Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 647/1995"
2 dómar fundust
G hf. höfðaði mál á hendur O ohf. til heimtu þess sem hann taldi skorta á fullar greiðslur eftir samningum aðila fyrir afnot af heitu vatni úr landi jarða í Reykjahverfi á nánar tilgreindu tímabili. O ohf. höfðaði gagnsök í héraði og krafðist þess að vikið yrði til hliðar nánar tilgreindum verðákvæðum samninga og samkomulags aðila og að teknar yrðu upp nánar tilgreindar breytingar á ákvæðunum. Var hvor aðili sýknaður af kröfum hins í héraði. Í dómi Hæstaréttar kom meðal annars fram að ekki væru næg efni til að taka til greina kröfur O ohf. um að víkja til hliðar áðurnefndum ákvæðum sem giltu um greiðslur fyrir heitt vatn frá G hf. á grundvelli 36. gr. laga nr. 7/1936. Þá gætu þau atriði sem O ohf. hefði borið fyrir sig heldur ekki haft áhrif á gildi samninganna eftir óskráðum reglum samningaréttar um ógildi löggerninga vegna brostinna forsendna. Var því niðurstaða héraðsdóms um sýknu G hf. staðfest. Hins vegar var fallist á hluta krafna G hf. og O ohf. dæmd til að greiða G hf. nánar tilgreindra fjárhæð.
...áður reglugerð nr. 647, 1995, sbr. lög nr. 13, 2005 og orkulög nr. 58, 1967, er tilgangur félagsins orkurannsóknir, vinnsla og framleiðsla raforku, varma og vatns og hvers konar annarra...
Ógilding samningsákvæða, en einnig fjárkröfum hafnað
...áður reglugerð nr. 647, 1995, sbr. lög nr. 13, 2005 og orkulög nr. 58, 1967, er tilgangur félagsins orkurannsóknir, vinnsla og framleiðsla raforku, varma og vatns og hvers konar annarra...