Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-290/2006:

D Ó M U R

nr. S-290/2006:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X.

Mál

þetta, sem dómtekið var þann 2. október sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi

Norðurlands eystra með ákæru lögreglustjórans á Akureyri, útgefinni 1.

september 2006, á hendur X, kt. 000000-0000, [...], Akureyri,

„fyrir

eftirtalin vopna- og fíkniefnalagabrot:

A.

Vopnalagabrot.

Með því að hafa aðfaranótt

sunnudagsins 21. maí 2006, verið með í fórum sínum stóran vasahníf með 91

millimetra löngu hnífsblaði, þegar lögreglan hafði afskipti af honum í miðbæ

Akureyrar, þar sem hann var undir miklum áfengisáhrifum.

B.

Fíkniefnalagabrot.

1.

Með því að hafa aðfaranótt

föstudagsins 12. maí 2006, verið með í vörslum sínum 0,98 grömm af hassi, þegar

lögreglan handtók hann þar sem hann var staddur í [...] á Akureyri.

2.

Með því að hafa þriðjudaginn 23. maí

2006, verið með í vörslum sínum 0,50 grömm af amfetamíni á heimili sínu að [...]

á Akureyri.

3.

Með því að hafa aðfaranótt

laugardagsins 24. júní 2006, verið með í vörslum sínum 0,88 grömm af hassi,

þegar hann var handtekinn vegna óláta af lögreglu á móts við Nætursöluna við

Strandgötu á Akureyri.

Brot ákærða samkvæmt A lið ákærunnar

telst varða við 1. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16, 1998.

Brot

ákærða samkvæmt B kafla ákærunnar teljast varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6.

gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög

nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um

sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.

Þess

er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á

vasahníf með 91 millimetra löngu hnífsblaði og til að sæta upptöku á 1,80

grömmum af hassi og 0,50 grömmum af amfetamíni, sem lögreglan lagði hald á og

tilgreint er í efnaskrám nr. 9.164, 9.361 og 9.648, samkvæmt 6. mgr. 5. gr.

laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001 og 1. mgr. 37.

gr. laga nr. 16, 1998.“

Ákærði

kom fyrir dóminn við þingfestingu málsins þann 2. október sl. og viðurkenndi

brot sín samkvæmt B kafla ákærunnar eins og þeim er þar lýst.  Er játning hans í samræmi við gögn málsins og

þykja brotin því nægjanlega sönnuð og varða við tilgreind lagaákvæði í

ákæruskjali.  Þykja samkvæmt

framangreindu efni til að leggja dóm á þann hluta málsins á grundvelli 125. gr.

laga nr. 19/1991.

Fyrir

dóminum viðurkenndi ákærði einnig þá háttsemi sem er lýst í A lið ákærunnar,

Upptaka. Vopnalagabrot. Ávana- og fíkniefni.

Karlmaður dæmdur til greiðslu sektar fyrir vörslur fíkniefna svo og til að sæta upptöku á fíkniefnum. Hann var sýknaður af ákæru um brot á vopnalögum.

X.

Mál þetta, sem dómtekið var þann 2. október sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru lögreglustjórans á Akureyri, útgefinni 1. september 2006, á hendur X, kt. 000000-0000, [...], Akureyri, „fyrir eftirtalin vopna- og fíkniefnalagabrot:

A.

Vopnalagabrot.

Með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 21. maí 2006, verið með í fórum sínum stóran vasahníf með 91 millimetra löngu hnífsblaði, þegar lögreglan hafði afskipti af honum í miðbæ Akureyrar, þar sem hann var undir miklum áfengisáhrifum.

B.

Fíkniefnalagabrot.

Með því að hafa aðfaranótt föstudagsins 12. maí 2006, verið með í vörslum sínum 0,98 grömm af hassi, þegar lögreglan handtók hann þar sem hann var staddur í [...] á Akureyri.

Með því að hafa þriðjudaginn 23. maí 2006, verið með í vörslum sínum 0,50 grömm af amfetamíni á heimili sínu að [...] á Akureyri.

Með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 24. júní 2006, verið með í vörslum sínum 0,88 grömm af hassi, þegar hann var handtekinn vegna óláta af lögreglu á móts við Nætursöluna við Strandgötu á Akureyri.

Brot ákærða samkvæmt A lið ákærunnar telst varða við 1. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16, 1998.

