Lög um staðla
Lög nr. 97/1992
Lagasafn. Íslensk lög í október 2002. Útgáfa 127b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um staðla
Lög nr. 97/1992
■ 1. gr. Hugtökin staðall, alþjóðlegur staðall, stöðlun, fyrirmæli á tæknisviði, tæknileg forskrift og sammæli skulu hafa alþjóðlega viðurkennda merkingu hér á landi eins og hún kemur fram í íslenskum staðli um íðorð í stöðlun og skyldri starfsemi.
■ 2. gr. Íslenskur staðall er staðall sem hefur verið staðfestur af Staðlaráði Íslands.
□ Heimilt er að gefa út íslenskan staðal á erlendu tungumáli ef sýnt er að það hindri ekki eðlileg not hans.
■ 3. gr. Staðall er til frjálsra afnota. Stjórnvöld geta þó gert notkun tilgreinds staðals skyldubundna með vísun til hans í opinberum stjórnvaldsfyrirmælum.
■ 4. gr. Staðlaráð Íslands er samstarfsráð þeirra sem áhuga hafa á og hagsmuna hafa að gæta af stöðlun. Aðild að ráðinu er heimil öllum hagsmunaaðilum.
□ Staðlaráð setur sér starfsreglur sem ráðherra staðfestir. Í þeim skal m.a. kveðið á um skipulag ráðsins, stjórn þess og daglega starfsemi.
□ Heimilt er að kveða á um í starfsreglum skv. 2. mgr. að stjórn Staðlaráðs eða sérstök nefnd á vegum ráðsins staðfesti fyrir hönd þess staðal sem íslenskan staðal, sbr. 2. gr.
■ 5. gr. Staðlaráð á aðild að alþjóðasamstarfi staðlaráða fyrir Íslands hönd og fer með atkvæði landsins á þeim vettvangi. Heimilt er þó ráðinu að fela stofnun, fyrirtæki eða samtökum að annast í umboði þess þátttöku í alþjóðastaðlasamstarfi.
■ 6. gr. Eigi sjaldnar en ársfjórðungslega skal á vegum Staðlaráðs gefa út Staðlatíðindi þar sem m.a. skal:
1. tilkynna um ný stöðlunarverkefni,
2. auglýsa frumvörp að íslenskum stöðlum og kalla eftir athugasemdum innan tiltekins tímafrests og
3. tilkynna um staðfestingu Staðlaráðs á nýjum íslenskum stöðlum.
□ Við útgáfu auglýsinga og ákvörðun tímafrests samkvæmt þessari grein skal miðað við að þeir sem hagsmuna hafa að gæta geti haft áhrif á gerð staðalsins.
□ Á vegum Staðlaráðs skal haldin skrá yfir alla gildandi íslenska staðla. Skráin skal birt eigi sjaldnar en einu sinni á ári. Jafnframt skal Staðlaráð sjá til þess að á hverjum tíma séu til eintök af öllum gildandi íslenskum stöðlum.
■ 7. gr. Iðnaðarráðherra fer með framkvæmd laga þessara. Hann getur með reglugerð 1) sett nánari ákvæði um framkvæmd þeirra.
1)Rg. 319/1993, sbr. 276/1996. Rg. 534/1995.
■ 8. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1993.