Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 640/1989"

1 dómar fundust

Hæstiréttur birt 15. febrúar 2007

120/2006

Karl K. Karlsson hf (Stefán Geir Þórisson hrl, Ólafur Örn Svansson hdl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

K krafðist skaðabóta úr hendi Í vegna fjártjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna þess að ÁTVR hélt einkarétti til innflutnings og heildsöludreifingar á áfengi eftir gildistöku EES-samningsins 1. janúar 1994. Byggði hann á því að vegna 11. og 16. gr. samningsins hefði Í borið að hlutast til um að umræddur einkaréttur yrði afnuminn áður en samningurinn tók gildi, en það hafi hins vegar ekki verið gert fyrr en með lögum sem tóku gildi 1. desember 1995 eða 23 mánuðum seinna. Í byggði á því að K hefði ekki sýnt fram á tjón sitt af því að hafa ekki fengið að stunda innflutning og heildsöludreifingu á áðurnefndu tímabili eða sýnt fram á orsakasamband milli slíks hugsanlegs tjóns og saknæmrar háttsemi Í. Við úrlausn um kröfu K var ekki talið hjá því komist að líta til þess hvernig hann hefði í raun nýtt sér heimild til að flytja inn og dreifa áfengi í heildsölu fyrstu 23 mánuðina eftir að honum varð það heimilt frá 1. desember 1995. Fyrir lá að K hafði aðeins í litlum mæli hafið innflutning áfengis á árinu 1996 að undanskilinni einni tegund, en að það hefði breyst nokkuð á árinu 1997. Ekki var talið að neitt benti til þess að K hefði þegar á árunum 1994 og 1995 hafið innflutning fyrir ÁTVR á öllum áfengistegundum, sem hann hafði áður umboð fyrir eða fékk á þeim tíma, en að leggja yrði til grundvallar að það hefði gerst með líkum hraða og raunin varð frá 1. desember 1995. Í málinu gerði K aðalkröfu og varakröfu sem byggðar voru á útreikningum hans á tjóni sínu, en þeir voru af nánar tilgreindum ástæðum taldir haldslausir. Önnur og þriðja varakrafa K voru studdar við matsgerðir dómkvaddra manna, en ekki var talið að með þeim hefði verið gert nægilega líklegt að hann hefði orðið fyrir tjóni vegna þess að fyrrgreindum einkarétti ÁTVR var ekki aflétt fyrr en 1. desember 1995. Samkvæmt framangreindu var ekki talið sannað að K hefði beðið tjón af fyrrgreindum orsökum og var því ekki talin þörf á að taka afstöðu til málsástæðna Í sem lutu að því að ekki fengi staðist úrlausn héraðsdóms um álitaefni sem tengdust EES-samningnum eða túlkun hans á lögum nr. 2/1993. Var Í því sýknað af kröfum K.

...hafi gilt sérstakar reglur um greiðslufrest á virðisaukaskatti í tolli vegna innflutnings, sbr. reglugerð nr. 640/1989, um greiðslufrest á virðisaukaskatti í tolli. Stefndi mótmælir því eindregið að brotið hafi...