Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Austurlands

Mál nr. S-4/2007:

Ákæruvaldið

(Helgi Jensson fulltrúi)

gegn

Þór Rúnari Þórissyni

(sjálfur)

Hluti refsingar skilorðsbundinn og hluti óskilorðsbundinn. Nytjastuldur. Skilorðsrof. Þjófnaður.

Karlmaður sakfelldur fyrir nytjastuld og þjófnað. Refsing ákveðin fangelsi í 8 mánuði, þar af 5 mánuði skilorðsbundna til þriggja ára. Þá var ákærði dæmdur til að greiða brotaþola skaðabætur. Með broti sínu rauf ákærði skilorð dóms frá 25. nóvember 2004 og var sá dómur tekinn upp og ákærða gerð refsing í einu lagi fyrir bæði málin. Ósannað þótti að ákærði hefði gerst sekur um eignaspjöll og var hann sýknaður af því broti.

Mál þetta, sem dómtekið var 6. febrúar sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Seyðisfirði, útgefinni 22. desember 2006, á hendur Þór Rúnari Þórissyni, kt. 000000-0000, óstaðsettum í hús í Hafnarfirði, en með dvalarstað að Grænukinn 28, Hafnarfirði “fyrir nytjastuld, eignaspjöll og þjófnað, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 19. nóvember 2006 tekið bifreiðina UN-631 í heimildarleysi frá Dynskógum á Egilsstöðum og ekið henni þaðan í gegnum Egilsstaði og eftir Upphéraðsvegi áleiðis inn í Fljótsdal, uns hann missti stjórn á bifreiðinni, með þeim afleiðingum að bifreiðin hafnaði utan vegar og gjöreyðilagðist skammt frá bænum Strönd við Upphéraðsveg og jafnframt stolið úr bifreiðinni bílageislaspilara af tegundinni JVC að verðmæti um 15.000 krónur og MP3 spilara af tegundinni Samsung að verðmæti um 25.000 krónur.

Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr., 1. mgr. 257. gr. og 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 20/1956, lög nr. 82/1998 og lög nr. 30/1998.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.

Þá krefst eigandi bifreiðarinnar UN-631, Kristján Kröyer Þorsteinsson, kt. 000000- 0000, þess að ákærði greiði honum skaðabætur vegna tjóns sem hann olli á bifreiðinni, að fjárhæð kr. 604.689,-, auk vaxta skv. 7. gr. vaxtalaga frá tjónsdegi þann 19. 11. 2006, en síðan auk dráttarvaxta skv. III. kafla vaxtalaga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.”

Um málavaxtalýsingu er skírskotað til ákæru.

Ákærði játaði brot sín skýlaust fyrir dóminum eins og þeim er lýst í ákæru. Þykir með játningu ákærða sem á sér stoð í gögnum málsins sannað að ákærði hafi gerst sekur um nytjastuld og þjófnað eins og þeim brotum ákærða er lýst í ákæru málsins. Ósannað þykir hins vegar að ákærði hafi valdið spjöllum á bifreiðinni UN-631 af ásetningi, en samkvæmt gögnum málsins missti ákærði stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að hún fór út af veginum og valt. Af gögnum málsins verður ekki annað ráðið en að ákærði hafi misst vald á bifreiðinni vegna þess að hann ók of hratt miðað við aðstæður og verður sú háttsemi rakin til gáleysis hans. Með því að ósannað þykir að ákærði hafi velt bifreiðinni og valdið spjöllum á henni af ásetningi verður þessi háttsemi hans ekki heimfærð undir 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga og er hann því sýknaður af refsikröfu ákæruvaldsins að því er varðar eignaspjöll. Háttsemi ákærða að öðru leyti er hins vegar réttilega heimfærð til 1. mgr. 244. gr. og 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 82/1998.

Ákærði hefur þrívegis áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Hinn 30. júní 2004 gekkst ákærði undir greiðslu sektar og sviptingu ökuréttar fyrir brot gegn 2. mgr. 44. gr. umferðarlaga. Hinn 13. júlí sama ár var ákærði dæmdur í 3 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 3 ár, fyrir þjófnað, gripdeild, tilraun til þjófnaðar, brot gegn 246. gr. almennra hegningarlaga, eignaspjöll og brot gegn ávana- og fíkniefnalöggjöf. Jafnframt var ákærða gert að greiða sekt. Hinn 25. nóvember 2004 var ákærði dæmdur í 5 mánaða fangelsi fyrir skjalafals, skilorðsbundið í 3 ár, og var dómurinn frá 13. júlí tekinn upp og ákærða gerð refsing í einu lagi fyrir bæði málin.

Með brotum sínum nú hefur ákærði rofið skilorð dómsins frá 25. nóvember 2004. Ber því með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga að taka upp þann dóm og ákveða refsingu í einu lagi fyrir bæði málin í samræmi við 77. gr. almennra hegningarlaga.

Við ákvörðun refsingar er litið til þess að ákærði hefur frá upphafi gengist greiðlega við brotum sínum og er það honum til refsimildunar. Til þess er hins vegar einnig að líta að ákærði hefur áður gerst sekur um þjófnað og önnur auðgunarbrot. Með hliðsjón af framangreindu þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 8 mánuði. Rétt þykir að fresta fullnustu 5 mánaða af refsivistinni og að sá hluti refsingarinnar falli niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Enginn sakarkostnaður hefur hlotist af málinu og dæmist hann því ekki.

Við þingfestingu málsins samþykkti ákærði bótakröfu eiganda bifreiðarinnar UN- 631 eins og hún er sett fram í ákæru. Er ákærði því dæmdur til að greiða Kristjáni Kröyer Þorsteinssyni, kt. 000000-0000, bætur að fjárhæð 604.689 krónur með vöxtum samkvæmt 7. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 19. nóvember 2006 til 6. febrúar 2007, en með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laga nr. 38/2001 frá þeim degi til greiðsludags.

Dóm þennan kveður upp Ragnheiður Bragadóttir dómstjóri.

Dómsorð:

Ákærði, Þór Rúnar Þórisson, sæti fangelsi í 8 mánuði, en fresta skal fullnustu 5 mánaða af refsivistinni og falli hún niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði greiði Kristjáni Kröyer Þorsteinssyni 604.689 krónur með vöxtum samkvæmt 7. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 19. nóvember 2006 til 6. febrúar 2007, en með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laga nr. 38/2001 frá þeim degi til greiðsludags.

Ragnheiður Bragadóttir