Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Lög um sameiningu Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands Lög nr. 77/2010
Þessi lög eru ekki lengur í gildi. Textinn er sóttur úr sögulegri útgáfu lagasafns.

Lagasafn.  Íslensk lög 1. nóvember 2017.  Útgáfa 147.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um sameiningu Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands

Lög nr. 77/2010


Ferill málsins á Alþingi.    Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. júlí 2010. Breytt með l. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra eða samgöngu- og sveitarstjórnarsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.



1. gr. Þjóðskrá og Fasteignaskrá Íslands skulu sameinast í eina ríkisstofnun er nefnist Þjóðskrá Íslands.
[Ráðherra] 1) fer með framkvæmd laga þessara.
    1)L. 126/2011, 530. gr.
2. gr.1 Þjóðskrá Íslands er ábyrgðaraðili að almannaskráningu og skal fylgja lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, þar á meðal um öryggi gagna, fræðslu og tilkynningarskyldu. Halda skal gagnagrunnum er lúta að almannaskráningu aðskildum frá öðrum skrám ábyrgðaraðila. Þó eru heimilar samkeyrslur til uppfærslna á heimilisföngum. Aðra vinnslu skal tilkynna til Persónuverndar.
3. gr. Hlutverk stjórnar skv. 9. gr. laga nr. 6/2001 helst óbreytt. Starfssvið stjórnar nær þó ekki til starfsemi Þjóðskrár Íslands sem fellur undir lög nr. 54/1962 eða annarra laga um starfsemi Þjóðskrár.
4. gr.2 Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2010.
2 Við gildistöku laga þessara tekur Þjóðskrá Íslands, sbr. 1. gr., við eignum og skuldbindingum Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands. Sama gildir um ónýttar fjárheimildir eða skuldir beggja aðila í fjárlögum fyrir árið 2010.
5. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
Starfsmenn Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands, sem eru í starfi við gildistöku laga þessara, verða starfsmenn Þjóðskrár Íslands með sömu starfskjörum og áður giltu. Um rétt starfsmanna til starfa hjá Þjóðskrá Íslands fer eftir ákvæðum laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum. Ákvæði 7. gr. laga nr. 70/1996 gilda ekki við ráðstöfun starfa samkvæmt þessu ákvæði.