Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 7. júlí 2006.
Mál nr. S-140/2006:
D Ó M U R
máli
nr. S-140/2006:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X, Z og
(Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Y
(Jón Höskuldsson hdl)
Lykilorð
Hegningarauki. Skilorð. Þjófnaður.
Útdráttur
Þrír menn dæmdir sekir um þjófnað.
Mál þetta, sem dómtekið var þann 21. júní sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæruskjali lögreglustjórans á Akureyri útgefnu 15. maí 2006 á hendur X, Z og Y, „fyrir þjófnað, með því að hafa aðfaranótt þriðjudagsins 30. desember 2003, staðið saman að því að stela vélsleða af gerðinni Arctic cat MC, með skráningarnúmerinu [...], ásamt vélsleðakerru, en kerran stóð með sleðanum í við [...] á Akureyri og aka með kerruna og sleðann til Reykjanesbæjar, þar sem þeir hugðust selja þýfið.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar.
Í málinu gerir [A], bótakröfu á hendur ákærðu að fjárhæð kr. 134.010,-. “
Af hálfu ákærðu Y og Z er þess aðallega krafist að þeim verði ekki gerð refsing í málinu en til vara vægustu refsingar sem lög leyfa. Þess er krafist að bótakröfunni verði vísað frá dómi. Þá krefjast verjendur þeirra málsvarnarlauna.
Ekki eru hafðar uppi kröfur af hendi ákærða Xaðrar en þær að hann hafnar framkominni bótakröfu.
I.
Ákærði Y kom fyrir dóminn þann 12. júní sl., ákærði X þann 16. júní sl., en ákærði Z þann 21. sama mánaðar. Var þeim hverjum fyrir sig kynnt ákæran að því leyti er þá varðar og lýstu þeir afstöðu sinni til sakargifta.
Ákærði Y viðurkenndi brot sitt eins og því er í ákæru lýst. Hann kvað þá alla hafa staðið saman að verknaðinum og hafi tilgangurinn verið sá að selja sleðann til að fjármagna fíkniefnakaup.
Ákærði X viðurkenndi brot sitt eins og því er í ákæru lýst og sagði þá hafa tekið ákvörðun í sameiningu. Hann lagði þó áherslu á að hans hlutverk hefði eingöngu verið að aka bílnum.
Ákærði Z viðurkenndi brot sitt eins og því er í ákæru lýst. Hann kvað meðákærða X hafa hótað sér ofbeldi ef hann aðstoðaði sig ekki við brotið. Hann kvað ekki hafa verið um sameiginlega ákvörðun að ræða, heldur hafi meðákærði X átt upptökin að brotinu og tekið ákvörðun um það. Sjálfur hafi hann engan ávinning haft af brotinu annan en þann að vera laus sinna mála, en hann hafi skuldað meðákærða X pening vegna fíkniefnakaupa.
Játningar ákærðu eru í samræmi við gögn málsins og þykir brot þeirra nægjanlega sannað og varðar við tilgreind lagaákvæði í ákæruskjali.
