt ofangreindri niðurstöðu um sekt ákærða ber hann skaðabótaábyrgð á því tjóni sem rekja má til hinnar refsiverðu háttsemi.
Ákærði hefur samþykkt að greiða útlagða kostnaðarliði kröfunnar kr. 61.666- og ber að dæma hann til greiðslu þeirrar fjárhæðar.
Ákærði hefur mótmælt miskabótakröfunni sem of hárri og krafist lækkunar á henni.
Í læknisvottorði B, háls-, nef-, og eyrnalæknis, kemur fram að brotaþoli hlaut við árásina nefbeinsbrot vegna höggs á nefið. Einnig hlaut hann skarð í hægri framtönn i efri góm, 1 mm að dýpt og breidd. Þann 18. maí sl., var brotaþoli tekinn til aðgerðar. Kemur fram í aðgerðarlýsingu að nefið hafi verið hliðrað yfir til vinstri og það rétt í svæfingu. Með vísan til framangreinds þykja miskabætur samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, sbr. 13. gr. laga nr. 37/1999, hæfilega ákveðnar kr. 100.000-. Verður ákærði samkvæmt framanskráðu dæmdur til að greiða A kr. 161.666ásamt vöxtum eins og greinir í dómsorði.
Í málinu liggur fyrir kostnaður vegna læknisvottorðs kr. 10.000,-. Ber, með vísan til 164. gr. og 165. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, að dæma ákærða til greiðslu þeirrar fjárhæðar í sakarkostnað.
Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, X, sæti fangelsi í 2 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum 2 árum frá uppsögu dómsins að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði A kr. 161.666,- með vöxtum samkv. lögum nr. 38, 2001 frá 13. maí 2006 til greiðsludags.
Ákærði greiði kr. 10.000,- í sakarkostnað.