Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um sameiningu heilbrigðisstofnana.

1. gr.

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að sameina eftirtaldar heilbrigðisstofnanir og tekur sameiningin gildi 1. október 2014:

  1. Undir nafninu Heilbrigðisstofnun Vestfjarða sameinast eftirtaldar stofnanir:
    Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.
    Heilbrigðisstofnunin Patreksfirði.
  2. Undir nafninu Heilbrigðisstofnun Norðurlands sameinast eftirtaldar stofnanir:
    Heilbrigðisstofnunin Blönduósi.
    Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki.
    Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð.
    Heilsugæslustöðin Dalvík.
    Heilsugæslustöðin á Akureyri.
    Heilbrigðisstofnun Þingeyinga.
  3. Undir nafninu Heilbrigðisstofnun Suðurlands sameinast eftirtaldar stofnanir:
    Heilbrigðisstofnun Suðausturlands.
    Heilbrigðisstofnunin Vestmannaeyjum.
    Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 9. júlí 2014.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Sveinn Magnússon.