II.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði X alls fjórtán sinnum frá árinu 1998 sætt refsingu vegna ýmissa brota, flestra gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Þann 28. janúar 2004 var ákærði dæmdur í 6 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára, fyrir brot gegn 254. gr. almennra hegningarlaga og gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Þann 21. október sama ár var hann dæmdur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga og var fyrri skilorðsdómur þá tekinn upp og hlaut hann þá 7 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára. Brot það sem hann er nú fundinn sekur um framdi hann áður en framangreindir tveir dómar voru kveðnir upp og ber því nú að ákvarða ákærða hegningarauka samkvæmt reglum 78. gr. hegningarlaga nr. 19/1940. Þykir refsing ákærða nú hæfilega ákveðin fangelsi í 2 mánuði. Með vísan til þess hversu langt er um liðið frá brotinu og að um er að ræða hegningarauka þykir mega fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún niður falla að liðnum 3 árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði Z alls átján sinnum frá árinu 1994 sætt refsingu vegna ýmissa brota, flestra gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Þann 1. nóvember 2005 var ákærði dæmdur í 4 mánaða fangelsi, fyrir brot gegn umferðarlögum, vopnalögum og gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Þann 27. janúar síðastliðinn var ákærði dæmdur fyrir brot gegn 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga og hlaut ákærði 3 mánaða fangelsi. Þann 23. mars sama ár hlaut ákærði síðan 90 daga fangelsi fyrir brot gegn sama lagaákvæði. Brot það sem hann er nú fundinn sekur um framdi hann áður en framangreindir þrír dómar voru kveðnir upp og ber því nú að ákvarða ákærða hegningarauka samkvæmt reglum 78. gr. hegningarlaga nr. 19/1940. Þykja ekki efni til að ákveða honum sérstaka refsingu nú.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði Y alls 9 sinnum frá árinu 2001 sætt refsingu. Þann 2. júní 2005 var ákærði dæmdur í 15 mánaða fangelsi, fyrir brot gegn 252. gr. almennra hegningarlaga. Þann 6. febrúar síðastliðinn hlaut ákærði dóm fyrir brot gegn 248. gr. almennra hegningarlaga. Þar sem um hegningarauka var að ræða var ákærða ekki gerð sérstök refsing. Brot það sem hann er nú fundinn sekur um framdi hann áður en framangreindir tveir dómar voru kveðnir upp og ber því nú að ákvarða ákærða hegningarauka samkvæmt reglum 78. gr. hegningarlaga nr. 19/1940. Þykja ekki efni til að ákveða honum sérstaka refsingu nú..
III.
Í málinu gerir A, bótakröfu á hendur ákærðu, að fjárhæð kr. 134.010. Sundurliðast krafan svo að um sé að ræða kostnað að fjárhæð kr. 7.000,- við nýja reim í sleðann, kostnað að fjárhæð kr. 25.0000,- við að flytja sleðann frá Reykjanesbæ til Akureyrar og loks kostnað að fjárhæð kr. 102.010,- við kaup á nýju GPS tæki. Samkvæmt gögnum málsins virðast fyrstu tveir kröfuliðirnir vera reistir á mati á kostnaði en ekki staðfestum útgjöldum bótakrefjenda vegna málsins og ekki liggja fyrir gögn um þær skemmdir er krafist er bóta fyrir. Er síðastnefndi kostnaðarliðurinn studdur reikningi, stíluðum á Vélsmiðju Steindórs vegna kaupa á nýju GPS-tæki, sem bótakrefjandi kveður hafa horfið úr sleðanum. Hér fyrir dóminum hefur ekki farið fram sérstök sönnunarfærsla vegna bótakröfunnar og henni hefur ekki verið fylgt eftir af bótakrefjanda. Þykir krafan vera það vanreifuð að ekki er unnt að leggja á hana efnisdóm og verður henni því vísað frá dómi ex officio.
Samkvæmt reikningi nemur útlagður kostnaður vegna Z kr. 17.985- og ber að dæma hann til greiðslu þeirrar fjárhæðar í málskostnað ásamt málsvarnarlaunum skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hrl., sem þykja hæfilega ákveðin kr. 110.000- og er virðisaukaskattur meðtalinn eða samtals kr. 127.985-.
Útlagður kostnaður vegna ákærða Y nemur samkv. reikningi kr. 18.460- og ber að dæma hann til greiðslu þeirrar fjárhæðar í málskostnað ásamt málsvarnarlaunum skipaðs verjanda síns, Jóns Höskuldssonar hdl., sem þykja hæfilega ákveðin kr. 110.000- og er þá virðisaukaskattur innifalinn, eða samtals kr. 128.460-.
Enginn sakarkostnaður er vegna ákærða X.
Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, X, sæti fangelsi í 2 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum 3 árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærða, Z, er ekki gerð sérstök refsing.
Ákærða, Y, er ekki gerð sérstök refsing Ákærði Z greiði kr. 127.985í sakarkostnað, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns Sveins Andra Sveinssonar hrl., kr. 110.000- og er virðisaukaskattur innifalinn.
Ákærði Y greiði kr. 128.460í sakarkostnað, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns Jóns Höskuldssonar hdl., kr. 110.000- og er virðisaukaskattur innifalinn.
Bótakröfu A er vísað frá dómi ex officio.