Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 851/2002"

1 dómar fundust

Landsréttur birt 21. júní 2019

614/2018

Ragnheiður Jóna Þorgrímsdóttir (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Norðuráli Grundartanga ehf (Árni Vilhjálmsson lögmaður, Ólafur Arinbjörn Sigurðsson lögmaður, 1. prófmál)

R höfðaði mál á hendur N ehf. til heimtu miskabóta, viðurkenningar á skaðabótaskyldu vegna hrossadauða og veikinda hrossa í eigu R og rýrnunar á verðmæti landareignar hennar að Kúludalsá í Hvalfjarðarsveit. R taldi tjón sitt eiga rætur að rekja til mengunar frá álveri N ehf. að Grundartanga. Í dómi Landsréttar var meðal annars vísað til þess að skýrslur um umhverfisvöktun og önnur gögn málsins sýndu fram á aukinn styrk flúoríðs í lofti, gróðri og búfénaði á jörðum í nágrenni Kúludalsár eftir að álver N ehf. hefði tekið til starfa. Sérstaklega hefði svo verið fyrst eftir bilun í hreinsibúnaði á árinu 2006 og þegar framleiðslugeta álversins hefði aukist verulega á árunum þar á eftir. Ekki var þó talið að stefndi hefði brotið gegn ákvæði starfsleyfis um árlegt hámarksmagn flúors í útblásturslofti eða að tímabundin bilun hreinsibúnaðarins fæli í sér sérstakt brot gegn starfsleyfinu. Heildarmat á niðurstöðum áfangaskýrslu sem unnin var á grundvelli rannsóknar á orsökum veikinda hrossanna og önnur sönnunargögn þóttu ekki geta leitt til þeirrar niðurstöðu að sýnt hefði verið fram á orsakasamband milli flúormengunar frá álverinu og veikinda hrossanna. Talið var að R hefði hvorki gert nægilega líklegt að N ehf. hefði sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi hvað varðaði losun flúors né að orsakatengsl væru á milli losunar flúors frá álverinu og veikinda og dauða hrossanna til þess að fallist yrði á bótaskyldu N ehf. Því var niðurstaða héraðsdóms um sýknu N ehf. af kröfum R staðfest.

...7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, og settum reglugerðum, reglugerð nr. 851/2002, um grænt bókhald, og hinni óskráðu meginreglu stjórnsýsluréttar um sérstakt hæfi starfsmanna stjórnsýslunnar. Krafa um málskostnað er...