Brot ákærða samkvæmt B kafla ákærunnar teljast varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á vasahníf með 91 millimetra löngu hnífsblaði og til að sæta upptöku á 1,80 grömmum af hassi og 0,50 grömmum af amfetamíni, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrám nr. 9.164, 9.361 og 9.648, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001 og 1. mgr. 37. gr. laga nr. 16, 1998.“

Ákærði kom fyrir dóminn við þingfestingu málsins þann 2. október sl. og viðurkenndi brot sín samkvæmt B kafla ákærunnar eins og þeim er þar lýst.  Er játning hans í samræmi við gögn málsins og þykja brotin því nægjanlega sönnuð og varða við tilgreind lagaákvæði í ákæruskjali.  Þykja samkvæmt framangreindu efni til að leggja dóm á þann hluta málsins á grundvelli 125. gr. laga nr. 19/1991.

Fyrir dóminum viðurkenndi ákærði einnig þá háttsemi sem er lýst í A lið ákærunnar, þ.e. að hafa haft umræddan hníf í fórum sínum í greint sinn.  Hann kvaðst hins vegar hafa borið umræddan hníf vegna starfa sinna til sjós á umræddum tíma, um netahníf hafi verið að ræða.  Kvaðst ákærði samþykkur dómtöku málsins að þessu framkomnu og lagði sækjandi málið í dóm án frekari flutnings.

Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. vopnalaga nr. 16/1998 er vopnaburður á almannafæri bannaður en heimilt að bera á sér bitvopn þar sem eðlilegt og sjálfsagt getur talist, svo sem við vinnu, veiðar eða í öðrum tilvikum þegar engin hætta er því samfara.  Í gögnum málsins kemur fram að hnífurinn, sem ekki er ólöglegur, hafi fundist á ákærða við leit á honum vegna gruns um fíkniefnamisferli.  Með vísan til framburðar ákærða verður ekki talið sannað að óeðlilegt hafi verið af honum að hafa greindan vasahníf á sér.  Þá verður ekki af verknaðarlýsingu í ákæru eða gögnum málsins ráðið að hætta hafi verið samfara því að ákærði skyldi vera með vasahnífinn á sér umrætt sinn.  Verður ákærði sýknaður af broti samkvæmt A lið ákærunnar.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði átta sinnum hlotið refsingar fyrir brot á umferðarlögum, hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Þann 13. janúar 2004 var ákærði dæmdur í 5 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 3 ár, fyrir hegningarlaga- og fíkniefnalagabrot.  Þann 14. maí 2004 var hann dæmdur fyrir þjófnað og fíkniefnalagabrot en ekki gerð sérstök refsing þar sem um hegningarauka við dóminn frá 23. janúar 2004 var að ræða.  Þann 13. október 2004 var ákærði dæmdur í 6 mánaða fangelsi, þar af 3 mánuði skilorðsbundna í 3 ár, fyrir þjófnað og var þá dómurinn frá 13. janúar 2004 tekinn upp og dæmdur með.  Þann 25. febrúar 2005 var ákærði dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir auðgunarbrot og brot á fíkniefnalöggjöfinni og var þá dómurinn frá 13. október 2004 tekinn upp og dæmdur með.  Þann 15. júní 2005 var ákærða veitt reynslulausn í eitt ár á eftirstöðvum 135 daga refsingar en 2. júní 2006 var hann dæmdur í 7 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás, fjársvik og fíkniefnalagabrot og var þá reynslulausnin tekin upp og dæmd með.  Ákærði er nú dæmdur fyrir að hafa þrívegis verið með fíkniefni í vörslum sínum, þann 12. maí, 23. maí og 24. júní 2006.  Eru tvö fyrri brotin framin áður en dómurinn var upp kveðinn þann 2. júní sl. og ber, að því er þau brot varðar, að líta til ákvæðis 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 um hegningarauka við ákvörðun refsingar ákærða.  Að framangreindu virtu þykir refsing ákærða nú hæfilega ákveðin kr. 30.000í sekt til ríkissjóðs og komi 2 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.

Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilgreindra lagaákvæða í ákæruskjali, ber að gera upptæk fíkniefni, svo sem í dómsorði greinir.

Með vísan til úrslita málsins er hafnað kröfu ákæruvalds um upptöku vasahnífs ákærða.

Ekki liggja fyrir gögn um sakarkostnað í málinu.

Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði X greiði kr. 30.000í sekt til ríkissjóðs og komi 2 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.

Ákærði sæti upptöku á 1,80 grömmum af hassi og 0,50 grömmum af amfetamíni samkvæmt efnaskrám lögreglu nr. 9.164, 9.361 og 9.648.