Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 77/2001"

1 dómar fundust

Hæstiréttur birt 18. maí 2006

520/2005

Íslenska ríkið (Björgvin Jónsson hrl, Ágúst Sindri Karlsson hdl) gegn Síldarvinnslunni hf (Jón Rúnar Pálsson hrl, Jón H. Magnússon hdl)

Í ársbyrjun 2003 hóf aðfangaeftirlitið, sem starfaði á grundvelli laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, eftirlit með framleiðslu S hf. á fiskimjöli og lýsi, sem ætlað var til útflutnings. Í kjölfarið krafðist stofnunin að félagið greiddi eftirlitsgjald samkvæmt 8. gr. laganna. S hf. taldi að eftirlitið og gjaldtakan hefði ekki viðhlítandi lagastoð. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þegar litið yrði til forsögu laga nr. 22/1994 og lögskýringargagna með þeim yrði ekki talið að í þeim hefði falist heimild fyrir aðfangaeftirlitið til að ákveða á sitt eindæmi að hefja hið umdeilda eftirlit. Veitti reglugerð nr. 340/2001 um eftirlit með fóðri ekki næga stoð fyrir slíku eftirliti auk þess sem talið var að með því hefði aðfangaeftirlitið farið inn á valdsvið Fiskistofu. Af þessu leiddi að S hf. var ekki talið skylt að greiða það gjald, sem það var krafið um, og var því sýknað af kröfu stofnunarinnar.

...55/1998 um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða og reglugerð nr. 77/2001 um framleiðslu og dreifingu á fiskimjöli og lýsi. Lög nr. 32/1968 um eftirlit með framleiðslu og...