Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 28. febrúar 2007.
Mál nr. S-415/2006:
Ákærandi: Sýslumaðurinn á Húsavík
Ákærði: X
Dómari: Freyr Ófeigsson
dómstjóri
D Ó M U R
nr. S-415/2006:
Ákæruvaldið
(Svavar Pálsson fulltrúi)
gegn
X
Mál
þetta, sem dómtekið var þann 7. febrúar sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi
Norðurlands eystra með ákæru lögreglustjórans á Húsavík, útgefinni þann 9.
nóvember 2006, á hendur X, fyrir hegningarlagabrot þremur liðum.
Í
ákærulið I. er ákærða gefin að sök „líkamsárás, með því að hafa fimmtudaginn 8.
apríl 2003, á heimili ákærða og þáverandi sambýliskonu hans að [...], snúið upp
á vinstri hönd hennar, með þeim afleiðingum að hún tognaði á vinstri úlnlið.“
Í
II. ákærulið er ákærða gefin að sök „líkamsárás, með því að hafa þriðjudaginn
18. maí 2004, að [...], veist að þáverandi eiginkonu hans, tekið fast um
handleggi hennar og ýtt við henni svo hún féll við og síðan sparkað í hana,
allt með þeim afleiðingum að hún hlaut mar á framhandleggjum og eymsli í baki.“
Eru
brot samkvæmt I. og II. ákærulið talin varða við 1. mgr. 217. gr. almennra
hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981.
Í
III. lið ákærunnar er ákærða gefið að sök „húsbrot, með því að hafa í tvígang á
árinu 2006 ruðst inn í íbúð fyrrverandi eiginkonu ákærða að [...] sem hér
segir:
a.
Miðvikudaginn 15. febrúar og
synjað að yfirgefa íbúðina er hún skoraði á ákærða að gera það.
b.
Þriðjudaginn 14. mars, synjað að
yfirgefa íbúðina er hún skoraði á ákærða að gera það og dvalið þar uns lögregla
handtók ákærða og færði hann af vettvangi.“
Eru
brot ákærða samkvæmt ákæruliðum III.a og III.b talin varða við 231. gr. almennra
hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess
skaðabótakröfu samtals að fjárhæð kr. 133.386, auk vaxta.
Verjandi
ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.
(Örlygur Hnefill Jónsson hdl)
Lykilorð
Húsbrot. Líkamsárás. Skaðabætur.
Útdráttur
Karlmaður dæmdur til fangelsisvistar fyrir líkamsárásir og húsbrot. - Jafnframt var hann dæmdur til að greiða brotaþola skaðabætur.
X
(Örlygur Hnefill Jónsson hdl.)
Mál þetta, sem dómtekið var þann 7. febrúar sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru lögreglustjórans á Húsavík, útgefinni þann 9. nóvember 2006, á hendur X, fyrir hegningarlagabrot þremur liðum.
Í ákærulið I. er ákærða gefin að sök „líkamsárás, með því að hafa fimmtudaginn 8. apríl 2003, á heimili ákærða og þáverandi sambýliskonu hans að [...], snúið upp á vinstri hönd hennar, með þeim afleiðingum að hún tognaði á vinstri úlnlið.“
Í II. ákærulið er ákærða gefin að sök „líkamsárás, með því að hafa þriðjudaginn 18. maí 2004, að [...], veist að þáverandi eiginkonu hans, tekið fast um handleggi hennar og ýtt við henni svo hún féll við og síðan sparkað í hana, allt með þeim afleiðingum að hún hlaut mar á framhandleggjum og eymsli í baki.“
Eru brot samkvæmt I. og II. ákærulið talin varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981.
