Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 652/2004"

1 dómar fundust

Hæstiréttur birt 17. desember 2013

517/2013

K (Gunnar Ingi Jóhannsson hrl) gegn Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl)
Málaflokkur: Barnaréttur

Barnaverndarnefnd R krafðist þess að K yrði svipt forsjá sonar síns. Með vísan til álitsgerðar dómkvadds matsmanns í öðru máli, þar sem K hafði verið svipt forsjá dóttur sinnar, langrar sögu hennar um geðræna erfiðleika, sem höfðu ásamt langvinnri áfengis- og vímuefnamisnotkun valdið því að hún gæti ekki annast eldri börn sín, var á það fallist að forsjárhæfni K væri verulega skert. Þótti skilyrði d. liðar 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 því uppfyllt í málinu. Þá höfðu verið færðar fram nægar vísbendingar um að K væri vegna langvarandi persónuleikaraskana ekki fær um að vinna bug á þeim annmörkum sem drægju úr hæfni hennar til að bera ábyrgð á barni. Var því talið að ekki væri unnt að beita öðrum og vægari úrræðum en forsjársviptingu til að tryggja öryggi og velferð sonar hennar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Var krafa um forsjársviptingu því tekin til greina.

...Stefnda bendir á að barnaverndarnefndir sveitarfélaga skuli hafa tiltæk ákveðin stuðningsúrræði samkvæmt reglugerð nr. 652/2004 um úrræði á ábyrgð sveitarfélaga samkvæmt ákvæðum barnaverndarlaga. Sem dæmi megi nefna almenn úrræði...