Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 960/2004"
1 dómar fundust
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli H ehf. gegn Í var vísað frá dómi. Í málinu krafðist H viðurkenningar á að Í bæri skaðabótaábyrgð á tjóni sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna úthlutunar á byggðakvóta tiltekin fiskveiðiár. Var krafa hans reist á því að ákvarðanir um úthlutanir hafi ekki verið samræmi við reglur og hann hafi því fengið minna í sinn hlut en honum hefði með réttu borið. Í dómi Hæstaréttar kemur m.a. fram að í málinu liggi ekki annað fyrir en að H ehf. hafi lagt stund á útgerð þau fiskveiðiár sem um ræði. Engin efni væru til annars en að líta svo á að H hf. hefði leitt nægar líkur að því að hann hefði orðið fyrir tjóni með því að hafa ekki fengið úthlutað byggðakvóta í þeim mæli sem hann telur að rétt hefði verið þótt engu yrði slegið föstu um hvort annmarkar hafi verið á úthlutun kvótans sem Í geti borið skaðabótaábyrgð á. Enginn vafi væri því á H hf. hefði lögvarða hagsmuni af því að fá dóm um málið. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.
...Á þeim grunni gaf hann meðal annars út reglugerð nr. 960/2004 um úthlutun á 3.200 þorskígildislestum til stuðnings byggðarlögum, sem tók til fiskveiðiársins 2004 til 2005, og síðan...