Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 722/1997"

1 dómar fundust

Hæstiréttur birt 19. desember 2002

277/2002

Tækja-Tækni ehf (Björgvin Þorsteinsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

T ehf. krafði Í um skaðabætur vegna kostnaðar sem það taldi sig hafa orðið fyrir vegna vinnu við að fá endurgreidda kröfu vegna ætlaðrar ólögmætrar gjaldtöku. Ekki lá fyrir að T ehf. hefði þurft að fá aðkeypta vinnu vegna þessara samskipta. Talið var að af framlögðum gögnum yrði ekki annað ráðið en að gagnaöflun T ehf. og bréfaskriftir hefðu verið eins og hver annar venjubundinn þáttur í starfsemin þess. Fyrirtæki sem þetta þyrfti jafnan að eiga samskipti við stjórnvöld, þ. á m. til þess að fá leiðréttingar sinna mála. Varð T ehf. því ekki talið hafa sýnt fram á að hafa orðið fyrir tjóni í skilningi skaðabótaréttar og ekki leitt líkur að því að gjaldtakan hefði haft einhver sérstök áhrif á atvinnurekstur þess. Var Í því sýknað af kröfum T ehf.

...febrúar 2000 gaf ríkistollstjóri með samþykki tollstjórans í Kópavogi áfrýjanda leyfi til SMT-tollafgreiðslu vegna innflutnings á vörum samkvæmt reglugerð nr. 722/1997 þar um. Reglugerðin var gefin út samkvæmt...