Í III. lið ákærunnar er ákærða gefið að sök „húsbrot, með því að hafa í tvígang á árinu 2006 ruðst inn í íbúð fyrrverandi eiginkonu ákærða að [...] sem hér segir: a. Miðvikudaginn 15. febrúar og synjað að yfirgefa íbúðina er hún skoraði á ákærða að gera það. b. Þriðjudaginn 14. mars, synjað að yfirgefa íbúðina er hún skoraði á ákærða að gera það og dvalið þar uns lögregla handtók ákærða og færði hann af vettvangi.“
Eru brot ákærða samkvæmt ákæruliðum III.a og III.b talin varða við 231. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og í málinu gerir A, skaðabótakröfu samtals að fjárhæð kr. 133.386, auk vaxta.
Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa. Hann krefst þess að framkomin bótakrafa verði lækkuð. Þá krefst hann hæfilegra málsvarnarlauna sér til handa.
Ákærði kom fyrir dóminn við fyrirtöku málsins þann 7. febrúar sl. ásamt skipuðum verjanda sínum og viðurkenndi brot sín eins og þeim er í ákæru lýst. Er játning hans í samræmi við gögn málsins og þykja brot hans því nægjanlega sönnuð og varða við tilgreind lagaákvæði í ákæruskjali. Í verknaðarlýsingu í ákæru er brotaþoli ekki nafngreindur og ákæran að því leyti ekki svo skýr sem æskilegt væri. Við fyrirtöku málsins var þó ljóst að þessi óskýrleiki kom ekki að sök og var vörn ákærða ekki áfátt vegna þessa. Eins og á stendur þykir því unnt að leggja dóm á málið, sbr. 1. mgr. 117. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Að framangreindu virtu þykir mega leggja dóm á málið á grundvelli 125. gr. laga nr. 19/1991.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins var ákærði þann 31. janúar 1991 dæmdur í 6 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 3 ár, fyrir brot gegn 219. gr., 4. mgr. 220. gr. og 233. gr. almennra hegningarlaga og vopnalögum. Þann 3. mars 1997 var hann dæmdur í 3 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 3 ár, fyrir kynferðisbrot. Þykir refsing ákærða nú hæfilega ákveðin fangelsi í 3 mánuði. Ekki þykir fært að skilorðsbinda refsinguna.
Í málinu gerir A, kt. 230979-3169, kröfu um greiðslu bóta úr hendi ákærða, alls að fjárhæð kr. 133.386,-, auk vaxta og dráttarvaxta. Bótakrafan er þannig sundurliðuð:
Miskabætur kr. 100.000,- Lögmannsþóknun skv. gjaldskrá Regula lögmannsstofu ehf. kr. 26.816,- 24,5% virðisaukaskattur á lögmannsþóknun kr. 6.570,- Samtals kr. 133.386,- Þá er gerð krafa um vexti skv. 16. gr. skaðabótalaga frá 7. apríl 2006 til 4. ágúst 2006 en dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. laga nr. 38/2001 frá þeim degi til greiðsludags.
Við fyrirtöku málsins kvaðst ákærða samþykkja framkomna bótakröfu og verður hún því tekin til greina að fullu.
Í málinu liggur fyrir sakarkostnaður vegna öflunar læknisvottorðs, kr. 7.500,-. Með vísan til 165. gr. laga nr. 19/1991 verður ákærði dæmdur til greiðslu þess kostnaðar auk þóknunar skipaðs verjanda síns, Örlygs Hnefils Jónssonar hdl., sem þykir hæfilega ákveðin kr. 90.000- og er virðisaukaskattur þar innifalinn.
Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði X sæti fangelsi í 3 mánuði.
Ákærði greiði A kr. 133.386-. ásamt vöxtum samkv. 16. gr. skaðabótalaga frá 7. apríl 2006 til 4. ágúst s.á. en dráttarvöxtum samkv. 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. laga nr. 38/2001 frá þ.d. til greiðsludags.
Ákærði greiði kr. 97.500í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda síns, Örlygs Hnefils Jónssonar hdl., kr. 90.000- og er virðisaukaskattur innifalinn.