Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 724/2006"
2 dómar fundust
Ákæruvaldið (
Daði Kristjánsson saksóknari)
gegn
Sigurði Steinari Konráðssyni og Ísfélagi Vestmannaeyja hf (
Finnur Magnússon hrl)
S, sem var skipstjóri á bátnum Suðurey og Í, útgerð skipsins, voru ákærð fyrir að stunda togveiðar með ólögmætum veiðarfærum. Í málinu báru S og Í fyrir sig að búið væri að fella úr gildi reglugerð þá sem bannaði veiðarnar og því bæri samkvæmt 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 að sýkna þá. Í niðurstöðu Hæstaréttar var vísað til þess að ekki hefði verið hróflað við refsinæmi þess brots sem S og Í hefðu verið gefið að sök og hefði falist í því að stunda fiskveiðar með ólögmætum veiðarfærum. Í því tilliti gilti einu þótt reglugerð, sem mælt hefði fyrir um veiðarfærin hefði verið felld úr gildi í tilefni af könnun á fiskigengd á svæðinu sem fram hefði farið eftir umrædda veiðiferð. Yrði að dæma eftir þeim reglum sem í gildi hefðu verið á þeim tíma sem skipið hefði verið að veiðum. Voru S og Í því sakfelld fyrir brotið og dæmd til greiðslu sektar í Landhelgissjóð Íslands.
...749/2006 og voru þá veiðar á svæðinu heimilaðar með fiskibotnvörpu væri varpan búin smáfiskaskilju eða 155 mm poka í samræmi við reglugerð nr. 724/2006 um gerð og útbúnað...
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (
Bryndís Ósk Jónsdóttir fulltrúi)
gegn
A og B (
Finnur Magnússon hdl)
Sýknað af ákæru vegna fiskveiðibrots.
...749/2006 og voru þá veiðar á svæðinu heimilaðar með fiskibotnvörpu væri varpan búin smáfiskaskilju eða 155 mm poka í samræmi við reglugerð nr. 724/2006 um gerð og útbúnað...