Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 808/2022"

2 dómar fundust

Landsréttur birt 8. febrúar 2024

865/2023

Ákæruvaldið (Teitur Már Sveinsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Kærður var dómur héraðsdóms þar sem ákæruefni á hendur X vegna vangreiddrar staðgreiðslu launamanna A ehf. og vangreidds virðisaukaskatts í rekstri sama félags, samtals að fjárhæð 30.500.044 krónur, var vísað frá dómi. Hafði X verið ákærður ásamt Y en ákæra á hendur hinum síðarnefnda laut að skattalagabrotum vegna þriggja félaga, A ehf., B ehf. og C ehf. Fyrir lá að heildarfjárhæð þeirra skattalagabrota sem tilgreind var í ákæru á hendur bæði X og Y nam 100.436.414 krónum. Í dómi héraðsdóms kom fram að engin rök stæðu til samlagningar þannig að horft væri til sakarefna vegna B ehf. og C ehf. gagnvart X. Vísað var til þess að í fyrirmælum ríkissaksóknara nr. 6/2021 kæmu fram viðmið um hvort máli yrði vísað til lögreglu að lokinni frumrannsókn skattrannsóknarstjóra. Þar sem ákæruefni á hendur X væri undir 50.000.000 króna viðmiði a-liðar 2. töluliðar fyrirmælanna og ekki yrði séð að verknaðurinn hefði verið framinn með sérstaklega vítaverðum hætti eða að ítrekunaráhrif væru uppfyllt, var það ekki talið samrýmast fyrirmælunum að vísa máli X til héraðssaksóknara. Að mati héraðsdóms hefði héraðssaksóknara borið að endursenda mál X til skattrannsóknarstjóra í stað þess að gefa út ákæru á hendur honum. Í úrskurði Landsréttar kom fram að í dómframkvæmd væri lagt til grundvallar að breytt tilhögun á refsimeðferð skattalagabrota eftir setningu laga nr. 29/2021 hefði ekki þýðingu við mat á refsinæmi þeirrar háttsemi sem X var ákærður fyrir. Þá taldi Landsréttur að ákæruvaldið hefði metið rannsókn málsins fullnægjandi og á grundvelli allra gagna málsins gefið út ákæru. Því hefði einnig ítrekað verið slegið föstu að ákvörðun um útgáfu ákæru sætti ekki endurskoðun dómstóla. Í ljósi þess hefðu skilyrði ekki verið uppfyllt til að vísa málinu frá dómi að því er varðaði ákæru á hendur X. Var ákvæði hins kærða dóms því fellt úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka mál X til efnislegrar meðferðar.

...ágúst 2021 eins og áður gat, auk þess að búið var að setja reglugerð nr. 808/2022. 83. Af framsetningu sakarefna í framangreindu bréfi skattrannsóknarstjóra til héraðssaksóknara verður að álykta...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. desember 2023

S-4327/2022

Héraðssaksóknari (Teitur Már Sveinsson saksóknarfulltrúi) gegn Sigurði Kristni Árnasyni (Jóhannes Árnason lögmaður) og X (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Annar ákærðu var sakfelldur fyrir skattalagabrot vegna afdregins virðisaukaskatts og afdreginnar staðgreiðslu opinberra gjalda sem ekki var greidd á gjalddaga vegna reksturs þriggja einkahlutafélaga. Þá var sami ákærði einnig sakfelldur fyrir að telja tekjur sínar ranglega fram á tveggja ára tímabili og fyrir að hafa ekki talið fram á þriðja tímabilinu. Ákærði og meðákærði voru báðir ákærðir vegna eins ákæruliðar er laut að fyrrgreindum einkahlutafélögum en málinu var vísað frá dómi gagnvart meðákærða þar sem samkvæmt fyrirmælum ríkissaksóknara nr. 29/2021 áttu sakargiftir sem þessar undir skattrannsóknarstjóra til úrlausnar en ekki ákæruvaldið.

...ágúst 2021 eins og áður gat, auk þess að búið var að setja reglugerð nr. 808/2022. 83. Af framsetningu sakarefna í framangreindu bréfi skattrannsóknarstjóra til héraðssaksóknara verður að álykta...