Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 719/2001"

2 dómar fundust

Hæstiréttur birt 1. desember 2016

419/2016

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn Sigurði Steinari Konráðssyni og Ísfélagi Vestmannaeyja hf (Finnur Magnússon hrl)

S, sem var skipstjóri á bátnum Suðurey og Í, útgerð skipsins, voru ákærð fyrir að stunda togveiðar með ólögmætum veiðarfærum. Í málinu báru S og Í fyrir sig að búið væri að fella úr gildi reglugerð þá sem bannaði veiðarnar og því bæri samkvæmt 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 að sýkna þá. Í niðurstöðu Hæstaréttar var vísað til þess að ekki hefði verið hróflað við refsinæmi þess brots sem S og Í hefðu verið gefið að sök og hefði falist í því að stunda fiskveiðar með ólögmætum veiðarfærum. Í því tilliti gilti einu þótt reglugerð, sem mælt hefði fyrir um veiðarfærin hefði verið felld úr gildi í tilefni af könnun á fiskigengd á svæðinu sem fram hefði farið eftir umrædda veiðiferð. Yrði að dæma eftir þeim reglum sem í gildi hefðu verið á þeim tíma sem skipið hefði verið að veiðum. Voru S og Í því sakfelld fyrir brotið og dæmd til greiðslu sektar í Landhelgissjóð Íslands.

...Með reglugerð nr. 719/2001 um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Vestfjarðamiðum án smáfiskaskilju, voru veiðar án smáfiskaskilju bannaðar á því svæði þar sem Suðurey kastaði. Þeirri reglugerð var...

Héraðsdómur Vestfjarða birt 20. apríl 2016

S-87/2015

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (Bryndís Ósk Jónsdóttir fulltrúi) gegn A og B (Finnur Magnússon hdl)
Lykilorð: Fiskveiðibrot.

Sýknað af ákæru vegna fiskveiðibrots.

...Með reglugerð nr. 719/2001 um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Vestfjarðamiðum án smáfiskaskilju, voru veiðar án smáfiskaskilju bannaðar á því svæði þar sem [...] kastaði. Þeirri reglugerð var breytt...