Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 600/2000"
2 dómar fundust
Ágreiningur málsins átti rætur að rekja til afskipta M af búrekstri F og S á tilgreindri jörð í Borgarfirði sem lauk með vörslusviptingu lögreglunnar á sauðfé í þeirra eigu. Í málinu var meðal annars uppi ágreiningur um hvort vörslusvipting lögreglunnar hefði verið liður í rannsókn sakamáls og hvort F og dánarbú S, sem tekið hefði við rekstri málsins, gætu af þeim sökum reist bótakröfur sínar á nánar tilgreindum ákvæðum laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Í dómi Landsréttar var litið til þess að afskipti M af búrekstrinum hefðu hafist í kjölfar athugasemda um að búfjárhald á bænum hefði ekki verið í samræmi við ákvæði nr. 15/1994 um dýravernd og ákvæði þágildandi laga nr. 103/2002 um búfjárhald o.fl. Þá hefðu ákvarðanir stofnunarinnar verið reistar á ákvæðum þessara laga og þannig byggðar á dýraverndunarsjónarmiðum í samræmi við tilgang þágildandi laga nr. 103/2002. Jafnframt var litið til þess að aðgerðir lögreglu hefðu farið fram að beiðni M með vísan til 3. mgr. 16. gr. þágildandi laga nr. 103/2002. Í ljósi þessa og með hliðsjón af fyrirmælum 52. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um að aðgerðir lögreglu umrætt sinn hefðu ekki geta talist liður í rannsókn sakamáls í skilningi laga nr. 88/2008. Loks var talið að vörslusviptingin hefði farið fram með formlegum hætti en á hinn bóginn hvorki fallist á hún hefði falið í sér ólögmæta stjórnvaldsákvörðun né að brotið hefði verið gegn málsmeðferðarreglum stjórnsýslulaga við töku hennar. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu Í af kröfum F og dánarbús S.
...103/2002, reglugerð nr. 600/2000 og lög um dýravernd nr. 15/1994, nánar tiltekið sökum vanfóðrunar, skorts á fullnægjandi húsrými og vanrækslu á brynningu. Samkvæmt eftirlitsskýrslu 6. febrúar 2012...
...103/2002, reglugerð nr. 600/2000 og lög um dýravernd nr. 15/1994, nánar tiltekið sökum vanfóðrunar, skorts á fullnægjandi húsrými og vanrækslu á brynningu. Samkvæmt eftirlitsskýrslu 6. febrúar 2012...