Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 777/2006"
3 dómar fundust
Ákæruvaldið (
Kolbrún Benediktsdóttir settur saksóknari)
gegn
X (
Jón Rúnar Pálsson hrl)
X var ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa sem ökumaður vöruflutningabifreiðar margoft brotið gegn reglum um aksturs- og hvíldartíma ökumanna. Fyrir Hæstarétti bar ákærði fyrir sig að í öllum tilvikum hafi verið um að ræða akstur, sem væri honum refsilaus vegna frávika samkvæmt 13. gr. þágildandi reglugerðar nr. 662/2006 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna. Í því ákvæði var kveðið á um heimild ökumanns til að víkja frá ákvæðum reglugerðarinnar að nánar tilteknum skilyrðum uppfylltum, að því tilskyldu að ökumaður skráði í ökurita með hvaða hætti og hvers vegna það væri gert. Upplýst var í málinu að ekki væri mögulegt að skrá í ökuritann neinar slíkar upplýsingar sem féllu undir 13. gr. og því ekki unnt að framkvæma fyrirmælin í greininni. Þegar ákærði var yfirheyrður hjá lögreglu vegna ætlaðra brota var liðið meira en ár frá háttseminni. Honum var samkvæmt ákvæðum 12. gr. reglugerðar nr. 661/2006 ekki skylt að halda til haga gögnum um aksturinn lengur en í eitt ár. Hvorki Vegagerðin né lögregla höfðu gefið honum tilefni til að halda slíkum gögnum til haga lengur, hvort sem þau hefðu verið til eða ekki. Hæstiréttur taldi að það væri ekki á ábyrgð ákærða að ekki lægju fyrir sannanir um rétt hans til þess að víkja frá þeim ákvæðum reglugerðarinnar sem hann væri talinn hafi brotið í ákæru. Var ákærði því sýknaður.
...heimilt að hafa eftirlit með ökutækjum á vegum og á starfsstöð flytjanda skv. reglugerð nr. 777/2006, sbr. 3., 4. og 5. gr. Í máli þess sé eingöngu stuðst við...
Ákæruvaldið (
Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi)
gegn
Guðmundi Hreindal Svavarssyni (
Jón Rúnar Pálsson hrl)
G var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fimmtán brot á reglum um aksturs- og hvíldartíma ökumanna.
...heimilt að hafa eftirlit með ökutækjum á vegum og á starfsstöð flytjanda skv. reglugerð nr. 777/2006, sbr. 3., 4. og 5. gr. Í máli þess sé eingöngu stuðst við...
A var ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa sem ökumaður vörubifreiðar margoft brotið gegn reglum um aksturs- og hvíldartíma ökumanna. A var sakfelldur samkvæmt ákæru og dæmdur í þiggja mánaða skilorðsbundið fangelsi.
...apríl 2008 við lögbundna skoðun eftirlitsmanna Vegagerðarinnar samkvæmt ákvæðum 68. gr. umferðarlaga, sbr. reglugerð nr. 777/2006 um eftirlit með aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita o.fl. Vegna bilunar...