Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 976/2000"

1 dómar fundust

Hæstiréttur birt 12. febrúar 2004

322/2003

Trico ehf (Sveinn Andri Sveinsson hrl) gegn Orkuveitu Reykjavíkur (Hjörleifur Kvaran hrl)

T notaði tölvustýrðar prjónavélar við framleiðslu sína og hafði átt í erfiðleikum með að láta vélarnar halda fullum afköstum. Fannst ekki skýring á þessu fyrr en grunur vaknaði vorið 2000 um að vandkvæðin kynnu að stafa af truflunum á spennu í rafmagni sem O seldi T. Voru gerðar mælingar á spennunni og kvörtun beint til O sem hófst handa við úrbætur og var þeim lokið haustið 2000. Minnkuðu vandkvæðin við þetta en hurfu þó ekki fyrr en T setti upp sérstakan búnað til jöfnunar spennu. T krafðist viðurkenningar á bótaskyldu O vegna tjóns sem félagið hefði orðið fyrir vegna truflana í framleiðslu sinni frá 1993 til 2001. Talið var að samkvæmt reglugerðum og tæknilegum tengiskilmálum sem giltu um afhendingu á rafmagni væri O undanþegið bótaábyrgð vegna stöðvunar á afhendingu eða truflana í tengslum við það. Einnig að þeir sem notuðu spennuviðkvæm tæki ættu á eigin kostnað að setja upp búnað til að jafna spennu. Var talið að ekki hefðu verið leidd í ljós veruleg frávik frá reglum og skilmálum um afhendingu orku og því bæri O ekki skaðabótaábyrgð á tjóni T, enda hafði O gripið til ráðstafana til að hækka spennu á rafmagni til T þegar vísbendingar komu fram um að vandkvæði T stöfuðu af afhendingu raforkunnar. Var O sýknað af kröfu T.

...665/1995, og samhljóða ákvæði er í gildandi reglugerð nr. 976/2000. Með auglýsingu nr. 391/1990 voru settir tæknilegir tengiskilmálar fyrir rafmagnsveitur og giltu þeir fyrir Rafveitu Akraness, svo...