Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 575/2001"

4 dómar fundust

Hæstiréttur birt 25. október 2006

546/2006

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson fulltrúi) gegn X (sjálfur)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Héraðsdómur vísaði máli ákæruvaldsins á hendur X frá dómi þar sem talið var að rannsóknargögn væru ekki í samræmi við verknaðarlýsingu ákærunnar. Ekki var fallist á að þetta ætlaða ósamræmi ætti að leiða til frávísunar málsins þar sem um atriði væri að ræða sem kæmi til athugunar við efnislega meðferð málsins, þegar dómari legði mat á hvort ákæruvaldið hefði uppfyllt sönnunarskyldu sína. Var úrskurðurinn því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnislegrar meðferðar.

...Í reglugerð nr. 575/2001 um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim segir í viðauka I að sektir vegna brota á 1. mgr...

Héraðsdómur Suðurlands birt 23. október 2006

S-352/2006

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn Jóhannesi Geir Sigurjónssyni (Marteinn Másson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður dæmdur fyrir of hraðan akstur á vistgötu og lagningu bifreiðar þar sem óheimilt var að leggja en sýknaður af því að hafa ekki haft á sér ökuskírteini þar sem ósannað var gegn fullyrðingu hans að kunningi hans hafi haft skírteinið hans á sér sem var með honum.

...Með reglugerð nr. 575/2001 um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim eru leiðbeinandi reglur um viðurlög og sektarfjárhæðir. Ákæruvaldið krefst þess að...

Héraðsdómur Vesturlands birt 31. ágúst 2006

S-154/2006

Ákæruvaldið (Hjördís Stefánsdóttir fulltrúi) gegn Andrési Kristni Konráðssyni (Jón Haukur Hauksson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði, sem neitaði sök, sakfelldur og dæmdur til greiðslu sektar fyrir hraðakstur. Kröfu ákæruvalds um sviptingu ökuréttar var hins vegar hrundið.

...Um þetta gildir nú reglugerð nr. 575/2001 með síðari breytingum. Þegar viðurlög fyrir umferðarlagabrot eru ákveðin ber lögregluyfirvöldum að hafa hliðsjón af fyrirmælum reglugerðarinnar en með því móti er...

Hæstiréttur birt 30. maí 2002

138/2002

Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn Steina Þorvaldssyni (Sigurður Jónsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

S var ákærður fyrir ölvunarakstur eftir að lögregla hafði stöðvað hann við akstur með 2,24‰ áfengismagn í blóði. Af hálfu ákæruvalds var honum gefinn kostur á að ljúka málinu með viðurlagaákvörðun samkvæmt fyrirmælum ríkissaksóknara til allra lögreglustjóra um sáttaboð ákærenda við viðurlagaákvarðanir í ölvunarakstursmálum. S hafnaði því boði og taldi viðurlög samkvæmt því of þung og í ósamræmi við langa dómvenju um sviptingu ökuréttar vegna sambærilegra brota. Héraðsdómur dæmdi S til ökuleyfissviptingar í eitt ár, í samræmi við dómvenju. Ríkissaksóknari áfrýjaði málinu í því skyni að freista þess að fá þessari dómvenju breytt. Hæstiréttur taldi að ekki kæmi fram í lögum nr. 57/1997 um breytingu á umferðarlögum, eða lögskýringargögnum með þeim, að mat löggjafans varðandi sviptingu ökuréttar vegna ölvunarakstursbrota hafi breyst. Dómstólar hafi miðað við lágmarks ökuréttarsviptingu, eitt ár, í tilvikum sem þeim er um ræddi í málinu, þ.e. þegar um sé að ræða fyrsta brot ökumanns, vínandamagn í blóði sé yfir 1,20‰ og ekki brotin önnur ákvæði laga eða aðstæður að öðru leyti sérstaklega alvarlegar. Hafi þá ekki skipt máli hversu mikið yfir mörkunum vínandamagnið hafi verið. Löggjafinn hafi hins vegar tengt lengri sviptingu ökuréttar ítrekuðum brotum og komið hafi til frekari ökuréttarsviptingar við endurtekin brot. Þótti ríkissaksóknari ekki hafa sýnt fram á að efni væru til þess að óbreyttum lögum að hverfa frá fordæmum um ökuréttarsviptingu, sem farið hafi verið eftir frá setningu umferðarlaga 1987 og lengur. Var því niðurstaða héraðsdóms um eins árs ökuréttarsviptingu staðfest.

...Gildir nú um þetta efni reglugerð nr. 575/2001 um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim. Reglugerðinni fylgir viðauki, sem er skrá yfir...